Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Qupperneq 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 27. maí 2004 EYJAMAÐUR VIKUNNAR Iíg ætla að skora á Gunnar Berg Viktorsson sem er snillingur í að útbúa pulsurétti með bökuðum haunum sem næsta matgæðing. Paul McCartney er fyrirmyndin Meðal skemmtiatriða á lokahófi Gunnar Berg Viktorsson er matgæðingur vikunnar handboltans hjá ÍBV - íþróttafélagi var söngur og gítarspil Gísla Grímssonar og Kristgeirs Grétars- sonar. Gísli söng og Kristgeir spilaði undir og þóttu þeir standa sig mjög vel. Sævar Geirsson söngvari tróð upp með þeim félögum í einu lagi, Hotel California við góðar undirtektir gesta. Gísli er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Nafn: Gísli Grímsson. Fæðingardagur: 14. febrúar 1992. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Bý heima hjá mömmu og litla bró. Draumabíllinn: Porshe. Uppáhaldsmatur: Humarsúpa. Versti matur: skyr.isll. Uppáhaldsvefsíða: folk.is/jordan. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Bítlarnir. Aðaláhugamál: Körfubolti. Hvaða mann/konu myndir þú helst vilja hitta úr mannkynssögunni? Michael Jordan. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Grand Canyon. Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag: Michael Jordan og Phoenix Suns. Ertu hjátrúarfullur: Nei. Stundar þú einhverja íþrótt: Körfubolta og golf. Uppáhaldssjónvarpsefni: Friends og Simpson. Besta bíómynd sem þú hefur séð: Lord of the rings myndirnar. Hvenær byrjaðir þú að syngja? Fyrir hálfu ári síðan. Hvernig gekk? Okkur Kristgeiri gekk bara mjög vel Hver er fyrirmyndin í söngnum? Paul McCartney. Eitthvað að lokum? Ég vil þakka Kristgeiri fyrir frábært undirspil og hvet alla til að æfa á hljóðfæri eða syngja. Píta með buffí Ég œtla ekki að þakka Sigga fyrir að skora á mig þar sem hann veit að ég er ekki mikill kokkur en ég œtla alla vega ekki að láta mömmu mína gera þetta fyrir mig eins og liann gerði. Hann sagði mér það nefnilega sjálfur í gœr að liann Itafi látið mömmu sína sencla inn uppskriftina sem birtist í síðustu Fréttum. Það vita allir að Sirrý liugsar vel um Sigga enda er liann alveg ósjálf- bjarga án hennar. Píta með buffi Ég ætla að bjóða upp á pítu með buffí. Fyrsta sem þarí' að gera er að fara niður í Vilberg og kaupa pítubrauð. Buffið kryddað vel og látið í ofn við 200 gráður. Á nteðan buffið er í ofni skal skera niður kínakál, gúrkur, lauk og papriku. Þegar búið er að snúa buffínu við og það orðið eins og fólk vill hafa það er pítubrauðið hitað aðeins og svo er buffíð setl inn í. Þegar þama er komið er mjög nauðsynlegt að sprauta mikilli pftusósu inn í brauðið áður en grænmetið er sett inn í brauðið. Galdurinn er að hafa nógu mikla pítusósu þar sem hún er bæði holl og góð. Karamellu Royalbúðingur I eftirrétt ætla ég að bjóða upp á karamellu Royalbúðing. Duftið er sett í skál og síðan skal hella hálfum lítra af mjólk í skálina. Þegar þessu er lokið skal hræra mjög vel og lengi og síðan er skálin sett í ísskáp í 35 til 40 mínútur. Gott er að vera búinn að þessu áður en aðalrétturinn er gerður. Þegar búðingurinn er tilbúinn er nauðsynlegt að borða hann með þeyttum ijóma. Nýfæddir ?cr Vestmannaeyingar Þann 17. febrúarsl. eignuðust Bryndís Snorradóttir og Davíð Friðgeirsson dóttur sem fengið hefur nafnið Anna Brynja. Hún fæddist í Danmörku og var 4950 grömm og 55 sm við fæðingu. Fjölskyldan býr í Danmörku. Vinnslustöðin býður 7. bekkingum í heimsókn Vinnslustöðin bauð nemendum 7. bekkjar grunnskólanna í heimsókn, Hamarskóla og Bamaskóla sinn hvom daginn. Binni í Vinnslustöðinni fór yfír sögu fiskvinnslu, hvaða bátar væm við veiðar, veiðarfæri, og framleiðslu fyrirtækisins. Því næst var nemendum boðið að sjá hluta af vinnslunni og að því loknu fór allur skarinn aftur upp í fundarsal Vinnslustöðvarinnar til að leysa verkefni. Það fór þannig fram að nemendur svöruðu spurningum úr efninu sem Binni hafði farið yfir en dregið úr réttum lausnum og tvenn verðlaun vom veitt. Að því loknu bauð Vinnslustöðin upp á pizzur og kók eins og hver gat í sig látið. Virtust nemendur ánægðir með boðið og ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér vel. Vinnslustöðvarmenn íhuga að bjóða nemendum til sín á hverju ári í samvinnu við kennara. Védís Guðmundsdóttir, þverflautuleikari, hélt útskriftartónleika sína í Safnaðarheimilinu sl. föstudag en hún er að ljúka námi frá Tónlistarskóla Kópavogs og hyggur nú á áframhaldandi nám í London. Ásamt Védísi lék á þessum tónleikum Unnur Fadila Vilhelmsdóttir, píanóleikari og vom Ijögur verk á efnisskránni, eftir S. Emanuel Bach, Gabriel Fauré, Bohuslav Martinu og Mist Þorkelsdóttur. Um fjömtíu áheyrendur vom á tónleikunum og nutu þessarar stundar en ljóst er að Védís er metnaðarfullur tónlistarmaður sem á eflaust eftir að ná langt í sinni grein. I lokin þakkaði Sigurgeir Jónsson, menningarfulltrúi bæjarins, flytjendum fyrir hönd bæjar- stjómar og færði þeim blóm. á döfinni Maí 28. Höllin: Eyjavision kl. 21.00. 28. -30. Dagarlita og tóna. 29. -30. Tónleikar í Akóges - Cuílaug Ólafsdóttir og íyvör Pálsdóttir. 29.-30. Hvítasunnumól SJÓVE.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.