Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Page 180

Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Page 180
2. Virðing mjólkurafurða 1901-1945 Bæði Skipulagsnefnd og Búnaðarskýrslur 1951 virða mjólk eins og aðrar land- búnaðarafurðir við áætlað skilaverðmæti til bónda fyrir óunna mjólk. Sú virðing sem hér verður reynd er annars eðlis og virðingaraðferðir Skipulagsnefndar og Búnaðar- skýrslna 1951 því ekki athugaðar. Öðru máli gegnir um magnáætlanir, sem í báðum tilvikum eru þannig: Framtaldar kýr og kelfdar kvígur x meðalkýmyt í kg. = áætlað árlegt magn mjólkur í kg. Um þetta segir svo á bls. 176 hjá Skipulagsnefnd: „Upplýsingar um mjólkurmagnið fáum vér úr skýrslum nautgriparæktarfélaganna. Þau byrjuðu starf sitt árið 1903. Fyrir árin 1901-1915 er reiknað með meðalnythæð í nautgriparæktarfélögunum árin 1906-1915. Úr því er reiknað með meðalnythæð hvers árs, samkvæmt skýrslum félaganna. í þessum skýrslum eru kýr taldar, hvort sem þær hafa verið allt árið á skýrslu eða aðeins brot úr ári. Virðist ástæðulaust að ætla landsmeðaltalið lægra“. í Búnaðarskýrslum 1951, bls. 56, segir svo varðandi áætlun 1935-1949: „Hér er mjólkin áætluð talsvert miklu minni en svarar til þess, sem Skipulagsnefnd atvinnumála áætlaði fyrir árin fram að 1935. í áliti Skipulagsnefndar 1936 er meðal- kýmyt talin 2.400-2.600 kg. á ári, 1925-1935, og er þá miðað við kýr og kelfdar kvígur. Hér er nytin, sömuleiðis miðað við kýr og kelfdar kvígur talin innan við 2.000 kg. á ári 1935-1938, og hefur meðalnytin þó eflaust verið eins mikil þau ár og árin á undan. Ástæðan til þess, að Skipulagsnefnd áætlaði kýmytina svona mikla, var sú, að þá voru litlar heimildir aðrar fyrir hendi um þessi efni en skýrslur nautgripafélaga og ríkisbúa. Skýrslur nautgriparæktarfélaganna eru miðaðar við fullmjólka kýr, en nyt þeirra er talsvert miklu meiri en nyt allra kúa og kelfdra kvígna. Auk þess er talsvert miklu meiri meðalnyt kúa hjá þeim bændum, sem eru í nautgriparæktarfélögum, en hinum, sem eru utan félaganna, og hjá ríkisbúum er meðalnytin meiri.“ Þótt ekki sé nefnt í Búnaðarskýrslum 1951, er bersýnilegt að hér er byggt á grein í Árbók landbúnaðarins 1950, „Mjólkurframleiðslan“, en þar segir svo eftir að fyrst er tilfærð áætlun gerð á sama hátt og áætlun Skipulagsnefndar: „Þessi áætlun er tvímælalaust nokkm hærri en rétt mundi reynast, ef öll mjólk yrði nákvæmlega vegin og talin saman. Tvennt ber til þess. Meðalársnyt er talin eins og meðalársnyt í nautgriparæktarfélögunum, en þar er ársnyt kúnna af metnaðarástæðum víða talin í hæsta lagi, og þar að auki er meðalársnyt kúa í þeim félagsskap talsverðum mun hærri en utan félaganna. Mun eigi of lítið gert úr þeim mun, þó að ráð sé fyrir því gert að meðalársnyt á öllu landinu sé 19% lægri en meðalársnytin í nautgriparæktarfélögunum. í annan stað er meðalársnyt í nautgriparæktarfélögunum miðuð við fullmjólka kú, en í yfirlitinu hér að framan er miðað við kýr og kelfdar kvígur í fardögum (og ársbyrjun frá 1947) og má gera ráð fyrir að allt að 25% af þeim sé ekki fullmjólka á árinu. Kvígumar koma sumar ekki til að mjólka, fyrr en nokkuð er á árið liðið, auk þess sem fyrsta kálfs kvíga mjólkar sjaldan nema 50-60% af því sem fullorðin kýr mjólkar, en um eða yfir 10% af fullorðnu kúnum er fellt á árinu, venjulega að haustinu, og er varla hægt að gera ráð fyrir því, að þær kýr skili nema 178
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238

x

Þjóðhagsreikningar 1901-1945

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðhagsreikningar 1901-1945
https://timarit.is/publication/1003

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.