Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 3

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 3
„Johannes Kriiss“ er togari, 56 metra langur. Hann er stærsta fiskiskipið, sem Carl Kaampf í Bremerhaven gerir út. Skipið var smíðað hjá Werk Seebeck í Bremerhaven og var sjósett 1956. Ef litið er til baka, þá má segja, að þessi togari sé síðasti hlekkurinn í keðju þeirrar þróunar fiskiskipa ,sem nú er að syngja sitt síðasta. Útgerðarmenn, skipa- smíðastöðvar og skipaverkfræðingar höfðu lagzt á eitt í því skyni, að srníða fiskiskip, er að stærð og gerð fullnægði hinum ströngustu kröfum. Næsta stig þróunarinnar verður í nán- ustu framtíð, að byggð verða hin full- komnustu verksmiðjuskip, þar sem hrá- efnið, sem aflað er úr sjónum, verður fullunnið til sölu. Við byggingu togarans var kappkostað að sameina hraða og traustleik og sjó- hæfni. Fisklestar voru hið bezta úr garði gerðar. íbúðir skipverja voru vistlegar og rúmgóðar. Kom þá meðal annars til kasta ráða- manna, hvort skipið skyldi vera gufuskip eða dieselskip og var síðari kosturinn tek- inn. Það er ekki einungis, að vélar skipsins o<z fyrirkomulag í vélarrúmi sé af full- komnustu gerð, heldur eru tæki öll í brúnni hin fullkomnustu og svara á allan hátt fyllstu kröfum tímans. Þar með er yfirmönnum togarans fengin í hendur hin fullkomnustu hjálpargögn, er sækja þarf á hin fjarlægu mið við Grænland og Ný- fundnaland, svo og við leit að nýjum fiskimiðum. Meðal annars eru tvö radartæki um borð, einn Decca-radar, sem er nauðsyn- legur í dimmviðri, og er hætta gæti staf- að af ís. Þá er Kelvin-Hughes-radar, sem gegnir sama hlutverki. Auk þessa hefur togarinn Loran-tæki, sem er hið nauðsyn- legasta við staðarákvarðanir við Grænland og önnur fjarlæg veiðisvæði. Þetta tæki, er vinnur í sambandi við amerískar sendi- stöðvar á íshafssvæðinu. Dýptarmælirinn í „Johannes Kruss" er mjög fullkominn. Hafsbotninn og fiskitorf ur eru sýndar með línuriti og er hægt að lóða niður á 500 metra dýpi. Auk þessa er annar dýptarmælir af venjulegri gerð í skipinu. Loftskeytatæki er fyrir samband við út- lönd og stuttbylgjusamband. Hátalara- kerfi er í togaranum, er gerir það að verk- um, að skipstjórinn á stjórnpalli getur náð beinu sambandi við hvern einasta skip- verja. Nú mundi kannske margur leikmaður spyrja: „En hvernig í ósköpunum má það ske, að svo dýrmætum og margbrotnum tækjum skuli vera troðið um borð í skip, sem stundar eingöngu fiskveiðar?" Þessu er til að svara, að fiskiskip, sem er búið til veiða í úthöfum, verður ekki aðeins að vera gott sjóskip, heldur verð- ur það umfram allt að vera þannig úr garði gert, að þar sé gott að vinna og skip- ið búið fullkomnum öryggistækjum. Ann- að gildir ekki fyrir^kip, sem stunda fisk- veiðar í norðurhöfum í svo til öllum veðr- um. Sannleikurinn er sá, að því aðeins getur

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.