Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Page 4

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Page 4
4 Nýtt S O S verið að vænta góðs árangurs af þesshátt- ar veiðiferðum, að skipið sé búið nýtízku tækjum og allt sé hagnýtt sem bezt. Þetta er sameiginleg reynsla skipasmíðastöðv- anna, útgerðarmanna og skipstjóra. Kjörorðinu „Öryggið umfram allt“ var fylgt út í yztu æsar, er Johannes Krúss var byggður. Aðbúð skipshafnarinnar skyldi líka vera svo góð, sem á yrði kos- ið. íbúðir skipstjóra, stýrimanna og ann- arra skipverja voru aftur á skipinu. Ur þessum vistarverum öllum er innangengt á stjórnpall. Þegar skipið er á leiðinni á fiskimiðin eða heim, þurfa skipverjar ekki að stíga fæti sínum á opið þilfar. Er það mikil framför frá hinum eldri og minni fiski- skipum, þar sem hásetar, netamenn og vélamenn hafa sínar íbúðir framú skip- inu. Það er ómetanlegur kostur, þegar haldið er á fjarlæg fiskimið á norðurslóðum, að hafa heldur þetta fyrirkomulag. Tökum til dæmis matmálstímana, hve þægilegt er fyrir menn að fara úr káetun- um inn í matsalinn, en á öðrum fiskískip- um verður matsveinninn oft að leggja sig í hættu til þess að koma matnum fram í til hásetanna. f veiðiferðum á hin fjarlægu fiskimið á norðurslóðum hefur þetta fyrirkomulag ómetanlega kosti. Áður fyrr var nær ein- göngu veitt á Norðursjónum, en nú er sótt á hin fjarlægustu mið og nýrra miða er stöðugt leitað. Þetta veldur því, að veiðiferðirnar verða miklu lengri en áð- ur. Og oft og tíðum er siglt um svæði, þar sem stormarnir geisa og skipið liggur undir sífelldri ágjöf. Fjarlægustu fiskimiðin, er Þjóðverjar sækja á nú, eru undan austurströnd Labra- dor. Þangað eru 2420 sjómílur frá Brem- erhaven. Þetta er sjö til átta sólarhringa sigling og fer nokkuð eftir því, hve mikið ísrek er við suðurodda Grænlands. Veiði- tíminn er venjulega um 10 sólarhringar. Framtíðin sker úr því, hvort einnig verður að leita á fiskimiðin við Nýfundna- land, þar sem Bandaríkjamenn, Spánverj- ar og Portúgalar hafa einir fiskað enn sem komið er. Það mun hafa í för með sér, að veiðiferðir, sem hingað til hafa staðið 24 sólarhringa gætu staðið 40 sólarhringa. Og þá yrði að vera fyrir hendi aðstaða til að salta fiskinn. Togarinn Johannes Krúss hefur öll skil- yrði til þess að sækja á þessar veiðislóðir við Nýfundnaland. Skipið getur haft 30 sólarhringa útivist. Olíugeymarnir taka 220 tonn. Togarinn notar 7 tonn af brennsluolíu á sólarhring. Ganghraði hans er 13 mílur og getur hannn því farið 312 sjómílur á sólarhring. I því tilfelli, að togari þessi verði send- ur á veiðar við Nýfundnaland, er sá mögu- leiki fyrir hendi að hann taki olíu til við- bótar annaðhvort í St. Johns á Nýfundna- landi eða í frönsku nýlendunni St. Pierri de Miquelon, sem liggur við suuðvestur- odda Nýfundnalands. En þegar halda skal á þessar fjarlægu slóðir við Grænland og Nýfundnaland, verður að athuga eitt mjö mikilsvert at- riði: Veiðin hvern sólarhring verður að vera það mikil, að skipið fyllist fljótt, svo unnt sé að hefja heimferðina sem allra fyrst. Þetta þýðir, að þessar veiðiferðir svara því aðeins kostnaði, að fiskigengd sé mikil. Við höfum nú lesið nokkuð um togar- ann Johann Krúss og búnað hans til fisk- veiða á fjarmiðum. Þó mætti bæta ýmsu við, er leikmönnum mætti verða til nokk- urs fróðleiks.

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.