Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Page 7

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Page 7
Nýtt S O S 7 heldur þeim föstum. Og kannske seiðir það þrátt fyrir allt og án þess, að menn geri sér það fyllilega ljóst. Sjómennirnir hafa kannske seltuna í blóðinu. Þeir verða að geta andað að sér saltri hafgolunni. Hvernig væri annars hægt að skýra það, að alltaf fara menn aftur til sjós, fylgja skipi sínu hverja veiðiferðina af annarri. Svo er og með þá 23 sjómenn, sem nú leggja enn einu sinni á hafið á Johannes Krúss. Dagarnir á sjónum líða án teljandi við- burða. Vöktum er skipt, hvíld og vinna á víxl. Á vaktinni undirbúa menn veiðarfærin fyrir komandi daga við Grænland. Þegar veiðin hefst verður hvíldartíminn ærið takmarkaður, ekki sízt ef varpan rifnar eða eitthvað annað fer úr skorðum. Einn þessara dag stefnir Johannes Kruss norður sundið milli Shetlands og Orkn- eyja út á opið Atlantshafið. Klettabelti þessara tveggja eyjaklasa eru heldur kuldaleg á að líta. Áhrifin, sein þessi landsýn vekur, eru ekki beint upp- örfandi. Manni gæti jafnvel dottið í hug að skaparinn hefði verið í slæmu skapi og kastað þessum klettaeyjum á haf út, af því að hann hafi ekki vitað, hvað hann ætti að gera við þær, og þá hafi hann grip- ið þetta ráð. Sjó þyngir mjög er norðar dregur. Öld- urnar rísa hátt yfir þilfarið og togarinn er nú undir stöðugri ágjöf. Hásetarnir á Johannes Krúss hafa fyrir löngu farið í klofháu gúmmístígvélin og olíustakkana. Án slíkra hlífðarfata er óhugsandi að vinna á þilfari. Ágjöfin mundi gera hvern mann blautan inn að skinni á samri stundu. Enn er þetta allt saman forleikur. Svo hefjast hinir löngu og ströngu dagar á fiskimiðunum við Grænland, veiðidagar — og nætur. Þegar veiðiskapurinn hefst fyrir alvöru, verða frívaktir í koju, reglulegir matmáls- tímar og hlý og þurr föt fjarlægur óska- draumur. Veiðitúrarnir á miðin milli Grænlands og Labrador eru mikil þolraun. Vinnan er mjög erfið og framkvæmd við hin verstu skilyrði, í bitrum kulda og bleytu, í ís og snjó; hendurnar verða vatnsósa, stífar af kulda og saltið étur sig inn 1 holdið, ef skráma kemur á hörundið. Veiðitækin eru erfið í meðförum, en verst er, ef eitthvað fer aflaga, sem oftast skeður þá er verst gegnir. Og sjómennirnir eru ekki í skapi til að syngja sálma meðan þeir eru að tosa hverju halinu eftir annað upp úr dimmu djúpi hafsins. Þetta er miskunnarlaust líf og það mótar skapið. Ægir sýnir enga linkind. Hann situr um að hremma menn og skip. Það er takmark hans og því nær hann of oft. Og með hverri sjómílunni færist Jo- hannes Krúss nær þessu ísavíti, sem um- lykur Grænlandsstrendur. o O o Tosarinn er nú taddur skammt undan Hvarfi við suðurodda Grænlands. Grænland er stærsta eyja Evrópu. ís- lendingurinn Eiríkur rauði fann Græn- land árið 900. Johannes Krúss lét úr höfn í Bremer- haven 23. janúar. Nú er föstudagur 30. janúar. Rétt í þessu var stýrmaðurinn að ljúka við að skrifa í dagbókina. Hann Jes yfir það, sem hann hefur skrifað: Klukkan 06,00, vindur austan 3—4. Lojt- vog 1004. Stýrð stefna 270°, drift i°, rétt-

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.