Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 20

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 20
20 Nýtt S O S 7. febrúar líður að kvöldi. Og nýr dagur rís úr djúpi fimbulvetrar- ins. Og nú vex storminum ásmegin. Veiði- tækin sópast fyrir borð. En í þvílíkum veð- urham er ógerlegt að ná inn vörpunni. 8. febrúar líður líka að kvöldi, langur dagur og ömurlegri en orð fá lýst. Aldrei er mönnum ljósara en á slíkum dögum, hve varnarlausir þeir eru gegn ofurveldi náttúruaflanna þrátt fyrir alla tækni nú- tímans. Þann 9. febrúar slær ógnarhrammur Norðra þyngri högg en nokkru sinni fyrr. Mikill sjór brotnar á þilfarinu. Lestar- hlerar á aftari fiskilest sópast af. Þetta er stórhættulegt, því viðbúið er, að sjór streymi niður í lestina þá og þegar og mundi þá óþarft að spyrja að leikslokum. Þetta verður því að koma í veg fyrir, hvað sem það kostar. Tveim hásetum er falið að byrgja lestar- opið. Þeir verða að fara út á þilfarið, sem liggur undir stöðugri ágjöf. Það dylst eng- um, að þetta er stórhættulegt verk. Það veit líka annar stýrimaður, Rudi Adebahr, sem er yfirmaður á vaktinni. Það er orðið svo dimmt, að hann getur ekki fylgzt nákvæmlega með hásetunum, sem eiga að vinna verkið. Honum bregður því í brún, er hátt hróp yfirgnæfir stormhljóðið: „Maður fyr- ir borð!“ Stýrimaðurinn hleypur út á þilfarið og reynir að kasta út bjarghring. En nú er komið um 60 sentimetra þykkt íslag . á skipið allt og bjarghringurinn er frosinn fastur. Það tekur því stýrimann nokkra stund að plokka hann lausan með hnif. Loks fær liann þó kastað hringnum. En kaðalendinn á hringnum hefur skor- izt sundur, er stýrimaðurinn var að losa hringinn. Adebahr stýrimaður varpar hringnum fyrir borð. Voigt liáseti nær hringnum, en hann og félagi hans, Redlinghöfer að nafni, fóru báðir fyrir borð, er sjór. reið yfir þar sem þeir voru að vinna við lest- ina á glerhálu þilfarinu. En þar sem taugin milli bjarghringsins og skips hafði skorizt sundur, ber Voigt fljótt nokkuð frá skipinu. Adebahr stýri- maður kastar þá öðrum bjarghring og nú var taugin lieil. Voigt háseti fær einnig náð þeim hring. Það á því að vera öruggt um björgun hans. Aftur á móti ber Redlingshöfer allangt frá togaranum. Hann reynir þó að koma í veg fyrir, að hann fjarlægist skipið, en það er liægara sagt en gert í ölduróti og ísköldum sjónum. Hann hrópar hátt á hjálp. Þá, er hásetarnir féllu fyrir borð, var vindur 9—10 stig. Sjávarhiti var um frost- mark. Lofthiti var hinsvegar um ein gráða. Þegar þetta skeði var skipið ,á drjúgri ferð undan vindi. í æsingu augnabliksins, eins og oft vill verða, hafði Adebahr stýrimaður gleymt að láta stöðva vélina. En einmitt þessi gleymska stýrimanns- ins eða yfirsjón hafði orðið til happs, því hefði vélin verið stöðvuð tafarlaust, mundi mennina hafa borið enn lengra frá skip- inu. Sierck skipstjóri fór á stjórnpall strax og slysið varð. Paukstadt, fyrsti stýrimað- ur, er líka kominn á þilfar. Hann stendur í hópi annarra skipverja, reiðubúinn að bjarga, sé þess nokkur kostur. En það er lítið unnt að gera annað en bíða átekta. Það er auðséð, að Voigt er fullkomlega

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.