Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Qupperneq 23

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Qupperneq 23
Bremen afhenti Albert Sierck skipstjóra og fyrsta vélstjóra, Georg Kohrt, stórkross Sambandslýðveldisins. Rudolf Nejedlo, loftskeytamaður, var einnig sæmdur heið- ursmerki. Allir aðrir skipverjar voru og sæmdir heiðursmerkjum. o O o í undirrétti í Bremerhaven var lögð fram skýrsla Siercks skipstjóra um þessa síðustu ferð frá Bremerhaven til Græn- lands. Það skeði 17. febrúar 1959. Sierck skipstjóri kemst m. a. svo að orði í skýrslu sinni: „Þann 30. janúar 1959, um klukkan 21,42, komum við á slysstaðinn, svo að segja í sama mund og loftskeytamaðurinn tók á móti tilkynningu um, að skipið væri að sökkva. Loftskeytamaðurinn afhenti mér skrif- lega tilkynningu um stöðu Hans Hedtoft. Þegar neyðarkallið barst, sat ég að kvöld- verði, en fór þá tafarlaust á stjórnpall og var þar unz við vorum látnir hætta leit- inni. Þann 31. janúar, um klukkan 9, komum við inn í ísasvæðið. Jakarnir voru yfirleitt ekki stórir, en inni á milli voru nokkrir svo sem tíu til fimmtán metra upp úr sjó. Allt í einu rakst sfefni togarans á jaka, sem var um fimm metra upp úr sjó. Áreksturinn var talsvert harður, en eng- inn leki kom að togaranum. Meðan á leit- inni stóð vorum við að sjálfsögðu með full ljós og alla ljóskastara kveikta. Skipið hef- ur einn stóran ljóskastara á miðunarþil- fari og nokkra minni, sem eru á stjórn- palli og þilfari. Johannes Krúss hafði gúmmíbáta innan- borðs. Okkur var sagt, að Hans Hedtoft hefði líka haft slíka báta. Við sáum Hans Hedtoft aldrei. Hins vegar sáum við á reki hlerabút um tvo og ----------------------Nýtt S O S 23 hálfan metra á einn veginn og einn og hálfan metra á hinn. Það er 4kki ólíklegt, að þessi plankabútur hafi verið úr skipinu. Önnur hlið hans var máluð ljósgrá, en hin var ómáluð. Því miður tókst okkur ekki að ná inn bút þessum. Eg get ekki fullyrt, að hann hafi verið úr Hans Hed- toft. Fjarlægðin milli skipanna var í fyrstu 25 sjómílur. En við þá gátum við ekki siglt með fullri ferð sökum ísreks svo ferð- in tók okkur þrjár klukkustundir. Loftskeytamaðurinn okkar sendi nauð- stadda skipinu þau boð, að það skyldi skjóta á loft hvítleitum rakettum, ef unnt væri þá að greina hann úr nokkurri fjar- lægð. Við sáum aldrei nein ljósmerki frá skipinu, enda þótt við gerðum okkur sér- stakt far um að skyggnast eftir þeim. Eg hafði einnig gefið merki með sterkasta Ijóskastara okkar með því að beina ljós- keilunni í ýmsar áttir og beint upp. Eg lét spyrjast fyrir um, hvort menn á Hans Hedtoft hefðu séð þessi merki okkar, en svo var ekki. Þó gat fjarlægðin milli okk- ar þá ekki verið meiri en þrjár sjómílur. Eg bað loftskeytamanninn á Hans Hed- toft að miða með loftskeytamiðunartækj- um sínum á Prins-Christiansund og láta gefa mér upp gráðatölur og hið sama ætl- aði ég að gera. Eg ætlaði þá með því að bera saman tölurnar að reikna út fjar- lægð okkar frá hinu nauðstadda skipi. Þetta gerði ég, og það var líka gert á Hans Hedtoft. Við skiptumst á þessum tölum okkar. Það kom í Ijós, að fjarlægðin var ekki nema þrjár til fjórar sjómílur. Eg vil taka það sérstaklega fram, að stað- arákvörðun er erfið á slyssvæðinu. Við höfðum að vísu Lorantæki um borð, en það er hætt við skekkjum vegna lofttrufl- ana.

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.