Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 24

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 24
24 Nýtt S O S Eftir móttöku neyðarkallsins breyttum við stefnu oíkar, sem var 320 gráður rétt- vísandi. Skömmu síðar fengum við mið- unarmerki frá Hans Hedtoft og breyttum þá stefnunni á 226 gráður réttvísandi. Við miðuðum Hans Hedtoft fjórum sinnum og höguðum stefnu okkar í sam- * ræmi við þær miðanir. Stefnan var milli 215—226 gráður. Við höfðum farið á þess- um miðunargeisla rúmar 20 sjómílur. Við hefðu getað án áhættu fyrir okkur, tekið um borð alla áhöfn og farþega á Hans Hedtoft. Loftskeytamenn beggja skipanna höfðu skipzt á orðsendingum um hvernig björgunarstarfinu mundi hagað í öllum aðalatriðum. Allan tímann, meðan leitin stóð yfir, var brúarvakt hjá okkur þannig skipuð: Auk mín var þar annar stýrimaðurinn, ennfremur þrír hásetar og þrír menn á varðbergi uppi. Framá var ekki hægt að hafa menn sökum illveðurs. Frost var fjór- ar gráður og stöðug ágjöf. Ratsjáin var alltaf í gangi og athuguð að staðaldri. Við töldum okkur hafa séð dökk- an blett á ratsjárskerminum og stefndum á hann, enda var hann í beinni stefnu á leið okkar til Hans Hedtoft. En þetta reyndist vera stór ísjaki. Þetta mun hafa verið nokkru fyrir klukkan 21,42. Við komumst því aðeins leiðar okkar, að við gerðum stöðugar athuganir í rat- sjá til beggja handa. Þegar við sáum mik- inn í framundan, urðum við að sveigja fyrir hann. Sterki ljóskastarinn okkar kom í góðar þarfir. Þrátt fyrir myrkur og snjókomu lýsti hann upp 2—300 metra leið fram- undan.“ Hér lýkur skýrslu Siercks skipstjóra. o O o Johannes Kriiss var, að lokinni þessari sögulegu ferð, settur í skipasmíðastöð til viðgerðar. Hafði togarinn dælzt allmikið við það að rekast á ísjakann og var von- um betur sloppið. Þá er einhver ininntist á þessar skemmd ir á skipinu við eiganda þess, Helmuth Kámpf, fórust honum orð á þessa leið: „Þetta er ekki til þess að hafa á orði. Á sjó gera menn allt, sem í þeirra valdi stendur til þess að bjarga þeim, sem í háska eru staddir. Á morgun er það ef til vill okkar skip og menn, sem þurfa á hjálp að halda." ENDIR. EFTIRMÁLI. Aðfaranótt miðvikudags 7. október s. 1. rak bjarghring úr Hans Hedtoft á land í Grindavík. Hringurinn er óskemmdur og greinilega merktur HANS HEDTOFT, KÖBENHAVN. Magnús Hafliðason, bóndi á Hrauni í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, fann hringinn. Er hann kom út um morgun- inn ,sá hann hvar glampaði á eitthvað hvítt í fjörunni. Hann gekk þá út með fjörunni og fann óskemmdan björgunar- hring á malarkambinum. En um nóttina hafði verið mikið rok á suðaustan og brim, en logn um morguninn. Magnús hafði hringinn heim með sér, en um kvöldið hafði hann orð á því við bílstjóra á áætl- -unarbíl Grindvíkinga, að hann hefði fundið björgunarhring merktan Köben- havn. Bílstjórinn sá þegar í stað, að hring- urinn var af Hans Hedtoft. Bílstjórinn sagði Henry Hálfdánarsyni, framkvæmda- stjóra Slysavarnafélags íslands frá þessum merkilega fundi, en Henrý bað Magnús bónda að hafa hringinn með sér, er hann yrði næst á ferð í Reykjavík.

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.