Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Qupperneq 25
Hringurinn er með öllu óskemmdur
þótt liann hafi velkst á hafi í níu mán-
uði. Nokkrar skellur eru komnar í rauða
litinn, en áletrunin ómáð. Á tveim stöð-
um má greina, að eitthvað hafi höggvizt
í hringinn og skeljahröngl að byrja að
setjast á kaðalinn, sem er annars alveg
heill. Enginn spotti er í hringnum og tóið
hvergi slitið, og er því líklegast, að hring-
urinn hafi verið leystur frá skipinu, en
ekki slitnað frá því.
Magnús bóndi á Hrauni er 69 ára gam-
all, fæddur og uppalinn á Hrauni. Hann
segir, að reki sé oft mikill á Hraunsfjöru,
en mest hafi rekið á stríðsárunum.
Fjaran liggur vel við reka, því hún er
fyrir opnu hafi. Bjarghringir eru mjög
léttir og telur Magnús líklegast, að hring-
urinn af Hans Hedtoft hafi borizt fyrir í
suðurátt undan norðanáttinni í vetur, en
svo uppundir suðurströndina í vestanátt-
inni og loks skolað upp undan suðaustan-
áttinni.
Þá er þess að geta, að laugardaginn 24.
október. s. 1. fannst annar björgunarhring-
ur af Hans Hedtoft.
Þennan morgu fóru bændur í Fagradal
á Hjörleifshöfðafjöru, sem er á Kötlu-
tanga beint suður af Hjörleifshöfða. Sáu
þeir eitthvað hvítleitt liggja á fjörusand-
inum ofarlega. Gáfu þeir þessu ekki gaum
í fyrstu, en héldu áfram austur fjöruna í
jeppa. Á vesturleið fundu þeir nokkrar
netakúlur. Fóru þeir nú að aðgæta þenn-
an hvítleita hlut, og er þeir gættu betur
að sáu þeir, að þetta var bjarghringur. Var
engin áletrun á þeirri hlið hringsins, er
upp snéri. En á hinni hliðinni, er niður
snéri, stóð HANS HEDTOFT, KÖBEN-
HAVN. Hringurinn var allmáður, en á-
letrun þó vel læsileg. Ekkert annað fannst.
-----------------------Nýtt S O S 25
sem líklegt mætti telja, að væri úr Hans
Hedtoft.
Hringurinn hafði höggvizt á nokkrum
stöðum og hafði skorizt talsvert á einum
stað. Gæti þar verið um að ræða far eft-
ir granna línu, sem bundin hefði verið
urn hann.
Oft rekur ýmislegt brak á þessum slóð-
um, t. d. bjarghringi og hluti úr skipum.
Oft hafa fundizt flöskuskeyti, sem hefur
verið varpað í sjóinn úti fyrir austurströnd
Ameríku. Fyrir nokkrum árurn fannst
flöskuskeyti, sem var varpað í sjóinn suður
af suðurodda Grænlands. Það var rúma
átta mánuði á leiðinni. Telja menn ekki
ólíklegt, að fleira kunni að hafa rekið úr
Hans Hedtoft við suðurströndina eða
muni reka síðar, en víða er erfitt að kom-
ast á fjörur, og þeir, sem lengst eiga að
fara, vitja kannske ekki reka oftar en
einu sinni á ári.
SSSSSSSS8SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS3SSS3SS2SSSS3SS3SSSSS£SSSSSSSSS£SSS£S£’
Nýtt SOS
flytur eingöngu frásagnir af sönnum at-
burðum. Flestar þessar frásagnir segja frá
örlögum skipa og áhafna þeirra í baráttu
við hamfarir náttúruaflanna. Sá, sem eign-
ast ritið frá byrjun eignast strax vísi að
sögu skipanna á hafinu.
Nýtt SOS fæst enn frá byrjun og kostar
með yfirstandandi árgangi kr. 220,00. —
Gerist áskrifendur. Áskriftargjaldið er kr.
100,00, sem greiðist fyrirfram.
Nýtt SOS
Pósthólf 195.
Vestmannaeyjum.