Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Side 26

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Side 26
26 Nýtt S O S SOS — Við sökkvum! Niðurlag. „Er annars nokkuð að gera skipinu til bjargar? spurði hann Copland. Fyrsti stýrimaður svaraði, að hann teldi það ólíklegt, en hann ætlaði samt enn einu sinni að líta á skaðann. Hann fór um allt skipið, en það tók hann ekki langan tíma að komast að ákveðinni niðurstöðu: Ath- enia var dæmd til tortímingar. Það var kaldhæðni örlaganna, ályktaði hann, að hefði tundurskevtið hæft aðeins fjórum fetum framar, hefði hann getað bjargað skipinu. Þá hefði verið hægt að stöðva sjóstrauminn inn í skipið og draga það til hafnar. Þegar Copland hafði lokið athugunar- för sinni, var aðeins einn björgunarbátur eftir, nr. 7A, og hann var að því kominn að vera fylltur að viðstöddum Cook skip- stjóra, sem persónulega vildi fullvissa sig um, að það gerðist án taugaæsings eða upphlaupa. Það hafði verið létt að sýna ró og virðlueik, meðan enn voru björg- unarbátar eftir. Þegar síðasta bátnum væri rennt á sjóinn, yrði útlitið annað, því það var ekki pláss fyrir alla. En þrátt fyrir það komu allir fram með ró og stillingu, og sumir jafnvel veigruðu sér við að taka plássið í bátnum fyrir öðrum. Að lokum var síðasti báturinn fullskip- aður við skipssíðuna, og eftir á þilfarinu, í kringum Cook skipstjóra, stóð hópur manna, 22 í allt, og störðu með sótug og svitastorkin andlit út í myrkrið á eftir bátnum ,sem rak frá. Copland tilkynnti skipstjóranum, að þessir 22 og Don loftskeytamaður í loft- skeytaklefanum væru þeir einu, sem eftir væru um borð. 23 menn á sökkvandi hafskipi, 250 sjó- mílur frá næsta landi! Það voru einkenni- legar tilfinningar, sem mærðust meðal þessa litla hóps, sem stóð þarna yfirgefinn á þilfarinu. Cook skipstjóri gekk út að lunningunni, setti kalllúðurinn fyrir munninn og reyndi að kalla á einhvern hinna nærliggjandi björgunarbáta. Hann vissi, að margir þeirra, sem fyrst fóru frá skipinu, lágu nú og ráku um ekki meir en hálffullir . Að lokum kom bátur nr. 5, vélbátur frá stjórnborðssíðu, nógu nálægt til að heyra til hans. Gegnum kalllúðurinn gaf hann foringja bátsins, öðrum loftskeytamanni McRae, skipun um að fara til annarra báta og losa sig við svo mikið af fólki, að rúm yrði fyrir þá, sem eftir voru um borð í Athenia. McRae hvarf út í nóttina, en kom brátt aftur og tilkynnti, að enginn af hinum björgunarbátunum vildu taka fleiri far- þega um borð. Þá gaf Cook skipstjóri Portous þriðja stýrimanni skipun um að taka við stjórn- inni á bát nr. 5. Bátar, sem gátu rúmað 86 manns, ráku um úti í myrkrinu með aðeins 50 innanborðs. Hvort sem þeir kærðu sig um það eða ekki, skyldu þeir taka á móti fleiri farþegum. Portous lét sig renna á kaðli niður í bátinn, og far- þegarnir fimm, sem enn voru um borð í Athenia fylgdu honum. í loftskeytaklefanum hafði Don fengið fleiri svör við neyðarskeyti sínu. Klukkan

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.