Nýtt S.O.S. - 01.03.1960, Blaðsíða 28
á seyði. Frá möstrum þeirra og yfirbyggingum var „Admiral Hipper“
ekki sjáanlegur. Áhafnirnar á flutningaskpunum héldu þess vegna að
skotum tundurspillanna væri stefna gegn þýzkum flugvélum og grunaði
alls ekki, hve mikii liætta var á ferðum. „Admiral Hipper“ hætti nú
einnig að skjóta um stund. Hinir jrýzku tundurspillar Iiöfðu síðast
ekki tekið þátt í bardaganum. Einn þeirra, „Friedrich Eckoldt", for-
ingjaskip 5. tundurdufladeildarinnar, sem stjórnað var af deildarforingja
og skipherra Schemmel, reyndi senr hann gat að komast að brezku flutn-
ingaskipunum. Hinir tundurspillarnir voru hjá herskipi sínu. Hvorki
jDeir né „Eckholdt“ voru sjáanlegir íj'á Breturn. En það var einmitt
þetta, sem gerði yíirforingja skipalestarinnar órólegan.
„Gætið vel að, hvort þýzku tundurspillarnir koma í 1 jós! “ var skip-
un Sherbrookes. „Eg er hræddur við skyndiárás, meðan við eigum í
höggi við herskipið, að tundurspillarnir ráðist kannske úr suðri eða
vestri á skjólstæðinga okkar.“
Hann var að enda við að segja þetta, þegar sendiboði kom úr loft-
skeytaklefanum upp í brúna. Siglingastjórinn tók við seðli frá honum,
las það, sem á honum var og snéri sér síðan glaður í bragði að skip-
herranum: „Skeyti frá „Sheffield“, Sir! Burnett aðmíráll nálgast úr
suðri“. Sherbrooke las líka það, senr stóð á seðlinum og kinkaði kolli.
En andlitsdrættir hans hreyfðust ekki. En þó gat maður séð, að honum
létti. „Ágætt! Við þörfnumst kannske hjálpar. „Hipper“ hefur 8 20,3
cm .fallbyssur, en Orwell og við til samans átta 12 crn fallbyssur — ekki
beint árennilegt. Látið fregnina berast til allra stöðva!“ Það var gert,
og svo kvað við hátt húrrahróp. Áhöfnunum á brezku tundurspillunum
hafði fundizt, að þær væru dauðadæmdar. Meðvitundin um, að eiga
eftir að berjast við mikið olurefli hafði lamað hugrekki þeirra. Og hver
vissi, nerna um fleiri þýzk skip gæti verið að ræða, orrustuskip, senr
kynnu að koma l’ram úr þokunni þegar rninnst varði?
Áhyggjur Sherbrookes skipherra létu hann engan frið hafa. „Sendið
skeyti til „Obedient" og „Obdurate”, að þau sameinist aftur skipalest-
inni!“ kallaði hann til Robinsons.
Merkjavörðurinn sendi þessi boð með ljóskastara. Hann var samt ekki
hrifinn af því. „Obedient“ og „Obdurate", sem nú voru loks komin í
ljós, höfðu í nokkrar mínútur haldð sig að „Onslow“. og nú áttu þau
að hverfa aftur og „Onslow“ og „Orwell“ aftur að verða ein. —
„Óvinirnir aftur sjáanlegir!" hrópaði einn nrerkjamannanna. Já, snjó-
28
Nýtt S O S