Nýtt S.O.S. - 01.03.1960, Blaðsíða 33
orðinn skotspónn Admiral Hippers fylgdist með félaga sínum. Báðir
tundurspillarnir tóku nú til að nota gerfiþokutæki sín. Flutningaskip-
in öll héldu nú einnig í suður og fjarlægðust Admiral Hipper.
George Robinson hafði skyndilega fengið aðsvif. Stórskotaforinginn
hélt honum uppi; annars hefði hann hnigið niður. Það blæddi stöðugt
úr handleggnum á honum. Hjúkrunarmenn hirtu hann svo og lögðu
hann á sjúkraborðið, þar sem bundið er um sár hinna meiddu í orrust-
um, og honum var gefin sprauta, og bundið um sár hans. Síðan var
hann lagður í koju.
„Hvar eru óvinirnir?“ spurði nú skipherrann allt í einu. Læknirinn
hafði reist hann upp svo að hann sat.
„Stefnir fyrir norðan okkur í austurátt, Sir,“ svaraði fyrsti stýrimað-
ur. „Þeir elta okkur ekki. Fjarlægðin eykst. Skipalestin hefur ekki orðið
fyrir neinu tjóni.“ Sherbrooke kinkaði kolli. Hann var hálfmeðvitund-
arlaus. Það var aðeins skylduræknin, sem hélt honum uppi. Meðvitund-
in um það, a,ð örlög allra skipanna í skipalestinni JW 51 B hvíldi á
hans herðum.
„Snjóél hylur nú óvinina!“ hrópaði varðmaðurinn. En það stóð ekki
lengi. Snjóélinu létti aftur og „Hipper“ varð aftur sjáanlegur. Þjóðverj-
arnir héldu áfram að skjóta, en gerðu ekki beint árás. Kummetz aðmír-
áll hélt fast við upphaflega fyrirætlun sína. Hann beið eftir því, að
„Lutzow“-skipin gripu fram í. Fyrst þá, þegar þau voru komin í ljós,
skyldi allsherjarárás hafin á skipaflotann, bæði flutningaskipin og fylgd-
arskipin.
Um kl. 10,35 komu boð frá Kinlock skipherra á Obedient, að hann
hefði nú fengið yfirráð yfir öllum skipunum. Þá loks féllst skipherrann
á Onslow, Sherbrooke aðmíráll á, að yfirgefa brúna. „Er hægt að koma
auga á „Jamaica" og „Sheffield“?“ var síðasta spurning hans áður en
meðvitundarleysið náði tökum á honum aftur.
Nei, þessi brezku herskip höfðu enn ekki látið sjá sig. Hin hugrakka
barátta Sherbrookes skipherra hafði vissulega orðið að miklu liði. Þótt
tjónið virtist í skjótu bragði nokkuð mikið, var hér þó ekki um víð-
tæka eyðileggingu að ræða.
Skipalestin fjarlægðist nú Hipper-skipin. „Empiere Herald“ olíuskip-
ið, sem hafði dregizt aftur úr, var nú aftur komið í skipalestina. On-
slow reyndi nú, þótt hraðinn væri ekki orðinn mikill, að vera í broddi
fylkingar fyrir flutningaskipunum. Fyrsti stýrimaður hafði nú tekið við
Nýtt S O S
33