Nýtt S.O.S. - 01.03.1960, Side 35
lega tveir skipaflokkar, sem skjóta ,hvor á annann.“ En um þetta var
ekkert hægt að segja nákvæmlega. Það var ekkert hægt að botna í hvaða
skip voru óvinaskip eða ekki. Einnig urðu allar ástæður verri fyrir Burn-
ett aðmírál, af því hann vissi ekki vel, hvar skipalestina var að hitta.
Mælingar þær, sem Bretar liöfðu gert á sínum skipum undanfarna ó-
veðursdaga liöfðu farið mikið í rugling, svo að ekki var hægt að treysta
þeim. Kl. 10,32 komst Sheffield í tvö ný radarsambönd í austri. En
brezki aðmírállinn hélt í aðra átt. Þá varð hann, kl. 10,36, var við
nýja skotblossa, sem eins og seinna kom í ljós, stöfuðu af því, þegar
Admiral Hipper var að skjóta Bramble í kaf. Burnett stefndi nú í átt-
ina til sjóorrustunnar. Kl. 10,45 sast óþekkt skip, sem Iivarf brátt aftur.
Kl. 11,05 hafði Sheffield radarsamband á stjórnborða. Á sama tíma
kom svo skeyti frá Kinloch fregátuskipstjóra, sem skýrði frá stöðu brezku
tundurspillanna. Kl. 11,12 stefndi svo Burnett að lokum í suðiir. Kl.
11,30 kom hann auga á Admiral Hipper í 7 sjómílna fjarlægð. Nýr
þáttur í þessari flóknu sjóorrustu var að hefjast.
Orrustan um skipalestina var nú alltaf að nálgast úrslitin. Admiral
ITipper liafði á ný fengið vitneskju um, livar óvinirnir héldu sig. Lút-
zow-skipin voru einnig komin á staðinn. Burnett hafði bókstaflega kom-
ið á síðustu stundu til að skakka leikinn. Örlög skipalestarinnar héngu
á þræði. Flutningaskip bandamanna voru varla búin að breyta stefn-
unni í suður til að fjarlægjast Admiral Hipper, þegar korvettan „Hyd-
erabad“ kom auga á óþekkt skip framundan. Skipherrann á korvett-
unni gerði heldur ekki í þetta skipti neinum viðvart; hann virtist lialda,
að hér væri um rússnesk skip að ræða. Skipherrann á korvettunni Rliodo-
dendron var ekki eins bjartsýnn á hlutina. Hann kom auga á Skipin
kl. 10,45 °S oaf öllum eftirfylgjandi merki:
„Ókunn skip nálægt í suðurátt!“
Þessi ókunnu skip voru Liitzow og þrír tundurspillar. Þeir héldu á
undan skipalestinni frá suðaustri í norvestur. Skipherrann á Lutzow,
sem liét Stange, gat ekki almennilega áttað sig á aðstöðunni. Hann vildi
bíða eftir að veðrið batnaði og stefndi um, tíma í austur. Þess vegna
lenti Kummetz aðmíráll á Hipper í annað skipti saman við óvinina.
„Óvinaskip í austri!" hrópuðu varðmennimir á Obedient, þar sem
Kinloch var skipherra. Það hélt sig á bakborða við skipalestina. Snjó-
élinu var nýlega létt. Sjálfur gat Kinloch skipherra þaðan sem hann
stóð í brúnni einnig þekkt Lutzow-skipin, sem ennþá stefndu í austur.
Nýtt S O S
35