Nýtt S.O.S. - 01.04.1960, Page 11
hollenzk þjóðareinkenni. Reykháfurinn er málaður svartur og efst eru
dregnir tveir hvítir hringir.
Bahia Blanea siglir utan alfaraleiðar áleiðis til Brasilíustranda. Sjáist
reykur við hafsbrún eða siglutré, er vikið úr vegi. Áður sóttust þeir
eftir að ná liöfn, hlökkuðu til að heimsækja góða vini. Nú snérist
öll hugsun þeirra um, hvenær þeir kærnust heim til Þýzkalands.
Sumir meðal áhafnarinnar rnæla fast með því, að tafarlaust verði
snúið við og haldið heim til Þýzkalands. Það væri hægt að taka elds-
neyti á Kanaríeyjum.
\h'st væri sá möguleiki fyrir hendi.
En farmurinn til Brasilíu? Og hvernig mundi takast að koma verð-
mætu hráefni frá Brasilíu til Þýzkalands?
Sohst skipstjóri Iilustar á þessar velmeintu ráðleggingar. Hitt er annað
mál, að liann mundi fara sínu fram, þó allir aðrir um borð væru á
annarri skoðun.
Þá er og þess að gæta, að allt of löng leið er til Kanaríeyja og þær
liggja einmitt á aðalsiglingaleið óvinanna.
Það er farið yfir miðbaug jarðar og samkvæmt hefðbundjnni venju
eru nýliðarnir skýrðir með viðhöfn.
Sohst skipstjóri ákveður, er hann nálgast Brasilíu á 20. gráðu suður-
breiddar að sigla þar að nóttu til. Skipið fer í um það bil 30 sjómílna
fjarlægð frá C-abo Frio í skjóli næturinnar.
Suður af eynni Grade tekur Sohst stefnu í þveröfuga átt við þá, er liann
hafði siglt til þessa. Hann vonar, ef svo færi, að hann hitti fyrir brezkar
beitisnekkjur, sem lægju í leyni úti fyrir Rio, að hann gæti villt á sér
heimildir sem Hollendingur. Þá var líklegt, að brezku herskipin mundu
halda nppi njósnum á hinni venjulegu leið inn til Rio, því vafalaust
hafði brezki umboðsmaðurinn skýrt frá ferðum Bahia Blanca.
Bahia Blanca fer nú með fullri ferð, svo að segja „bakdyramegin“ inn
á höfnina í Rio.
Þessa nótt gengur enginn af áhöfninni til hvílu. Allir standa frívakt
ofanþilja. Fyllsta árvekni er fyrirskipuð.
Þegar komið er inn í landhelgi Brasilíu, innan sjónvíddar hafnarljós-
anna, tilkynnir Solist skipstjóri komu sína með loftskeyti.
Innan landhelgi Brasilíu geta Bretarnir ekkert aðhafzt.
Ekki er loftskeytið fyrr sent en heyra má glögglega í senditækjum
Bretanna. Það er eins og heil hersveit sé í nánd.
11
Nýtt. S O S