Heimilispósturinn - 24.06.1961, Blaðsíða 23

Heimilispósturinn - 24.06.1961, Blaðsíða 23
Ertu of feit? Kona, sem er feitlagin, og vill Kaida sér grannri, œtti að liafa t>að hugfast, að sykur og feit- Kieti er fæða, sem hún þarf að forðast að komi inn fyrir henn- ar varir, nema sem allra niinnst. Til eru töflur yfir hitaeining- ar í liverjum 100 grömmum ein stakra fæðutegunda. Nú er það svo, að við þyngjumst um eitt Sramm fyrir hverjar sex hita- einingar, sem við neytum um- íram það sem við þurfum — °g öfugt. Hér er sýnishorn af því, hvaða fæðutegundir þér ber fyrst og fremst að forðast, ef L þú vilt ekki fitna. Tölurnar eru hitaeiningar í hverjum 10 gr. Svínafeiti ................. 850 Smjör ...................... 760 Smjörlíki .................. 750 Súkkulaði .................. 500 Sykur ...................... 390 Hafragrjón ................. 365 Hveiti ..................... 350 Hrísgrjón .................. 340 Hins vegar skulu hér taldar upp aðrar fæðutegundir sem liafa færri hitaeiningar: Ýsa ...................... 115 Bananar .................. 100 Kartöflur ................. 90 Gulrætur .................. 45 Hvítkál ................... 35 Tómatar ................... 20 Salat ...................... 20 Hað eru athugandi, að brauð og nýmjólk er fitandi, en græn- meti og undanrenna fitar lítið; en hafa samt ágætt næringar- gildi: Ýmsar magrar kjöttegund- ir, sem ekki eru steiktar í feiti, eru ekki heldur fitandi, eink- ur nautakjöt og lifur. HVERN LANGAR TIL AÐ HEYRA ? Nákvæma lýsingu á heilsu- fari þínu? Hvaða matur þér þykir vond- ur? Hvað þig vanhagar um, en getur ekki veitt þér? Sögur um fólk, sem þú þekk- ir, en áheyrendur þínir ekki? Hvað þú ert vinsæl og öfunds verð af vinum þínum? Að þú getir ekki fitnað, þólt þú liorðir fitandi mat? Nákvæma lýsingu á skapgerð þinni? Hvað þú leysir starf þitt vel af liendi? Um heimiliserfiðleika þína, af óviðráðanlegum ástæðum? HETTA ER NÝJASTA DRAGT- ARTlZKAN F R A P A R 1 S. FEGURÐ OG HEILBRIGÐI : Líkamsœfingar fyrir önnum kafnar liúsmæður Þú hefur tækifæri til að þjálfa líkaina þinn og gera þig spengilega, meðan þú ert að vinna, með því að taka upp hluti á réttan hátt. Það er ekki sama hvernig þú beitir vöðvunum og stendur að verki. Ef þú tekur eitthvað upp af gólfinu, skaltu heygja hnén djúpt, rísa hægt upp og lialda hryggnum lóðrétt frá eyrunum. Þá grenn- istu um mittið og mjaðmirnar. Þegar þú býrð um rúmið geturðu líka gert j)ig grennri í mittið, ef þú ferð rétt að. Stattu við mitt rúmið og hreyfðu fæturna helzt ekkert. Teygðu þig vel, þegar þú brýtur teppið, svo að rifbeinin sveigist iangt frá mittinu. Opnaðu gluggana upp á gátt og sogaðu hreina loftið inn í lung- un. Ertu þreytl í fótunum? Farðu þá úr skón- um og leggðu bók á milli fótanna. Leggðu iljarnar að kili og ytri spássíubrúnum bók- arinnar, og gríptu með tánum fram fyrir hókarhornin, eins og myndin sýnir. Að- skildu hnén eins mikið og þú getur, án þess að losa táargripin. Losaðu takið og endurtaktu æfinguna nokkrum sinnum. Teygðu þig eins oft og tækifæri gefst; það gerir þig spengilegri. Til dæmis þegar þú hengir upp þvott, dustar renninga eða læt- ur leirtauið upp i hiMu. Vendu þig á takt- fastar og rösklegar hreyfingar. Láttu mitt- isvöðvana starfa. Þú finnur fljótlega betra jafnvægi og öryggi í hreyfingum, ef þú beitir líkamanum á stílhreinan liátt. HEIMILISPÓSTURINN — 23

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.