Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 87

Sagnir - 01.06.2006, Page 87
Helsti annmarkinn á þessari ritgerð er skortur á rituðum heimildum um MAI. A það sérstaklega við tímabilið 1967 til 1979. Fáar fundargerðabækur eru til um starfsemi félagsins á þessu tímabili og hef ég því þurft að reiða mig á greinar sem ijalla um sögu félagsins sem birtar voru í ritum sem það gaf út og viðtöl við félagsmenn á þessu tímabili. Mun fleiri heimildir eru til um starf samtakanna ffá 1979 til 1992. Starfsemi félagsins var öflugri á þeim tíma og gögnum þess var betur haldið til haga. un Z\*Cenninjartenjsfa (Cjffiamu oy jsJancfs, oð tenasf foeirra vfö ^Sósíafista- fefaq fríeyffiaví/lur Félagió Ménníngartengsl Albaniu og íslands var stofnað þann 23. apríl árið 1967.* Stofnfélagar voru 72. Á stofnfundinum var kosin fyrsta stjóm félagsins. Ólafur Þ. Jónsson, þáverandi skipasmiður, betur þekktur sem Óli kommi, var kosinn formaður. Helga Hjörvar leikkona var kosin varaformaður. Guðni Guðnason lögfræðingur var kosinn ritari. Runólfur Bjömsson verkamaður var kosinn gjaldkeri og Guðmundur Jósepsson vélstjóri var kosinn meðstjómandi. Allir sem vom í fyrstu stjóm MAÍ vom meðlimir í Sósíalistafélagi Reykjavíkur sem var á þessum tíma hluti af Sósíalistaflokknum. Þegar MAÍ var stofnað vom deilur innan Sósíalistaflokksins um hversu langtþað ætti að gangaí samfylkingaráttmeð Alþýðubandalaginu. Þær snémst um hvort Sósíalistaflokkurinn ætti að vera sjálfstæður flokkur innan Alþýðubandalagsins eða hvort leggja ætti niður flokkinn og félagsmenn hans ganga inn í Alþýðubandalagið og gera það að stjómmálaflokki. Sósíalistaflokkurinn skiptist í hópa sem höfðu mismunandi skoðanir á því hvemig ætti að standa að þessum málum. Sumir vildu ganga alla leið í samfylkingarátt en aðrir vom algerlega á móti slikum hugmyndum. Þeir hópar sem vom á móti vom mjög sterkir innan Sósíalistafélags Reykjavíkur. Þeir vora kallaðir „Hjaltaklíkan", sem var nefnd eftir Hjalta Ámasyni, og „Brynjólfsklíkan", sem var nefhd eftir Brynjólfi Bjamasyni. í „Hj altaklíkunni" vom helstu einangmnarsinnar Sósíalistaflokksins. Félagar hennar tilheyrðu vinstri armi Sósíalistaflokksins og vildu þeir að hann yrði byggður upp sem kommúnistaflokkur með sama sniði og Bolsévikaflokkurinn. „Brynjólfsklíkan“ var sammála fyrmefnda hópnum um ýmislegt en vildi ganga lengra í samfylkingarátt og taka þátt í almennri stjómmálastarfsemi á þingi.2 Ólafur Þ. Jónsson, formaður MAÍ, og Guðni Guðnason ritari vom báðir í stjóm Sósíalistafélags Reykjavíkur þegar MAI var stofnað. Þeir lögðust algerlega gegn því að Sósíalistaflokkurinn yrði lagður niður þegar það kom til umræðu í félaginu 16. október 1968. Töldu þeir að Alþýðubandalagið yrði að borgaralegum flokki sem myndi ekki hafa hagsmuni verkalýðsins að leiðarljósi. Vildu þeir báðir að stefnt yrði að uppbyggingu öflugs marx-lenínísks flokks. Þeir vom ekki þeir einu á þessum fundi, sem vom á móti því að flokkurinn yrði lagður niður3. Óánægjan með Alþýðubandalagið var mikil meðal félagsmanna MAÍ. Þeir notuðu félagið sem vettvang þeirra sem vom andvígir samfylkingaráformum til aó hittast eftir fundi með Sósíalistaflokknum eða Sósíalistafélagi Reykjavíkur og ræða um málefni flokkanna. Áður en MAÍ var stofnað hafði verið rætt, meðal þeirra sem stóðu að því, að taka yfir eitthvað af menningartengslafélögunum sem til vom fyrir, til dæmis vináttufélag Rúmeníu og íslands eða Búlgaríu og íslands, og nota þau sem vettvang fyrir andstæðinga Alþýðubandalagsins. Þeim fannst þó lítið koma til starfsemi þeirra og ákváðu því að stofna nýtt félag.4 Líklegast hefur það einnig spilað inn í að Einar Olgeirsson, sem var ekki á sömu línu og þeir gagnvart Alþýðubandalaginu, hafði mikil ítök í þessum vináttufélögum. Jív, ta eTfffiama 7 Ivers vejna <vuuama Þegar MAÍ var stofnað árið 1967 hafði Albanía verið í heimsfréttunum í nokkur ár vegna afstöðu sinnar í deilum Kínverja og Sovétmanna þar sem Albanartóku einirþjóða, sem tilheyrðu hinni sósíalísku ríkjablokk, afstöðu með Kína gegn Sovétríkjunum. Vöktu þessar deilur athygli hjá stofnendum félagsins og taka þeir fram í lyrsta riti sínu „að eigi skal yfir það fjöður dregin að deila þessi hefur heldur flýtt fyrir stofnun MAÍ en hitt.“5 „Brynjólfsklíkan" hallaðist mjög að Peking-línunni. Brynjólfur fÁ/CeJininjartenjsf c/fcffianíu cj ffsfancfs Bjamason ferðaðist til Kína árin 1956 og 1958. Hann heillaðist af því sem hann sá þar og taldi Maó Tse Tung fmmlegan marxískan hugsuð/’ Brynjólfur þýddi ýmis verk eftir Maó á íslensku, þar á meðal Rauða kverið. Enver Hoxha, formaður kommúnistaflokks Albaníu, Flokks vinnunnar, sem hélt um stjómartaumana í landinu, leit mikið upp til Stalíns. Hoxha taldi hann sannan marx-lenínista og að verk hans væm óskeikull leiðarvísir í baráttu öreigastéttarinnar gegn auðvaldinu.7 Albanir vom því lítt hrifnir af gagnrýninni sem Stalín fékk á 20. þingi Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, og töldu hana ógn við eininguna innan heimshreyfingar kommúnista. Flokkur vinnunnar hafnaði líka algjörlega hugmyndum, sem komu upp á sama þingi, um friðsamlega sambúð milli kapítalískra og sósíalískra landa, og að kommúnistaflokkar í Vestur-Evrópu gætu náð markmiðum sínum1 með friðsamlegum og þingræðislegum leiðum í staðinn fyrir að stefna að byltingu. Flokkurinn kallaði þá sem héldu uppi þessum skoðunum endurskoðunarsinna. Þeir flokkar sem stefndu ekki að byltingu gegn auðvaldinu yrðu ekkert nema viljalaus verkfæri, gerðir til þess að þjóna því.8 Viðleitni Sovétmanna að bæta samskipti sín við Júgóslavíu hafði líka slæm áhrif á samband þjóðanna, þar sem hinir síðamefndu vom svamir óvinir Albaníu. I hugum margra sósíalista á þessum tíma var barátta kommúnista í seinni heimstyrjöldinni gegn ítölskum fasistum og þýskum nasistum enn í fersku minni. Kommúnistar í Albaníu höfðu staðið sig vel í þeirri baráttu og náð af eigin rammleik að frelsa landið úr klóm innrásarherja. Frammistaða þeirra hafði vakið aðdáun margra sósíalista hér á landi, því að sú barátta var táknræn sem barátta verkalýðsins gegn auðvaldinu og heimsvaldastefnu þess. Oft var fjallað um þessi afrek í ritum MAI næstu 25 árin. ^Starjsemijffajsinsjrá iy6j tif ljjlf Það var lítill hópur listamanna, menntamanna og vinstrimanna sem tók þátt í starfi félagsins á fyrstu tveim ámm þess. Ljóðskáld lásu upp ljóð sín á fundum, sagnfræðingar sömdu greinar um sögu Albaníu og sósíalistar skrifuðu greinar um stjómarfarið í landinu og um uppbyggingu þess. Árið 1967, fljótlega eftir stofnun MAÍ, gaf félagið út 32 blaðsíðna rit sem hét Albanía. Fræðslurit. í þvi riti var tekið fram að tilgangur samtakanna væri að kynna á íslandi hina albönsku þjóð og öfugt.9 1 þriðju grein í lögum samtakanna, sem vom samþykkt á stofnfundinum, var tekið fram hvemig félagið ætlaði að ná þessum markmiðum: „3-gr Þessum tilgangi ætlar félagið að ná m.a með því: a. að greiða fýrir samskiptum menntastofnanna, félaga og einstaklinga í báðum löndunum og afla heimilda um þjóðfélagshætti, menningu og vísinda-starfsemi í Albaníu. b. að gangast fýrir fræðslu um Albaníu með fyrirlestmm, kvikmyndasýningum, öflun bóka og tímarita, listkynningum, útgáfu og upplýsingastarfsemi o.fl. c. að koma á framfæri við útvarp, blöð og tímarit gagnkvæmri kynningu á menningu Islands og Albaníu og nýungum í vísindum og listum. d. að stuðla á allan hátt að auknu samstarfi Albana og íslendinga.”10 I ritinu voru upplýsingar um atvinnuhætti, þjóðlíf og stjómarfar í Albaníu. Skúli Þórðarson sagnfræðingur skrifaði stutta grein um sögu landsins og Bjöm Bjamason, fyrmm formaður Iðju í Reykjavík, skrifaði um verkalýðshreyfinguna í Albaníu. I þeirri grein vom talin upp þau afrek sem Albanar höfðu unnið við uppbyggingu landsins eftir seinni heimstyrjöldina. Albanía var vanþróaðasta ríkið í Evrópu fýrir heimsstyrjöldina, með um 85% ólæsi og nánast engan iðnað. Eftir að hafa talið upp hve uppbyggingin hafði gengið vel í Albaníu var hún eignuð Flokki vinnunnar og fullyrt að hún hefði ekki verið möguleg án leiðsagnar marxisks flokks. 11 Starfsemi félagsins var kynnt í Þjóðviljanum og áttu tilkynningar um fundarhöld greiða leið að síðum blaðsins, þar sem Ólafur Þ. Jónsson, formaður félagsins, vann á þessum tíma þar sem blaðamaður. Félagar MAl þýddu líka greinar um Albaníu úr erlendum málgögnum Í&ajnir zooé
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.