Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Qupperneq 19
Enn neitar CIA, bandaríska leyni- þjónustan, að létta leynd af skjölum sem talin eru geyma upplýsingar um njósnir um ferðir Halldórs Laxness nóbelskálds og annarra sem taldir voru andsnúnir bandarískum stjórn- völdum og hallir undir kommún- isma. Það gerir einnig alríkislögregl- an FBI. Báðar stofnanirnar bera við þjóðaröryggi. Í helgarblaði DV var um síðustu helgi ágæt umfjöllun um málið með vísan til rannsókna Chay Lemoine. Hann er bandarískur bókmennta- fræðingur sem hreifst af skrifum Halldórs. Lemoine undraðist að ekk- ert var gefið út á ensku eftir Hall- dór Laxness í hálfa öld. Í viðtali við DV segir Lemonie: „Í gegnum rann- sóknir mínar hef ég komist yfir fjölda leyniskjala frá FBI sem sýna glöggt að fylgst var með Halldóri innan Bandaríkjanna. Tilvist leyniskjala hjá CIA, sem gegnir hlutverki leyni- þjónustu utan Bandaríkjanna, sýnir hins vegar að fylgst var með Halldóri líka á erlendri grundu... Af þeim fáu skjölum sem CIA hefur ekki neitað mér um aðgang að má augljóslega sjá að leyniþjónustan var með ein- hvern á Íslandi til að safna upplýs- ingum um stjórnmálaástandið og umsvif kommúnista. Fyrir vikið er öruggt að þeir hafa fylgst með Hall- dóri vegna skoðana hans.“ Skömmin Þetta fellur vel að því sem Halldór Guðmundsson bókmenntafræðing- ur hafði þegar leitt í ljós í bók sinni um Laxness, að bandarísk og ís- lensk stjórnvöld höfðu samráð um að knésetja nóbelskáldið. „Það var dálítið raunalegt að komast að því að íslensk stjórnvöld tóku þátt í njósn- um um Halldór. Bjarni Benedikts- son, þáverandi utanríkisráðherra, hafði beint samband við æðsta mann bandaríska sendiráðsins og þeir sameinuðust um að koma höggi á Halldór í gegnum skattarannsókn. Síðan hefur verið gerð grein fyrir því, í gegnum leyniskjöl, að samráð ís- lenskra stjórnvalda og bandarískra rataði inn á borð æðsta stjórnanda FBI, J. Edgars Hoover,“ segir Halldór Guðmundsson í úttekt DV um síð- ustu helgi. Einna athyglisverðast í umræddri úttekt DV um síðustu helgi eru eftir- farandi ummæli Lemoine: „Mín til- finning er sú að neitun CIA snúist meira um skömm íslenskra stjórn- valda á sínum tíma við að hjálpa til við njósnir um Halldór enda ljóst að leyniþjónustan var með aðila hér á landi til að safna upplýsingum.“ Reynt að breyta úrslitum Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur hefur einmitt gert grein fyrir því að hér á landi hafi verið starfrækt sérstök öryggisþjónusta Ís- lands á vegum útlendingaeftirlitsins og lögreglunnar sem safnaði upp- lýsingum. „Um náin tengsl íslenskra stjórnvalda og bandarísku leyniþjón- ustunnar er ekki endanlega vitað. Það er hins vegar ljóst að Íslending- ar unnu að gagnaöflun fyrir Banda- ríkjamenn,“ segir Guðni við DV. Í rauninni væri það með öllu óþol- andi ef CIA neitaði að birta leyniskjöl um njósnir hér á landi vegna þeirrar skammar sem íslensk stjórnvöld frá fyrri tíð yrðu þar með uppvís að. Eru Íslendingar viðkvæmari gagn- vart sögu sinni en aðrar þjóðir? Eru þeir kannski hjartahreinni og hafa aldrei haft neitt að fela? Greinargerð DV um síðustu helgi sýnir okkur enn á ný hversu brýnt er að lyfta hulunni af þessari fortíð. Að sumu leyti hafa upplýsingar frá bandarískum stjórnvöldum varpað ljósi á mörg mikilvæg atriði. Þannig upplýsir Guðni Th. Jóhannesson í bók sinni Óvinir ríkisins að árið 1956 hafi framkvæmdanefnd bandaríska þjóðaröryggisráðsins skipað sérstaka nefnd sem ræddi leiðir til þess að hafa áhrif á úrslit kosninga á Íslandi. Nefndarmönnum var fyllilega ljóst að framkvæmdirnar við herstöðina á Miðnesheiði skiptu Íslendinga miklu máli í efnahagslegu tilliti og gátu beitt þá þvingunum með hótunum um að fresta eða hætta við hinar og þessar framkvæmdir. Þannig gátu fyllilega farið saman hagsmunir bandarískra ráðamanna, sem vildu draga tenn- urnar úr meintum kommúnistum hér á landi, og íslenskra fyrirtækja eða áhrifamikilla einstakl- inga sem höfðu fjárhagslegan ávinn- ing af hersetunni. Þingnefnd í málið Um það leyti sem Bandaríkjaher yfirgaf landið síðastliðið haust eftir 55 ára veru í landinu flutti Pétur Gunn- arsson rithöfundur ræðu á vegum Þjóðarhreyfingarinnar. Hann sagði að hersetan og pólitísk átök samfara henni um áratugaskeið hefði verið heilablóðfall íslenskrar stjórnmála- hugsunar. Nú er komið að því að horfast í augu við fortíðina og svipta hulunni af njósnum og hlerunum meðal fólks sem íslensk stjórnvöld skilgeindu sem mögulega landráðamenn. Í þeim flokki var augljóslega Halldór Laxness. Við vitum að stjórnvöld munu ganga lengra en gert hefur verið nú þegar með því að veita aukinn að- gang að leyniskjölum hér innan- lands. Enda sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra orð- rétt á flokkstjórnarfundi Samfylk- ingarinnar í fyrra: „Samfylkingin mun beita sér fyrir því að þingskipuð nefnd rannsaki hleranamálið og velti þar við hverjum steini.“ Barist í Laugardal Fótbolti verður seint talinn íþrótt án snertingar og átaka. Oft var tekist fast á í landsleik Íslands og Kanada í fyrrakvöld eins og sjá má á þessari mynd. DV-MYND STEFÁNmyndin P lús eð a m ínu s Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði mark og kom Íslandi yfir í landsleiknum gegn Kanada á dögunum. Gunnar Heiðar hefur átt erfitt uppdráttar hjá félagi sínu en fær nú vonandi tækifæri til að sýna hvers hann er megnugur. Spurningin „Við finnum fyrir því að það eru mjög miklar væntingar bundnar við að Öryrkjabandalagið nái árangri. Við ætlum okkur að standa undir þeim væntingum. Annars er þessi niðurstaða gríðarleg hvatning fyrir okkur að halda áfram á þeirri braut sem við erum,“ segir Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags- ins. Ný könnun Capacent Gallup sýnir að 90 prósent þjóðarinnar eru jákvæð í garð ÖBÍ. Hringt var í 1.350 manns og var svarhlutfall 61,4 prósent. Finnið Þið FyRiR SamStöðunni? Sandkassinn Haustið er komið. Sættum okk- ur við það. Ég hef reynt að halda í vonina um fleiri góðviðrisdaga, en ég held að það sé borin von. Verslunar- mannahelgin er búin, Gay Pride sömuleiðis og Menningarnótt er afstaðin. Það er satt sem sagt er í laginu. Tím- inn líður hratt. Það hefði samt mátt fylgja með að hann líði sérstaklega hratt á sumrin. Sólskinsgleðibank- inn er tæmdur. Beint út í apótek. Leysum út prósak. talandi um lög. Það kom upp umræða hjá mér og vinnufélögun- um á dögunum hvað Daníel Ágúst segir í viðlagi Alelda, lagi Nýd- anskrar, eftir fyrsta „aleldað“. Hvort segir hann „sáldrandi brjáli“ eða „sáldrandi prjáli“? Eða segir hann kannski eitthvað allt annað? „Sjálf- krafa báðir“? Alelda er þó hátíð hvað þetta varð- ar miðað við annað lag Nýd- anskrar, Fram á nótt. „Mitt (ravi- son travison) á andlega sviðinu / hugsanirnar (ravison travi- son) á húsþök- unum.“ Við skrif þessa pistils lagði ég það loksins á mig að komast að því hvað það er sem er á hinu and- lega sviði og húsþökum. Tók ekki langan tíma þökk sé herra Gúgúl. Það er víst „vandamál“ og „gínur“. Og hugsanirnar þá „heimskar“ sem þessar gínur (sem af einhverj- um óskiljanlegum ástæðum eru staddar uppi á þökum). Þar hafið þið það. talandi um andlega sviðið. Haustið er nefnilega ekki bara boð- beri sífellt dimmari daga og kaldra kafaldsbylja. Haustið þýðir líka að leikhúsin fara á fullt, tónleikum fjölgar, nýjar bækur eru gefnar út í holskeflum og sjónvarpsdagskráin batnar til mikilla muna. Ég kem eiginlega ekki orðum að því hvað ég hlakka til að sjá Næt- urvaktina, nýju grínþættina sem Stöð 2 hefur sýn- ingar á í haust. Sá nokkur atriði á Youtube á dög- unum og var enn einu sinni minnt- ur á hversu mikil himnasending Jón Gnarr er fyrir íslenska þjóðar- sál. Línan „Ding, ding, ding, ding, ding ... ég skil ekki orð af því sem þú segir!“ er að mínu mati strax orðin klassík í íslenskri sjónvarps- sögu, þrátt fyrir að fyrsti þátturinn hafi ekki enn birst á skjánum. Allt svo, sjónvarpsskjánum. talandi um skilning. Ég skil ekki þessa nafnleynd nýfæddra barna. Nú til dags er hægt að sjá myndir af börnum/fóstrum frá því þau eru nokkurra vikna göm- ul á netinu, fá upplýsingar um kyn, stærð, þyngd, blóðflokk og hvað sem er, sjá myndir af fæð- ingu, heimkomu, fyrstu brjósta- gjöf og liggur við getnaðinum. En svo halda foreldrar nafninu leyndu eins og framtíð heims- ins sé í hættu ef það er gefið upp fyrir skírn. Er þetta ekki bara „af- þvíbara-hefð“ sem við ættum að hugsa aðeins upp á nýtt? lætur hugann reika í aðdraganda haustsins. Viðkvæm stjórnvöld Jóhann haukSSon útvarpsmaður skrifar Nú er komið að því að horfast í augu við fortíðina og svipta hulunni af njósnum og hlerunum meðal fólks sem íslensk stjórnvöld skilgeindu sem mögulega landráðamenn. DV Umræða FÖStudAGur 24. áGúSt 2007 19 DV fyrir 25 árum allt gengur upp hjá mér Helgin 17.–19. ágúst 2007 dagblaðið vísir 12?. tbl. – 97. árg. – verð kr. 395 F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð Þykist kunna Þjóðsönginn ragnhildur steinunn ÞOrði alDrei aðsyngja Bandarískar leyniþjónustur: CIA og FBI sitja á leyni- plöggum um Halldór Laxness. Íslensk stjórn- völd aðstoðuðu Banda- ríkjamenn við að koma höggi á hann. Guðný Halldórsdóttir, dóttir skáldsins, skilur ekki hvers vegna skjölin fást ekki afhent og er miður sín yfir þátttöku íslenskra stjórnvalda. fá ekki gögnin njósnuðu um laxness magnús kristinsson urður í gus gus tígurinn kOminn heim guðjón þórðarson RANNSAKAÐUR AF CIA Bandarísk stjórnvöld óttuðust umsvif komm- únista á Íslandi. Fyrir vikið var njósnað um helstu óvinina. Fræði- menn eru sannfærðir um að ítarlega spjald- skrá um nóbelskáldið sé að finna í hirslum leyniþjónustunnar. HE LG AR BL AÐ pOpparar Og pólitík baráttusöngvar í popptónlist
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.