Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Blaðsíða 45
DV Ferðalög föstudagur 24. ágúst 2007 45 U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n . N e t f a n g : b a l d u r @ d v . i s á ferðinni Vantar þig far?Þarftu að komast út á land? Þarftu að komast til höfuðborgarinnar? Vantar þig far eða jafnvel farþega til að deila bensínkostnaði? á vefsíðunni samferda.net er hægt að finna lausnir við þessu. Þar getur fólk ýmist óskað eftir fari eða farþegum sem hafa svipaða ferðaáætlun. Ekkert kostar að setja inn auglýsingu og að sjálfsögðu kostar ekkert að skoða auglýsingar. Með þessu móti má hæglega spara krónur. Vappað um á vínekrum Þann sjötta til ellefta september næskomandi verður farin vínsmökkunarferð til Bourdeaux í frakklandi. Það er Vínskólinn sem stendur fyrir vínferðinni í samstarfi við ferðaþjónustu bænda. Vínskólinn var stofnaður í janúar 2006 af dominique Plédel Jónsson og er markmið hans að fræða almenning, fagfólk og þjóna um vín og vínfræði. á heimasíðu Vínskólans segir að Bordeaux sé draumur vínáhugamannsins og þar fullyrt að enginn verði svikinn. Það verður ekki sötrað vín allan tímann en skoðunarferðir verða farnar með íslenskri fararstjórn og verður meðal annars nefið rekið inn í miðaldaborgina saint Emilion en hún er á heimsminjaskrá uNEsCO. Vínáhugamenn eru hvattir til að kynna sér ferðaáætlunina nánar á vinskolinn.is. Það var í mars árið 1999 sem Krist- ín þáði boð grænlenska ferðamála- ráðsins um tveggja daga ferð til Græn- lands. Aðaltilgangur ferðarinnar var að bjóða nokkrum blaðamönnum að gista á nýbyggðu íshóteli auk þess að upplifa grænlenska náttúru. „Daginn fyrir brottför tilkynnti ritstjóri blaðs- ins mér að ég færi ein í þessa ferð til Kangerlussuaq í Syðri-Straumsfirði á Grænlandi. Ég ákvað að láta það ekki á mig fá og áður en ég vissi af var ég stödd á fyrsta farrými í góðu yfirlæti á leið til Grænlands,“ segir Kristín þeg- ar hún rifjar upp upphaf ferðarinnar. „Ég hafði aldrei komið til Grænlands og vissi því ekki hverju við væri að bú- ast. Ég lenti með kampavín í kroppi og fékk höfðinglegar móttökur og fylgd á hótelið sem ég gisti á fyrstu nóttina.“ Hrátt kjöt og sleðahundar Þegar Kristín vaknaði um morgun- inn var henni sagt að til stæði að fara í skoðunarferð. Að svo búnu var henni fylgt til mannsins sem hún átti að fara með í sleðaferð um ísbreiðurnar. „Þetta reyndist vera einn ófrýnilegasti maður sem ég hef á ævinni séð,“ seg- ir Kristín sem vildi fylgja dagskránni sem búið var að setja upp. „Áður en ég vissi af sat ég ein á hundasleða, með 25 brjálaða hunda rétt fyrir fram- an mig og manninn ófrýnilega fyrir framan. Ég var á leið út í óbyggðirn- ar,“ segir Kristín sem leist ekki aldeil- is á blikuna. „Við þeystum af stað út á ísbreiðuna og ég vissi ekkert hvert förinni væri heitið. Hamagangur- inn í hundunum var slíkur að ég var handviss um að þetta væri mín síð- asta stund; ég myndi aldrei komast lifandi frá þessu. Maðurinn stoppaði á fimm mínútna fresti og henti hráu kjöti í æsta hundana sem rifu það í sig.“ Kristín segist sjaldan á ævinni hafa orðið jafnhrædd. „Mér virtist hann aldrei ætla að snúa við. Frostið var 25 gráður, mér var ískalt og stóð beygur af hundunum og manninum.“ Eftir heila eilífð sneri hann loks við og hélt í átt til byggða. „Ég var ólýs- anlega fegin þegar ég steig af sleðan- um og kvaddi þetta teymi,“ segir Krist- ín en bætir við að hún hafi ekki látið á neinu bera enda kom ekkert annað til greina en að klára þessa ferð með sæmd. Ein á íshóteli Að lokinni þessari sleðaferð var henni ekið í stutta skoðunarferð um byggðarkjarnann og nágrennið. „Heimamenn fylgdu mér að glæsilegu hóteli sem var svo sem ekki frábrugð- ið öðrum hótelum nema fyrir þá stað- reynd að það var gert úr ís. Meira að segja rúmin voru gerð úr ís en þau voru þó klædd sauðnautsskinnum, svo hægt væri að sofa á þeim.“ Það var ekki fyrr en Kristín fékk þau tíðindi að hún væri eini hótelgesturinn að á hana runnu tvær grímur. „Þar sem ís- hótelið var við hliðina á bar stóð mér ekki alveg á sama um að sofa ein í framandi landi og geta ekki einu sinni læst að mér. Kannski voru þetta for- dómar en ég viðurkenni þó að mér stóð ekki á sama.“ En heimamenn dóu ekki ráðalausir og buðust strax til að útvega henni mann svo hún þyrfti ekki að sofa ein. „Mér fannst tilhugsunin nokkuð sérstök en kunni þó ekki við að afþakka þetta góða boð þar sem ég vissi ekki hver herbergis- félagi minn yrði. Því næst fórum við út að borða þar sem ég hitti þennan ókunnuga mann. Hann reyndist vera danskur og var hinn huggulegasti maður. Því komst ég að eftir að hafa snætt með honum kvöldverð á barn- um við hliðina á íshótelinu. Eftir kaffi- bolla og koníaksstaup var okkur ekk- ert að vanbúnaði og fórum í háttinn. Við dúðuðum okkur upp og lögðumst til hvílu á íshótelinu í svefnpokum sem þoldu hvorki meira né minna en 70 gráðu frost.“ Hugfangin af landinu Kristín segist hafa sofið ágætlega um nóttina. „Þegar ég vaknaði um morguninn sá ég ekkert nema eld- rautt nefið á herbergisfélaga mínum. Við kvöddumst með virktum og mér er óhætt að þakka honum fyrir það að ég búi að þessari lífsreynslu í dag. Það var skrýtin tilfinning eftir þessa tveggja daga dvöl og reynslu að setj- ast aftur inn í fyrsta farrými flugvélar- innar.“ Kristín segir að þótt hún hafi verið hálfsmeyk stóran hluta ferðar- innar hafi hún heillast af landinu. „Ég varð hugfangin af Grænlandi. Náttúr- an þarna er ótrúleg og þrátt fyrir að mér hafi ekki litist á blikuna á tíma- bili mun ég aldrei gleyma hvað þarna er fallegt. Íshótelið var frábærlega vel gert og fólkið vildi allt fyrir mig gera. Heimsóknin til Grænlands er upplif- un sem ég mun aldrei gleyma,“ segir Kristín létt í bragði að lokum. Keppt um Bessastaðabikar Kajakklúbburinn sviði á álftanesi stendur um helgina fyrir árlegri sjókajakkeppni þar sem keppt er um hinn geysivinsæla Bessastaðabikar. Klúbburinn, sem nefndur er eftir landnámsmanni álftaness, mun flauta keppnina af stað á hádegi laugardag- inn 25. ágúst. Venju samkvæmt verður róið í kringum álftanes eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. ræðarar koma í land við fjöruna fyrir neðan Bessastaði þar sem forseti Íslands hefur stundum tekið á móti þeim. á heimasíðunni utivera.is er fólk hvatt til að fylgjast með eða taka þátt í þessari skemmti- legu keppni. Hlaupið um Alpana tveir íslenskir hlauparar eru skráðir í the North face ultra trail-fjallahlaupið sem haldið verður í ölpunum um helgina, að því er fram kemur á utivera. is. Hlaupið er ekki fyrir hvern sem er því hlaupnir verða heilir 163 kílómetrar með heildarhækkun upp á 8.900 metra. flestir Íslendingar létu sér nægja að hlaupa reykjavíkurmaraþon um síðustu helgi en þeir Börkur árnason og Höskuldur Kristvinsson ætla að hlaupa þetta ofurfjallamaraþon sem áætlað er að geti tekið allt að 46 klukkustundir. fram kemur á heimasíð- unni að Börkur og tvíburabróðir hans Birkir (sem skráður er í helmingi styttra hlaup) séu af svarfdælsku hlaupakyni og séu því til alls líklegir. Höskuldur er 57 ára að aldri og hefur meðal annars tekið þátt í Iron Man, svo þarna eru engir aukvisar á ferð. Kristín E. Guðjónsdóttir, leiðsögumaður og fararstjóri, starfaði um nokkurt skeið hjá danska ferðatímaritinu Stand by. Eitt sinn var henni, ásamt nokkrum öðrum blaða- mönnum, boðið í tveggja daga kynningarferð til Kangerlussuaq á vegum ferðamálaráðs Grænlands. Ferðin hófst á fyrsta farrými en tók heldur betur óvænta stefnu þegar til Grænlands var komið. SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160. Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt tilað klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfur-plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. SENDUM Í PÓSTKRÖFU. KYNNGIMÖGNUÐ KYNNINGARFERÐ Kangerlussuaq á Grænlandi Kristín heillaðist af náttúrufegurð þessa fallega lands. Kristín hefur ferðast víða um heiminn Hér er hún á torgi hins himneska friðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.