Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Qupperneq 49
DV Helgarblað föstudagur 24. ágúst 2007 49
Óvenjulegt skart
Ekkert smáskemmtilegir aukahlutir sem svo sannarlega koma á óvart.
torso Corso eru með skartgripafyrirtæki í sydney í ástralíu en þau hanna
skartgripi sem koma skemmtilega á óvart. Þetta eru tásuarmbönd og
fingramen í svörtu og hvítu en það er einnig hægt að fá sér fallega gripi
sem sjást í myrkri. Hvorki meira né minna. En þeir, sem langar að kaupa sér, geta sent
þeim póst á torsocorsodesigns@gmail.com. Þau senda út um allan heim.
nýtt í kronkron
Kronkron kemur sífellt á óvart og að þessu sinni er
búðin komin með snyrtivörur frá þýska snyrtivöru-
merkinu uslu airlines. Þau eru með varaliti, naglalökk,
augnskugga og kinnaliti. frískum okkur upp og endur-
nýjum snyrtibuddurnar.
Persónan Dömuleg hönnun
og freistanDi
forynja
forynja nefnist ný búð sem sara í Nakta apanum og
sandra opnuðu á Menningarnótt. Nýja búðin er á
tryggvagötu 16 þar sem verslunin Má Mí Mó var áður til
húsa. Í forynju er margt spennandi í boði en þar er íslensk
hönnun frá forynjuteyminu, en auk fatnaðar er hægt að
fá heimilisvörur eins og kodda og rúmföt, skartgripi og
barnaföt. Barnafötin eru ýmist frá danmörku en einnig
hönnuð af önnu rún, söru og signýju. forynja verður
einnig með hönnun frá Helgu Lilju, Imbu og Hörpu Einars.
Bóas
uppruni og líf hönnuðarins thakoon Panichgul endurspeglast mjög í
hönnun hans. thakoon fæddist í Norður-taílandi en flutti með fjölskyldu
sinni til Bandaríkjanna þegar hann var 11 ára gamall. Hann ólst upp í
Omaha, Nebraska og hafði mikinn áhuga á ljósmyndun en ákvað að fara í
viðskiptafræði. Eftir námið flutti hann til New York og sá hvar áhuginn lá
og hóf nám í Parsons í hönnun. Í
september árið 2004 sýndi hann
sína fyrstu línu og vakti áhuga og
lukku sem sagði honum að hann
væir á réttri hillu. Panichgul er
duglegur að blanda saman
glæsilegum kvenleika saman við
sportlegt og unglegt útlit.
útkoman er glæsileg en jafnframt
frekar frjálsleg.
Nafn? Bóas Kristjánsson.
Aldur? 25 ára.
Starf? Hönnuður hjá andersen &
Lauth og nemandi í royal academy
antwerp.
Stíllinn þinn? ræðst af tilviljunum
og geðþótta.
Hvað er möst að eiga? Þráhyggju
og/eða plíseraðan brúnkuklút fyrir
jakkavasann.
Hvað keyptir þú þér síðast?
flugmiða til Eindhoven á 2.990
krónur.
Hverju færð þú ekki nóg af?
Módelum.
Hvert fórstu síðast í ferðalag? til
Húsavíkur í magaspeglun.
Hvað langar þig í akkurat núna?
gin og tónik.
Perlur hér heima? Já.
Hvenær fórstu að sofa í nótt? grét
mig í svefn rétt eftir miðnætti.
Hvenær hefur þú það best? Þegar
svitinn drýpur úr loftinu.
Afrek vikunnar? Klára snið að hálf-
tailored hálf-draped jakka.
thakoon Panichgul
DVMYND Ásgeir
sara og sandra Hlíf Ocares kátar.
DVMYNDIR Ásgeir