Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Blaðsíða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Blaðsíða 59
Bætist við leikhópinn Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram tuttugasta og sjöunda september til sjöunda októb- er næstkomandi. Aðstandendur hátíðarinnar hafa ætíð leitast við að gera dagskrána sem fjölbreyttasta og í ár verða margvíslegir viðburðir í boði tengdir kvikmyndunum sem sýndar verða á hátíðinni. Mið- næturbíó er einn af þesum óhefðbundnu dagskrár- liðum en hefur það verið eitt af því vinsælasta á há- tíðinni síðastliðinn þrjú ár. „Það hafa alltaf verið sýndar svona gamlar, klassískar og örlítið öðruvísi myndir í miðnæturbíóinu en í ár verður hryllings- myndaþema og verður boðið upp á tvær hryllings- grínmyndir eða svokallaðar splatter-myndir,“ segir Gunnar Eggertsson, einn af skipuleggjundum há- tíðarinnar og meðlimur hljómsveitarinnar Mal- neiro phrenia. „Fyrir sýningu myndarinnar mun átta manna hljómsveit stíga á svið og spila tónlist úr um sextán hryllingsmyndum sem spanna þrjá- tíu og fimm ára tímabil og á meðan rúlla myndbrot úr þessum klassísku hryllingsmyndum. Við byrj- um á að spila tónlist frá ítölsku hryllingsmyndun- um frá árinu 1971 og endum á kvikmyndatónlist úr amerísku hryllingsmyndunum frá 2005 og komum við væntanlega fram undir nafninu Skarkári,“ segir Gunnar. Fjölbreytt kvikmyndatónlist Strákarnir átta sem mynda sveitina Skarkára koma úr ýmsum hljómsveitum. „Ég er í hljóm- sveitinni Malneiro Phrenia og tónlistinni okkar hefur oft verið líkt við kvikmyndatónlist. Svo munu þeir Raggi og Valur úr hljómsveitinni Ask The Slave einnig spila með okkur og trommari úr hljómsveitinni Shadow Parade,“ segir Gunnar og bætir því við að það komi flestum á óvart hvað hryllingsmyndatónlist sé af misjöfnum toga. „Þetta byrjaði í jazzinum og þessari gömlu ítölsku tónlist í fyrstu myndunum. Á níunda áratugnum fer þetta svo að verða svolítið poppelektró og þegar færist nær aldamótunum fer tónlistin að verða frekar rokkskotin.“ Herlegheitin hefjast klukkan tíu og er áætlað að tónleikarnir standi í rúman klukkutíma og við taki svo sýningar á myndunum Black Sheep og The Tripper. „Þessar myndir eru svona nútíma- hryllingsmyndir og hafa fengið mjög góðar viðtök- ur innan hryllingsmyndageirans.“ The Tripper er eftir leikarann David Arquette og er framleidd af honum og eiginkonu hans Courtn- ey Cox Arquette. „Courtney Cox bregður meira að segja fyrir í myndinni í einhverjar tuttugu sekúnd- ur eða svo áður en hún er étin af hundum og Dav- id leikur reyndar líka í henni. Black Sheep fjallar um mannætukindur og er frá Nýja-Sjálandi. Nex- us styður við þá mynd og hjálpaði okkur að koma henni til landsins. Báðar myndirnar eru mjög subbulegar og fyndnar og er ekki ætlað að vera teknar alvarlega,“ segir Gunnar og bætir því við að þessar myndir bjóði upp á öðruvísi stemningu en þessar týpísku myndir á hátíðinni. „Fólk má klappa og öskra og hlæja og vera með læti og ég vonast eftir góðri stemningu. Svo verður væntanlega boðið upp á einhverjar veitingar, kaffi og slíkt, til að halda fólki gangandi. Myndirnar eru frekar léttar og hressar og ekkert allt of langar svo þær ættu alveg að halda manni vel vakandi fram á nótt,“ segir Gunnar að lokum en miðasala á kvikmyndahátíðina verður nánar auglýst síðar. Áhugasömum er bent á heima- síðu hátíðarinnar riff.is og myspace.com/riffmid- nightmovies þar sem finna má nánari upplýsingar um miðnæturbíóið. krista@dv.is Mars á hvíta tjaldið Kristen Bell gæti fengið tækifæri til að snúa aftur sem karakterinn Veronica Mars sem hún lék í sam- nefnd- um sjón- varps- þáttum. Nú eru uppi hug- myndir um að gera kvik- mynd um Veronicu en ljóshærða leikkonan var alveg miður sín þegar hætt var við sýningar á þáttunum fyrr á árinu eftir þrjár þáttaraðir, í millitíðinni hefur hún hins vegar nælt sér í hlutverk í sjónvarpsþáttunum Heroes. „Ef kvikmyndin verður gerð mun hún líklegast fjalla um svolítið rosalegt sem átti að gerast í fjórðu þáttaröð, ég vildi að ég gæti sagt ykkur hvað það er en þá væri ég að eyðileggja myndina,“ segir leikkonan í nýlegu viðtali. Ekkert nema sannleikur David Schwimmer hefur nú bæst í hóp leikara sem koma til með að leika í pólitíska spennutryllinum Nothing But The Truth. Handrit og leikstjórn eru í höndum Rod Lurie og fjallar sagan um kvenkyns blaða- mann sem kemur upp um CIA-fulltrúa og er fangelsuð fyrir að neita að gefa upp heimildarmann sinn. Með hlutverk blaðakonunnar fer Kate Beckinsale en Schwimmer kemur til með að leika eiginmann hennar sem styður eiginkonu sína í fyrstu en eftir því sem tíminn líður fer hann að áfellast hana fyrir að taka starfsákvörðun fram yfir fjölskyldulífið. Miðnæturbíó er hluti af óhefðbundnari dagskrá Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík. Sýndar verða tvær hryllingsmyndir en á undan verða haldnir tónleikar þar sem spiluð verður hryllingsmyndatónlist. föstudagur 24. ágúst 2007DV Bíó 59 Kaupóða blaðakonan Leikkonan Isla Fisher, sem lék meðal annars í kvikmyndunum Wedding Crashes og The Look- out, hefur sam- þykkt að leika í kvik- mynd- inni The Secret World Of a Shopa- holic sem framleidd er af Jerry Bruck- heimer. Myndin er byggð á skáldsögunni Confessions of a Shopaholic eftir Sophie Kinsella. Fisher mun fara með hlutverk Rebeccu Bloomwood sem er nýútskrifuð úr háskóla og starfar sem viðskiptablaða- maður í New York. Bloomwood þjáist hins vegar líka af kaupæði og inn í söguþráðinn fléttast barátta hennar við að borga fyrir öll kaupin og ástarsamband við ungan mann sem hún er að skrifa grein um. Justin Timberlake hefur nú bæst í hóp þeirra sem koma til með að leika í grínmynd Mikes Myers, The Love Guru. Í grínmyndinni mun Myers fara með hlutverk Love Guru, Bandaríkjamanns sem alinn er upp af gúrúum og flytur til Bandaríkjanna til að starfa við sjálfshjálp. Fyrsta verkefnið hans er að ná sáttum milli hokkíleikmanns og eiginkonu hans. Eftir að þau hins vegar ná ekki sáttum og skilja fer eiginkonan að taka saman við hokkíleikmann úr búðm L.A. Kings í hefndarskyni en sá mun verða leikinn af Timberlake. Aðrir sem fara með hlutverk í myndinni eru þau Jessica Alba, Rom- any Malco og Verne Troyer. Tökur byrja í næsta mánuði í Toronto. Ævintýraheimur ofurnördsins The Black Sheep fjallar um mannætukindur.. hryllingsmyndatónlist og splatter-myndir Gunnar Eggertsson skipuleggur miðnæturbíóið og tónleikana. Innblástur frá Ice Cube Kvikmyndafyrirtækið Dimension hefur ákveðið að gera kvikmynd- ina Comeback en innblásturinn að myndinni er fenginn frá Ice Cube. Comeback er íþróttadrama, byggt á sannri sögu og fjallar um lítinn fátæk- an smábæ í Illinois og íbúa bæjarins sem sýna samstöðu sína á ameríska fótboltavellinum. Þeir standa með bæjarliðinu Pop Warner og hinni ell- efu ára gömlu Jasmine Plummer sem er fyrsta konan í sögu Pop Warner- liðsins. Fred Durst úr hljómsveitinni Limp Bizkit er sagður í viðræðum um að leikstýra myndinni sem Ice Cube kemur til með að framleiða og er handritið skrifað af Nick Santora. DVMYND Ásgeir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.