Félagsbréf - 01.12.1958, Qupperneq 36
34
FELAGSBREF
einhverjum liætti a5 vinna mér
inn yfir sumarmánuðina fjögur
til fimmhundruð krónur, svo að
ég gæti leigt mér súðarherbergi
og keypt a. m. k. eina fullkomna
máltíð á dag. Þá gat ég stundað
alþýðubókasafnið og lifað andlegu
lífi í hópi félaga minna í Reykja-
vík. Tvo vetur var ég svo á Núps-
skóla.
Upp úr þessum jarðvegi eru
þrjár fyrstu bækur rnínar sprottn-
ar og raunar liinar tvær síðari
líka, þótt þar komi áhrif víðar að.
FYRSTU RÆKURNAR
— Fyrsta bók mín liét Ég ber að
dyrum. Hún kom út 1937.
Ég lxafði oft lesið kvæði á fund-
um og samkomum verkamanna.
Nú höfðu kunningjar mínir farið
með áskriftalista með sér á síldina
norður á Siglufjörð, sjálfur var ég
í vegavinnu uppi á öræfum. Um
haustið voru komin 300 nöfn á
listana, manna hvaðanæva að af
landinu. Það nægði vel fyrir
kostnaði. Eintakið kostaði kr. 3,50.
Ég hafði upplagið 400. En þegar
hálfum mánuði eftir að bókin kom
út voru uxnfram eintökin seld,
og pantanir bárust utan af landi.
Ég lét prenta viðbót, sem seldist
líka. Nú fór að rigna yfir mig
lofsamlegum ritdóinum. Þeir urðu
tólf alls, og allt eftir þjóðkunna
gagnrýnendur. Helgi Hjörvar kall-
aði á mig niður í útvarp, bauð
mér þegar að þúa sig og setti mig
strax á dagskrána.
Ég var auðvitað dauðhræddur
við öll þessi ósköp, tvítugur piltur,
en bar mig þó mannalega.
UTANFÖR
Svo fór ég út í lieiminn vorið 1938.
Vann fyrir inér á sænskum sveita-
bæ yfir sumarið, var á lýðskóla
uppi í Svíþjóðardölum næsta vet-
ur. Sumarið eftir fékk ég sænsk-
an ferðastyrk og ferðaðist í þrjá
mánuði um Þýzkaland, Sviss og
Frakkland, var svo í Danmörku,
þegar stríðið liófst liaustið 1939.
Þá fór ég heim og gerðist ritstjóri
Utvarpstíðinda, ásamt Gunnari M.
Magnúss.
1942 gaf ég út Stund milli stríða.
— En nú var komið annað liljóð
í strokkinn með viðtökurnar. Nú
gekk maður undir manns liönd
að skrifa um mig skammir. Það
var ekki nóg að vilja vera skáld,
menn urðu h'ka að vera það. Ég
man aðeins eftir einum ritdómara,
sem taldi bókina eðlilegt fram-
hald hinnar fyrri. En sú rödd
kafnaði alveg í kór liinna, sem
töldu mér enga lífs von.
ÞORPIÐ
-—- Vorið 1944 seldi ég Utvarpstíð-
indi. Nú var kominn friður og
heimurinn opnaðist á ný. Ég
dvaldist liálft annað ár í Svíþjóð.
Þá varð Þorpið til og drög að