Félagsbréf - 01.12.1958, Side 38
36
FÉLAGSBRÉP
en liin síðari ár hef ég alveg horf-
ið frá ríminu. Rímleysið á betur
við nútímahugsun og nútímavið-
fangsefni. — Ég held líka að ljóð-
mál okkar liafi gott af að hvílast
um stund frá hinum gatslitnu
orðasamböndum rímsins, engin
hætta á því að rímliefð okkar
gleymist með öllu. Seinna munu
ný skáld liirða uppskeru af akri
rímleysisáranna og yrkja miklu
betri rímkvæði en nú er unnt.
Ég ætti kannski að koma hér
að orðsendingu til hinna mörgu
rímvina og hagyrðinga meðal
hlustenda: Fyrir alla muni hættið
hinum ófrjóa fjandskap við okk-
ur, sem tjáum hug okkar með
öðrum hætti en þið. Haldið áfram
að binda lífsskoðanir ykkar og lífs-
reynslu í vel kveðnar stökur; svo
skulum við reyna fordómalaust
að meta hvor annarra verk, og þá
mun takast gagnkvæmur skilning-
ur. Mér fyrir mitt leyti mun ætíð
þykja gaman að smellnum tæki-
færisvísum. Þær eiga alltaf rétt á
sér.
HELZTU MARKMH)
OG SKYLDUR SKÁLDSINS
— Mér er sagt, að þeir sem hafa
talað hér á undan mér hafi verið
furðu hreinskilnir. Ekki skal
standa á mér að vera það líka.
Ég tel að ljóð skáldsins eigi að
vera heimild um þann tíma, sem
það hefur lifað á. En skáldið á
líka með nokkrum liætti að móta
sína kynslóð, skilja eftir spor. Hitt
er svo annað mál, hversu vel mörg-
um okkar tekst að gegna þessu
hlutverki. Það fer eftir eðli skálds-
ins og hæfileikum hversu mjög
það finnur til í stormum sinnar
tíðar. Öll ]jóð eru með einhverj-
um liætti áróður, en skáldið þarf
að vera liafið yfir múgsefjun
stjórnmálamannanna.
Ég var einn meðal þúsundanna,
sem stóð í rigningunni á Þingvöll-
um 17. júní 1944. Þá var ég ungur
maður. Það voru feður okkar og
mæður, sem þá gáfu okkur land-
ið, frjálst og ríkt, þá átti þjóðin
jafnvel fjármuni til þess að miðla
helsærðum stríðsþjóðum. Nú er
ég fulltíða maður og skáld. Hvar
er hið frjálsa og auðuga ríki, sem
ég get gefið sonum mínum, þegar
þeir Jieimta það af mér á sínum
manndómsárum?
Þessi spurning lieldur fyrir mér
vöku, og öll liin ljóðfögru orð mín
hrynja í duftið.
Skáldið á að liafa góða sam-
vizku.