Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Side 7
DV Fréttir mánudagur 15. október 2007 7
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Fitusog án
skurðaðgerðar
10 daga meðferð sem
jafnast á við fitusog. Húðin
stinnist og appelsínuhúð
hverfur. 100% ánægja að
meðferð lokinni
Tilboðsverð kr. 24.900.-
Stórhöfða 17 • 110 Reykjavík
577 7007
Sími:
Skagamenn
svara Tryggva
Bæjarstjóra og bæjarlög-
manni Akranesbæjar var á
síðasta fundi bæjarráðs falið
að svara spurningum umboðs-
manns Alþingis.
Tryggvi Gunnarsson, um-
boðsmaður Alþingis, beindi tólf
spurningum til borgarstjórn-
ar Reykjavíkur og bæjarstjórna
Akraness og Borgarbyggð-
ar vegna þeirrar ákvörðun-
ar stjórnar og eigendafund-
ar Orkuveitu Reykjavíkur og
Reykjavíkur Energy Invest um
að sameinast Geysi Green En-
ergy. Umboðsmaður spurði
meðal annars um lögmæti
þeirra ákvarðana sem voru
teknar, umboð þeirra sem tóku
þær og verðmat.
Töluverðrar óánægju hefur gætt
meðal starfsmanna fyrirtækja og stofn-
ana sem fá utanaðkomandi fyrirtæki
til að skrá veikindi þeirra. Þetta geng-
ur svo langt að stéttarfélagið SFR hef-
ur hvatt félagsmenn sína til að hunsa
skráninguna.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
í Reykjavík er meðal þeirra stofnana
sem hafa þann háttinn á en fyrirtæk-
ið InPro hefur haft milligöngu milli
stofnunarinnar og starfsfólks þegar
veikindi verða. Nú verða starfsmenn
að tilkynna veikindin til InPro. Að því
loknu verða starfsmennirnir svo að
láta yfirmenn sína vita af veikindum
sínum eins og áður.
Starfsmaður hjá Svæðisskrifstof-
unni hafði samband við stéttarfélag-
ið SFR sem ákvað í kjölfarið að hafa
samband við Persónuvernd vegna
málsins. Málið kom inn á borð henn-
ar á fimmtudaginn og verður tekið til
skoðunar á næstu dögum. Metið verð-
ur hvort brotið hafi verið gegn lögum
um persónuvernd. Hlutverk InPro er
að skrá veikindi og þurfa sjúklingar að
svara spurningum um veikindi sín og
hvers eðlis þau eru. Skráningunum er
svo safnað í gagnagrunn sem fólk get-
ur látið eyða þegar það hættir hjá við-
komandi fyrirtæki. Í bréfi sem starfs-
menn svæðisskrifstofunnar fengu frá
InPro segir að hægt verði að bera sam-
an veikindi milli starfsmanna, deilda
og fyrirtækja.
Engin markaðsvara
„Eftir því sem við best vitum er
þetta óheimilt,“ segir Þórarinn Eyfjörð,
framkvæmdastjóri SFR. Þórarinn seg-
ir að SFR samþykki ekki að þriðji aðili
sjái um að safna viðkvæmum upplýs-
ingum um veikindi fólks.
Þórarinn segir að kerfisbundin
skráning á upplýsingum um ákveðna
hópa sé óheimil nema með upplýstu
samþykki viðkomandi. SFR sendi er-
indi til Persónuverndar þess efnis að
hún rannsakaði lögmæti slíkra skrán-
inga og hvernig farið er með upp-
lýsingarnar. Svæðisskrifstofa mál-
efna fatlaðra í Reykjavík er aðeins eitt
margra fyrirtækja og stofnana sem
samið hafa við InPro um milligöngu
um veikindi starfsmanna. Þórarinn
segir að eftir að þessi ábending barst
til þeirra hafi þeir skrifað bréf til félaga
SFR hjá Svæðisskrifstofunni þar sem
hvatt var til að starfsmenn sniðgengju
þessa skráningu. „Þetta er gjörningur
sem er að okkar áliti ekki réttlætanleg-
ur. Það er ekkert stjórnsýsluvald sem
nær yfir einhver einkafyrirtæki. Það
veit enginn hvort þeir safni þessum
upplýsingum sem vöru sem hægt er
að selja á markaði.“
Ekki skylt að svara
Björn Aðalsteinsson, sviðsstjóri
heilsuverndar hjá InPro, segir að þeg-
ar fólk hafi samband fái það upplýs-
ingar um þjónustuna og að því sé ekki
skylt að svara spurningum hjúkrunar-
fræðinga InPro. „Þetta er valfrjálst þó
að flestir kjósi að tala við okkur og fá
ráðleggingar í sínum veikindum. Fyr-
irtækin gera samning við okkur um
trúnaðarlæknisþjónustu og þetta er
því ígildi læknisvottorða.“
Björn segir að fyrirtækið hafi
starfað í um tuttugu ár og um 70 fyr-
irtæki njóti þjónustunnar og um 14
þúsund starfsmenn.
Björn segir jafnframt að Persónu-
vernd hafi verið fengin til að meta
eðli og öryggi upplýsinganna og eng-
ar athugasemdir hafi verið gerðar við
það. „Þetta fellur í raun ekki undir
verksvið Persónuverndar því þetta er
rekið á grundvelli laga um heilbrigð-
isþjónustu.“
Stjórnendur Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra hafa tekið upp nýjar reglur um veikindi.
Nú verða starfsmenn að tilkynna veikindi á tveimur stöðum og þau fara í gagnagrunn.
VEIKINDI Í GAGNAGRUNN
Framkvæmdastjóri SFR Þórarinn vill
að Persónuvernd skoði lögmæti
skráningar InPro á veikindum starfs-
manna.
EinaR þóR SiguRðSSon
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Persónuupplýsingar
Fyrirtækið InPro sér um
skráningu veikinda hjá
þúsundum einstaklinga.
Meirihluti styður
nýjan meirihluta
Rúmlega helmingur borgarbúa
styður nýja meirihlutann í borgar-
stjórn, samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins. 56,5 prósent lýsa stuðningi
við nýja stjórn.
Samfylking með 31 prósent og
vinstri-græn með 19 prósent auka
fylgi sitt og bættu samkvæmt könn-
uninni við einum borgarfulltrúa
hvor flokkur um sig. Fylgi annarra
flokka minnkar. Sjálfstæðisflokkur
fengi 39 prósent, Framsóknarflokkur
6 prósent og frjálslyndir og óháðir 3
prósent. Sjálfstæðisflokkur og frjáls-
lyndir misstu einn fulltrúa hvor og
frjálslyndir þurrkuðust þar með út í
borginni.
41 prósent vill Dag B. Eggertsson
sem borgarstjóra, þriðjungi fleiri en
segjast myndu kjósa Samfylkinguna.
21 prósent vill Vilhjálm Þ. Vilhjálms-
son, rétt rúmur helmingur þeirra
sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokk.
„Ég nenni ekki lengur að berjast í
þessu og hef ákveðið að hætta núna.
Baráttan er ansi þung þó svo að við
höfum náð ýmsu fram. Vígið er svo
sem ekkert óvinnandi en ég get ekki
lengur staðið í þessu,“ segir Valdi-
mar Jónsson, fyrsti trúnaðarmað-
ur Strætós bs. Hann hefur síðustu
fjögur ár unnið ötullega að ýmsum
málum fyrir vagnstjórana og með-
al annars gagnrýnt stjórnendur fyr-
irtækisins fyrir sífelldar leiðakerfis-
breytingar og brot á hvíldartímarétti
bílstjóra. Þrátt fyrir að eitt og annað
hafi náðst fram í baráttunni hefur
Valdimar áhyggjur af því hversu lítið
vagnstjórarnir standi saman.
Tólf frambjóðendur bjóða sig
fram til kjörs fulltrúa Strætós bs. hjá
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborg-
ar. Fjórir fulltrúar verða kjörnir og
þeir gegna jafnframt stöðu trúnaðar-
manna hjá fyrirtækinu. Bílstjórarn-
ir funduðu fyrir helgi þar sem fram-
bjóðendur kynntu áherslur sínar en
kosið verður í lok mánaðarins.
Valdimar er ekki einn þeirra sem
bjóða sig fram að þessu sinni. Að-
spurður segir hann mikla vinnu fram
undan fyrir þá sem hljóta kjör sem
trúnaðarmenn. Hann segir vakta-
kerfið meginvandann í sínum huga.
„Hljóðið er ekki gott í mannskapn-
um og mikilvæg barátta fram und-
an í kjaramálum og óánægjan með
vinnukerfið er mikil. Þeir sem eru nú
að bjóða sig fram vita ekki út í hvað
þeir eru að fara,“ segir Valdimar.
trausti@dv.is
Skortir samstöðu í hópinn
Kosningabarátta hjá vagnstjórnum:
Erfið barátta kjör á nýjum
trúnaðarmönnum vagnstjóra
fer fram á næstunni.