Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Page 9
DV Fréttir mánudagur 15. október 2007 9
Lýðræði að vestrænni fyrir-
mynd mun aldrei verða í Kína.
Kínversk stjórnvöld munu halda
áfram stjórnarfarslegum umbót-
um, sagði Li Dongsheng aðalræðu-
maður á sautjánda þingi Komm-
únistaflokksins í Kína, en bætti við
að ekki yrði horft til Vesturlanda í
þeim umbótum. Nokkrir flokks-
meðlimir hafa viðrað þá skoð-
un að breytingar á stjórnarfarinu
væru nauðsynlegar vegna hinnar
öru efnahagslegu uppbyggingar
sem átt hefur sér stað í landinu. Li
Dongsheng var fljótur að hafna öll-
um vangaveltum um að fjölflokka
lýðræði yrði á endanum komið á
í Kína. Ummæli hans koma ekki á
óvart enda eru þau í anda þess sem
helstu leiðtogar flokksins hafa sagt
á árum áður.
Yfirlýsingar Li Dongsheng gefa
tóninn fyrir þing Kommúnista-
flokksins, en á því verða lagðar
línurnar sem móta munu Kína á
komandi árum. Auk þess sem þátt-
takendur ræða stefnu landsins til
framtíðar er einnig á dagskrá að
breyta stjórnarskrá flokksins með
það fyrir augum að koma á meira
jafnvægi í efnahagslegri þróun.
Með breytingunum, sem eru runn-
ar undan rifjum Hu Jintao, forseta
landsins, á að koma í veg fyrir að
efnahagsleg uppbygging leiði ekki
til mengunar eða breikkandi bils á
milli fátækra og ríkra.
Árið 2002 var stjórnarskrá
flokksins breytt vegna vilja þáver-
andi forseta, Jiang Zemin, en hann
vildi reyna að laða að flokknum
fólk úr fleiri stéttum samfélagsins
og horfði þá sérstaklega til hins sí-
stækkandi hóps nýríkra viðskipta-
manna.
Kína mun fram halda pólitískum endurbótum:
Forseti Rússlands, Vladimír Pút-
in, hefur verið varaður við að hann
eigi yfir höfði sér morðtilræði á með-
an á heimsókn hans til Írans í vik-
unni stendur. Samkvæmt Interfax-
fréttamiðluninni var þetta haft eftir
starfsmönnum rússnesku leyniþjón-
ustunnar. Þeir sögðu að hópur sjálfs-
morðssprengjumanna ætlaði að gera
tilraun til að ráða Pútín af dögum í
Teheran, höfuðborg Írans, en Pútín
kemur þangað í dag frá Þýskalandi,
þar sem hann hefur setið fundi. Utan-
ríkisráðherra Írans hefur vísað þess-
um orðrómi á bug og sagt að enginn
fótur sé fyrir honum.
Vladimír Pútín mun hitta Mahm-
oud Ahmadinejad, forseta Írans, auk
þess sem hann tekur þátt í ráðstefnu
þjóða við Kaspíahaf. Hann er fyrsti
forseti Rússlands til að heimsækja
Íran síðan Jósef Stalín sótti þar ráð-
stefnu bandalagsþjóða Sovétríkjanna
árið 1943, þegar síðari heimsstyrjöld
stóð hvað hæst.
Komið í veg fyrir nokkrar
tilraunir
Talsmaður rússnesku ríkisstjórn-
arinnar sagði í viðtali við AFP-frétta-
stöðina að þau vildu ekki tjá sig um
orðróminn, en sagði þó að búið væri
að upplýsa forsetann. Interfax sagði
að starfsmenn leyniþjónustunn-
ar byggðu mat sitt á upplýsingum
sem þeir hefðu fengið frá nokkrum
heimildarmönnum utan Rússlands.
Rússneskir embættismenn hafa sagt
að síðan Pútín tók við embætti for-
seta árið 1999 hafi komist upp um
þó nokkur áform um að ráða hann
af dögum þegar hann hefur verið á
ferðalögum erlendis. Meðal annars
var komið í veg fyrir tilræði við Pútín
á Yalta skömmu eftir að hann tók við
embætti.
kolbeinn@dv.is
Brennuvargur á Norðurbrú
Aðfaranótt sunnudagsins voru
kveiktir þrír eldar á Norðurbrú í
Kaupmannahöfn. Um miðnætur-
leytið var kveiktur eldur við Uff-
esgade og sleiktu eldtungurnar
bakhlið verslunarinnar Fakta og
tíu mínútum síðar var slökkviliðið
kallað út vegna eldsvoða í Allers-
gade við Netto-verslun. Þar var um
að ræða svo mikinn eld að kalla
þurfti matvælaeftirlitið til svo unnt
væri að meta hvort matvæli hefðu
skemmst. Þremur stundarfjórð-
ungum eftir fyrsta eldsvoðann var
svo kveiktur eldur í gámi í Thors-
gade. Ekki liggur fyrir hvort um var
að ræða einn og sama brennuvarg-
inn í öllum tilfellunum.
Ósáttir við túlkun annarra
Tyrknesk yfirvöld eru ekki sátt við
stjórnvöld í Washington í Banda-
ríkjunum um þessar mundir.
Nýlega var samþykkt ályktun í
Bandaríkjunum sem meðal annars
felur í sér að fjöldamorðin á Arm-
enum á fyrstu tveimur áratugum
síðustu aldar eru túlkuð sem þjóð-
armorð. Það geta Tyrkir ekki sætt
sig við. Þeir hafa kallað sendiherra
sinn heim frá Bandaríkjunum og
til að undirstrika enn frekar ósætti
Sá hræðilegi látiNN
irmaður forsetalífvarðarins. Þá tók
hann líka íslamska trú og breytti
nafni sínu í Said Mustapha Mahdj-
oub. Eftir þetta bundust Comoros-
eyjar og Suður-Afríka, sem þá var
undir stjórn hvíta minnihlutans,
tryggðarböndum.
Denard flýði frá Comoros-eyj-
um árið 1989 eftir að Abdallah
forseti hafði verið ráðinn af dög-
um. Denard var sakaður um að
hafa staðið að morðinu. Því neit-
aði hann þó sjálfur. Fljótlega eftir
þetta settist Denard í helgan stein.
Það stóð þó ekki lengi. Enn og aft-
ur urðu Comoros-eyjar vettvangur
aðgerða hans. Hann stýrði hópi 30
málaliða sem sigldi í land á gúm-
bátum og steypti stjórnvöldum af
stóli. Það ævintýri stóð þó aðeins
í viku, eða þar til franski herinn
mætti á staðinn og handsamaði
málaliðahópinn.
Fyrir síðasta valdaránið á Com-
oros-eyjum var Denard dæmd-
ur í fjögurra ára fangelsi. Hann
afplánaði þann dóm þó ekki þar
sem hann var talinn of sjúkur til að
þola fangelsisvist.
Hægrisinnaðir stuðnings-
menn
Staða Bobs Denard var sterk-
ust þegar hægrimenn fóru með
völd í Frakklandi. Einkum átti það
við í valdatíð Charles de Gaulle.
Hægri hönd de Gaulles í málefn-
um Afríku, Jacques Foccart, var
talinn hafa verið í sambandi við
Denard þegar á þurfti að halda.
Þegar réttað var yfir málaliðanum
á síðasta ári sagði fyrrverandi yfir-
maður frönsku leyniþjónustunnar
að þegar ráðast hefði þurft í vissar
aðgerðir sem opinberir aðilar gátu
ekki tengst hafi verið kallað á Bob
Denard.
Denard viðurkenndi í sjálfs-
ævisögu sinni að þótt hann hefði
löngum sagst starfa með samþykki
franskra stjórnvalda hefði það
kannski alltaf átt við. „Oft var það
svo að ef ég hafði ekki beinlínis
fengið græna ljósið hjá frönskum
stjórnvöldum fór ég yfir á gulu.“
Aldrei lýðræði Að
veStræNNi fyrirmyNd
Rússlandsforseti skotmark sjálfsmorðssprengjumanna:
vArAður við morðtilræði
sitt hóta þeir nú að ráðast gegn
Kúrdum í norðurhluta Írak. Beiðni
Condoleezzu Rice um hið gagn-
stæða virðist falla í grýttan jarðveg
hjá tyrkneskum stjórnvöldum.
Fyrir rétti Valdaránstilraunir í benín
og á Comoros-eyjum urðu til þess
að bob denard var tvisvar dreginn
fyrir dómstóla í Frakklandi og
fundinn sekur um lögbrot.
Vladimír Pútín komið hefur verið í
veg fyrir nokkur morðtilræði við hann.
Li Dongsheng Lýðræði að vestrænni
fyrirmynd ekki á dagskrá í kína.