Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 18
mánudagur 15. október 200718 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Góður siGur Ítala
Ítalir komust í annað sæti b-riðils eftir
góðan 2–0 sigur á georgíu. andrea Pirlo
og Fabio grosso skoruðu mörkin fyrir
Ítali en þeir biðu frá á 84. mínútu með
að innsigla sigurinn. Pirlo skoraði með
góðu marki beint úr aukaspyrnu rétt
fyrir hálfleik en fram að því höfðu
georgíumenn, sem eru þjálfaðir af klaus
toppmöller, átt síst minna í leiknum. Í
síðari hálfleik tóku Ítalir öll völd og
hefðu átt að vera búnir að gera út um
leikinn þegar grosso skorði síðara
markið sex mínútum fyrir leikslok. Ítalir
eru sem stendur í öðru sæti b-riðils, einu
stigi á eftir Skotum.
Króatar svo Gott sem
Komnir á em
króatar svo gott sem tryggðu sér farseð-
ilinn í evrópukeppnina í Sviss og
austurríki á næsta ári með 1–0 sigri á
Ísraelum. Þar með skilja átta stig að
króata og rússa sem eru í þriðja sæti e-
riðils þegar þrír leikir eru eftir en tvö
efstu liðin í riðlinum komast beint á
evrópumótið. eduardo da Silva,
leikmaður arsenal, skoraði eina mark
leiksins í upphafi síðari hálfleiks og
Slaven bilic, þjálfari liðsins, getur nú
verið rólegur og horft á englendinga og
rússa berjast um sæti í lokakeppni
evrópumótsins. Ísraelar geta hins vegar
kvatt drauminn og ljóst að þeir komast
ekki þangað eftir þetta tap.
GriKKir á toppi C-riðils
evrópumeistar grikkja sigruðu bosníu
Hersegóvínu og juku þar með forystu
sína á toppi C-riðils. Leikurinn endaði
3–2 en bosníumenn spiluðu einum
færri stóran hluta úr leiknum. Fyrsta
markið skoraði angelos Charisteas fyrir
grikki en mirko Hrgovic jafnaði fyrir
bosníumenn áður en hann var rekinn út
af skömmu síðar. grikkir bættu svo við
tveimur mörkum áður en bosníumenn
minnkuðu muninn. með sigrinum náðu
grikkir fjögurra stiga forystu á tyrki sem
eru í öðru sæti, en norðmenn eru með
einu stigi minna en tyrkir. Öll liðin hafa
spilað níu leiki og eiga þrjá leiki eftir
óspilaða í riðlinum.
pólverjar vöKnuðu Í myrKrinu
Pólverjar voru einu marki undir á heima-
velli gegn kasakstan þegar skyndilega
varð rafmagnslaust á Legía-vellinum í
Póllandi. eftir að rafmagnið komst aftur
á breyttu Pólverjar leiknum sér í hag og
skoruðu þrívegis á tíu mínútna kafla. Öll
mörk heimamanna gerði eusebiusz
Smolarek í síðari hálfleik en hann spilar
með racing Santanter á Spáni.
„Venjulega fer fólk að sofa þegar ljósin
slokkna. en í þessu tilviki vöknuðum við
í myrkrinu,“ sagði markaskorarinn
Smolarek eftir leikinn. Pólverjar eru á
toppi a-riðils, fjórum stigum á undan
Finnum og Portúgölum en þeir
síðarnefndu eiga leik til góða.
Skotar unnu Frakka öðru sinni
í París í síðasta mánuði og komust
þar með í góða stöðu til að kom-
ast á lokakeppni í fyrsta sinn síðan
á HM 1998. Þeir byrjuðu með látum
og skoruðu tvisvar á fyrstu tíu mín-
útum leiksins. Kenny Miller skor-
aði eftir sendingu Lees McCulloch,
óverjandi fyrir Olexandr Shovkov-
skiy. McCulloch skoraði svo sjálfur
eftir aukaspyrnu Barrys Ferguson.
Andriy Shevchenko minnkaði mun-
inn en James McFadden skoraði síð-
asta mark leiksins og tryggði að stigin
þrjú færu ekki frá Skotlandi. Þar með
er ljóst að Úkraína blandar sér ekki í
toppbaráttuna. Þeir eru úr leik. Skot-
ar eiga tvo leiki eftir og halda enn
Frökkum og heimsmeisturunum frá
Ítalíu fyrir aftan sig. Þeir spila við Ge-
orgíu á miðvikudag og lokaleikurinn
er gegn Ítölum á heimavelli.
„Þvílíkt ferðalag fyrir þessa drengi.
Enginn átti von á þessu þegar riðill-
inn byrjaði og ég hef aldrei lent í jafn-
erfiðum riðli,“ sagði Alex McLeish,
stjóri Skotlands. „Þetta er besti leik-
ur Skotlands á þessum frábæra velli.
Þvílík frammistaða.
Við byrjuðum leikinn frábærlega
en bökkuðum of mikið eftir það og
leyfðum þeim að komast inn í leikinn.
Það var pínu svekkjandi en við vissum
að þeir myndu svara með áhlaupi. En
við fórum aldrei á taugum.
á hAMpden
skotar eru á góðri leið með að komast í lok
akeppni stórmóts í fyrsta
sinn í áratug. Liðið lagði Úkraínu 3–1
fyrir framan troðfullan
Hampden Park. Úkraínski þjálfarinn
hafði sagt fyrir leikinn að hann
myndi segja af sér kæmust hans men
n ekki í lokakeppnina.
SkOTAR SkeMMTu SéR
BenediKt Bóas hinKrisson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Þessir strákar halda bara áfram að
ganga á fjöll. Með hverjum sigri og
hverjum leik heldur þetta lið áfram
að þróast.“
trúum því að við getum
ekki tapað
Ef Skotar tapa gegn Georgíu á
miðvikudag er vonin ekki enn úti því
leggi þeir heimsmeistarana að velli
komast þeir í lokakeppnina í Sviss og
Austurríki. „Strákarnir vita af þess-
um möguleika. Leikurinn gegn Ítöl-
um er það sem allt snýst um en við
eigum leik í millitíðinni og ég vona
að menn mæti tilbúnir í þann leik,“
sagði McLeish.
James McFadden skoraði eitt
mark og var með í að búa hin mörk-
in til. „Að fara í þennan leik var gríð-
arlega erfitt því væntingarnar voru
miklar. En við vissum að við gætum
þetta og ætluðum að vinna þennan
leik og sem betur fer tókst það. Trú-
in á að vinna leiki í þessu liði er ótrú-
leg. Við trúum því að við getum varla
tapað. En glasið er bara hálffullt enn-
þá. Öll þjóðin er í góðu skapi þessa
stundina og leikmenn eru ekki síður
spenntir.“
McCulloch og Garry O’Conn-
or fengu báðir gult spjald í leiknum
og missa því af leiknum við Georg-
íu sökum leikbanns. Paul Hartley
og Gary Caldwell eru meiddir og því
erfitt að manna liðið með alvörufót-
boltamönnum. Darren Fletcher ætti
þó að vera orðinn klár í slaginn eft-
ir meiðsli. Skotar hafa nú unnið sex
leiki í röð í fyrsta sinn í 58 ár. „Það
voru miklir hæfileikar í liðinu úti á
vellinum. Við kláruðum færin okk-
ar vel og vörðumst einnig mjög vel.
Nú eru tveir bikarúrslitaleikir eftir og
ekki einu sinni bjartsýnustu menn
þorðu að spá okkur svona langt.
Undanfarin ár höfum við valdið fólk-
inu okkar vonbrigðum en nú má sjá
gleði á hverju andliti,“ sagði Alex
McLeish.
hvar ertu? Scott brown reynir að
ná í skottið á andriy Shevchenko.
1-0 kenny miller
skoraði fyrsta markið.
Frakkar unnu Færeyinga 6–0 í
Þórshöfn. Mörk frá Nicolas Anelka,
Thierry Henry, Jerome Rothen, Hat-
em Ben Arfa og tvö frá Karim Benz-
ema tryggðu Frökkum öll þrjú stigin
sem í boði voru,
Það eina sem Raymond Domen-
ech, landsliðsþjálfari Frakka, hafði
áhyggjur af eftir leikinn var hvernig
liðið kæmist heim og hvenær. Dom-
enech vildi komast strax aftur til Par-
ísar til að undirbúa liðið gegn Lithá-
um sem það mætir á miðvikudag.
Leikurinn sem slíkur er kannski
ekki merkilegur en Thierry Henry
jafnaði markamet Michels Platini.
Henry hefur nú skorað 41 mark í 95
landsleikjum. Forseta UEFA, Platini,
tókst að skora 41 mark í 72 landsleikj-
um. „Það er magnað að vera búinn
að jafna met jafnmerkilegs manns
því hann er svo þekktur í Frakklandi
Thierry Henry jafnaði markamet Michels Platini þegar Frakkar burstuðu Færeyinga 6–0:
henRy jAfn pLATini
og um allan heim,“ sagði Henry sátt-
ur.
Frakkar lentu í hrakförum á leið
sinni til Færeyja. Mikil þoka var í
Færeyjum og þurfti að snúa vélinni
til Bergen í Noregi, ekki Egilsstaða
eins og hefur verið haldið fram. Þar
var liðið kyrrsett í flugvélinni í 11
klukkutíma. „Svona ferðir eru efni í
góða sögu, sérstaklega þar sem við
unnum. Þetta er bara eitt þrep í stig-
anum. Við erum ekki komnir á EM
ennþá. Það tekst ekki nema við tök-
metið jafnað
thierry Henry skoraði framhjá Jakup
mikkelsen, markverði Færeyja, og
jafnaði met michels Platini.
nafn mörk Leikir
michel Platini 41 72
thierry Henry 41 85
david trezeguet 34 69
Zinedine Zidane 31 108
Just Fontaine 30 21
um níu stig úr þessum þremur leikj-
um. Einn er búinn og tveir eftir,“ sagði
landsliðsþjálfari Frakka og bætti við
að þolinmæði leikmanna hefði ver-
ið einstök. „Við vorum í vélinni í ein-
hverja ellefu klukkutíma og ekki einn
maður kvartaði. Þeir voru ekkert að
tuða eða með nein leiðindi. Það voru
allir einbeittir að ná þeim úrslitum
sem við ætluðum okkur.“
Domenech mun væntanlega tefla
William Gallas fram í liðinu á mið-
vikudag. Gallas hefur ekki spilað síð-
an í ágúst með landsliðinu og verður
væntanlega við hlið Lilians Thuram í
hjarta varnarinnar. Florent Malouda,
leikmaður Chelsea, er einnig talinn
líklegur til að byrja á miðvikudaginn.
Thierry Henry gæti orðið marka-
hæsti leikmaður Frakka á miðviku-
daginn. Takist honum að slá metið
mun það standa um langa hríð. Sá
eini sem gæti náð honum í dag er
David Trezeguet og hann á ekki upp
á pallborðið hjá Domenech þessa
dagana.
benni@dv.is