Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 3
DV Fréttir ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 2007 3 Reglur um línuívilnun höfðu mögulega áhrif á gjörðir skipstjórans á Björgu Hauks ÍS sem fórst í Ísafjarðar- djúpi fyrr á árinu. Sjómenn leggja sig frekar í hættu þegar þeir hafa eitthvað að græða eins og núgildandi reglur um línuívilnun fela í sér. Guðjón Arnar Kristjánsson kallar eftir breytingum og segir að gera þurfi kerfið mannlegra. Núgildandi reglur um línuíviln- un virka hvetjandi fyrir sjómenn á minni bátum til að taka aukna áhættu á sjó með því að sigla ekki til nálægustu hafnar þegar vont er í veðri. Í staðinn freistast þeir til að sigla til heimahafnar og landa þar gegn því að fá rúm þrettán prósent af aflanum dregin frá heildarkvót- anum. Gunnlaugur Á. Finnbogason, formaður Eldingar – félags smá- bátaeigenda í Ísafjarðarsýslum, seg- ir greinilega þörf vera á því að taka þessar reglur til gagngerrar endurskoðunar. Reglur um línuívilnun fela í sér að sjómenn sem landa ekki í sinni heimahöfn missa þann bónus að rúm þrettán prósent aflans eru dregin af veiðiheimildum. „Þessar reglur eru einfald- lega skrítnar og hættulegar. Það er alveg ástæðulaust að þær séu með þessum hætti,“ segir hann. Hjá Rannsóknarnefnd sjóslysa fengust þær upplýsingar að regl- ur um línuívilnun hefðu mögulega haft áhrif á gjörðir skipstjórans á Björgu Hauks ÍS sem sökk í Ísafjarð- ardjúpi fyrr á þessu ári. Þær upplýs- ingar fengust einnig að nefndin tel- ur frekar að sjómenn tefli á tæpasta vað ef þeir geta haft hagræði af því. Nefndin tjáir sig þó ekki beint um hvort þörf sé á að taka regluna til endurskoðunar. Getur munað hundruðum þúsunda Smábátaeigendur með fimm tonna afla sem landa í sinni heimahöfn fá um sex hundr- uð og sextíu kíló dregin frá af veiðiheimildum og miðað við kílóverð á þorski getur lönd- un í heimahöfn fært þeim um hundrað og sjötíu þúsund krónur aukalega. „Þetta eru þó nokkrir peningar sem eru í húfi fyrir smábátasjómenn og það er alveg skiljanlegt að þeir leggi þetta á sig til þess að missa ekki þennan bón- us. Venjulegur túr eftir meðalgóða veiði getur skilað smábátaeig- endum að meðaltali hundrað þúsund krónum aukalega vegna línuívilnunar.“ Gunnlaugur þekkir nokkur dæmi þess að sjómenn á smábátum hafi tekið óþarfa áhættu í veðurofsa til þess að ná í þennan bónus. Nýlega komust sjómenn á Snæfellsnesi í hættu þegar þeir sigldu fyrir nesið í stað þess að lenda á Arnarstapa. „Hér fyrir vestan þurfa sjómenn frá Ísafirði að landa til dæmis í Ísafjarð- arhöfn, en ekki á Flateyri eða í öðr- um nálægum höfnum, jafnvel þó svo veðurskilyrði geti kallað á að þeir landi í næstu höfn eða fari inn í firði þar sem lygnara getur verið.“ Hann vill sjá breytingar á reglun- um en þær þarf að gera á Alþingi. „Ég veit að það eru margir þingmenn á okkar bandi í þessu máli.“ Gera kerfið mannlegra Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins og einn eigenda Bjargar Hauks ÍS sem fórst í vor, tekur undir að breyta þurfi reglum um línuíviln- un. „Við bentum á það fyrir mörg- um árum að það væri ástæða til þess að endurskoða þessar reglur. Það er mjög skrítið ef reglurnar eru þannig að menn verða bara að róa í eina höfn sama hvað dynur á,“ segir Guðjón Arnar sem hefur verið einn ötulasti gagnrýnandi kvótakerf- isins. Hann segir kerfið allt orðið byggt þannig að það setji alltaf pressu á sjómenn. „Ég get ekki séð að það sé neitt því til fyrirstöðu að þessum reglum verði breytt og ef það þarf lagabreytingu til stendur ekki á okkur að gera þetta kerfi mannlegra.“ Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra segir nauðsynlegt að gæta þess að reglur á borð við línu- ívilnun stuðli að öryggi sjómanna en dragi ekki úr því. „Ég hef verið að skoða þessar línuívilnunarreglur með það í huga að breyta þeim til að tryggja öryggi sjómanna. Þessi vinna stendur yfir í ráðuneytinu, en mér er kunnugt um að við slæmar veðurfarsaðstæður hefur því ekki verið fylgt eftir að menn geti notið línuívilnunar ef þeir landa ekki í heimahöfn. Það er þess vegna innbyggður sveigj- anleiki í reglunni.“ Einar segir niðurstöðu að vænta fljótlega, en óvíst er hvenær það verð- ur. „Hugsanlega þarf lagabreytingu til en hugsanlega má stýra þessu með reglugerð.“ STÓRHÆTTULEG REGLA F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 14. mars 2007 dagblaðið vísir 22. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235 fréttir Buðu samninga fólk Byssur oG fíkniefni Lifir í ævintýri DV Sport miðvikudagur 14. mars 2007 15 sport@dv.is Stjarnan heldur tveggja Stiga forSkoti í dhl-deild kvenna eftir leiki gærkvöldSinS. allt um dhl-deild kvenna á blS. 17. „Viking ætlar að athuga hvort þeir fái mig leigðan en þetta er á algjörum byrjunarreit,“ sagði Höskuldur í gær. Hann dvaldi við æfingar hjá norska liðinu Viking í vikutíma og segist hafa staðið sig þokkalega á æfingum þótt alltaf megi gera betur. „Þessar æfingar þarna úti voru mikið taktískar og lítið um spil. Ég fékk svo sem ekkert mikið tækifæri á að sýna mig en ég gat þó sýnt þeim eitthvað. En aðaldæmið var æfing- arleikur sem ég spilaði á föstudag- inn. Ég persónulega var ekki neitt gríðarlega ánægður með frammi- stöðu mína í þeim leik en ég stóð mig ágætlega varnarlega en var lítið með í sókninni. Ég á heilmikið inni til að sýna þeim en það er ánægjulegt að þeir hafi orðið svona hrifnir þrátt fyr- ir allt,“ sagði Höskuldur í léttum tón. Viking vill leigja Höskuld út tíma- bilið og segir Höskuldur að slíkt fyrir- komulag henti sér og sinni fjölskyldu vel. „Ef ég fer þarna út og mér og minni fjölskyldu líkar ekki vel þá er snilld að geta komið aftur heim án allra skuldbindinga. Og eins ef mér gengur illa að vinna mér sæti í liðinu og fæ lítið að spila þá að sama skapi get ég gengið burt í staðinn fyrir að vera á þriggja eða fjögurra ára samn- ingi.“ Róbert Agnarsson, formað- ur knattspyrnudeildar Víkings, er staddur í Bandaríkjunum og vissi ekki til þess að Norðmennirnir hefðu haft samband. „Mér vitandi hafa þeir ekki haft samband. Ég mundi helst ekki vilja missa Höskuld. Hann er náttúrulega einn af okkar mikilvægustu mönn- um, bæði sem karakter og leikmað- ur. Þetta er toppdrengur en við mun- um að sjálfsögðu aðstoða hann í því sem hann vill gera, þannig höfum við rekið þetta hjá okkur. Þetta er svo fjölskylduvænt félag,“ sagði Róbert. benni@dv.is Höskuldur Eiríksson Á heilmikið inni til að sýna þeim StjörnuStúlkur á beinu brautinni Sport Miðvikudagur 14. mars 2007 sport@dv.is Allt um leiki næturinnar í NBA NBA Mikið var um dýrðir á Old Trafford í Manchester í gær DV-sport fylgir tveir sjómenn létus björg hauks ís sökk í nótt í vonsku veðri: - þegar fyrstu bátar komu á slysstað voru mennirnir látnir. sjá baksíðu. >> Arnar Jensson sat margar klukkustundir í vitnastúku í Baugsmálinu >> Forsetar Mexíkó og Bandaríkjanna funda. Hundsa hefðir >> Forystmenn stjórnarflokkanna sæta mikilli gagnrýni á Bahamaeyjum Prentað í morgun Guðjón Arnar Kristjánsson Vill breyta reglum um línuívilnun. Björg Hauks ÍS Rannsóknarnefnd sjóslysa telur að reglur um línuívilnun hafi haft áhrif á aðgerðir skipstjórans, en mjög vont veður var þegar báturinn sökk. Einar K. Guðfinnsson „Ég hef verið að skoða þessar línuívilnunarreglur með það í huga að breyta þeim til að tryggja öryggi sjómanna.“ VAlGEir Örn rAGnArSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Jólamyndatökur Mynd, ljósmyndastofa Bæjarhrauni 26 · Hafnarfirði www.ljosmynd.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.