Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 4
ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 20074 Fréttir DV Orkulindir ekki einkavæddar „Þetta gengur ágætlega. Eftir þróun mála síðustu viku er ekki sami þrýstingur á því að ljúka vinnunni og því gott að taka sér góðan tíma,“ segir Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra. Össur vinnur að auðlinda- frumvarpi. Fyrir skömmu lá fyrir skoðun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins í meirihluta borgarstjórn- ar að selja hlut Orku- veitunnar í REI. Í kjölfar- ið blasti við að iðnað- arráðherra þyrfti að flýta sinni vinnu. Össur er nú feginn að fá meiri tíma og segir svipuð við- horf beggja vegna ríkisstjórnar- borðsins til frumvarpsins. „Það stendur ekki til að einkavæða orkulindirnar,“ segir Össur. Fljúgandi hálka á Suðurlandsvegi Vetur konungur minnti hressilega á sig í gærmorgun en mikið var um umferðaróhöpp á Suðurlandsvegi í morgun- sárið. Hrinan byrjaði klukkan hálfátta þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og velti honum skammt frá Litlu kaffistofunni. Tveir voru í bílnum og voru þeir fluttir á slysadeild en meiðsl voru ekki alvarleg. Í kjölfarið varð fjög- urra bíla árekstur skammt frá og slasaðist enginn. Útlendur ferðamaður missti stjórn á bíl sínum um hálftíma síðar með þeim afleiðingum að hann valt. Ökumaður og farþegi sluppu án teljandi meiðsla en bíllinn fór nokkrar veltur og er ónýtur. Töluverðar tafir urðu á umferð vegna óhappanna. ÆTLAR AÐ FARA MEÐ MÁLIÐ ALLA LEIÐ „Það er alveg klárt að þessum dómi verður áfrýjað,“ segir Sigurður Ingi Halldórsson, einn stofnenda flugfé- lagsins Iceland Express. Í nóvember árið 2004 keypti Pálmi Haraldsson, kenndur við eignarhaldsfélagið Fons, flugfélagið Iceland Express. Það hafði þá verið rekið með talsverðu tapi frá stofnun þess árið 2003. Þessi viðskipti Pálma urðu kveikjan að málaferlum fyrri eigenda flugfélagsins. Þeir hafa sakað Pálma um að hafa unnið með refsiverðum viðskiptaháttum að því að knésetja flugfélagið. Kröfur Sigurðar hljóðuðu upp á 21 milljón króna, auk dráttarvaxta frá árinu 2005, vegna mis- munar í verðmati á félaginu þegar það var selt. Dómur í málinu féll í Héraðs- dómi á föstudag og var Fons sýknað af kröfum Sigurðar. Hann segist ætla að áfrýja dóminum til Hæstaréttar. 700 milljóna mismunur Iceland Express var stofnað síðla árs 2003 en frá upphafi höfðu stofnendur félagsins, þeir Guðmundur Þór Guð- mundsson lögfræðingur, Aðalsteinn J. Magnússon og Sigurður Ingi Hall- dórsson, áhuga á að fá nýja fjárfesta inn í félagið. Haustið 2004 komu Pálmi Haraldsson og félagið Iceland Express Investment S.A. inn í félagið og keyptu 89 prósenta hlut í félaginu fyrir fimm- tán milljónir. Deilur spruttu í kjölfar- ið um verðmatið á fyrirtækinu en fyrri eigendur lögðu til að félagið yrði metið á 2,2 milljarða króna. Niðurstaðan varð þó sú að félagið var metið á helmingi lægri upphæð eða 1,1 milljarð króna og var sá samningur undirritaður 16. sept- ember árið 2005. Fyrri eigendur fengu þá 88 milljónir króna til skiptanna. Matsmenn voru fengnir til að meta verðmæti fyrirtækisins og 23. mars árið 2006 komust þeir að því að verðmæti félagsins á þeim degi sem samningar voru undirritaðir hafi verið um 1.800 milljónir króna. Í kjölfar þeirrar niður- stöðu var óskað eftir samningaviðræð- um um leiðréttingu á þessu söluverði í samræmi við matið. Þær samninga- viðræður báru ekki árangur og var mál- ið því kært. Sigurður taldi sig ekki hafa fengið eðlilegt endurgjald fyrir hlut sinn í félaginu. Bjargað frá fangelsisvist DV fjallaði um málið í apríl á þessu ári og þá sagði Pálmi Haralds- son að fyrri eigendur ættu að vera þakklátir því með kaupunum hafi þeir komist hjá því að lenda í fang- elsi og þeir verið dregnir upp úr drulluforinni sem þeir höfðu komið sér í. Fyrri eigendur Iceland Express saka Pálma hins vegar um að hafa unnið að því með refsiverðum við- skiptaháttum að knésetja flugfélagið til þess eins að hirða það af þeim á fimmtán milljónir króna. Í DV í apríl lýsti Pálmi því þannig að þeir hefðu keypt félagið þegar það var gjaldþrota. Hann sagði að þeir hefðu greitt fimmtán milljónir fyrir helminginn af hlutafénu en til við- bótar lagt til 250 milljónir í aukið hlutafé. Af þeirri upphæð hafi tugir milljóna farið í svokallað vörslufé, en við vanskilum á því liggja fangelsis- refsingar. Bjartsýnn á sigur Þegar samningurinn upp á 1.100 milljónirnar var undirrit- aður taldi Sigurður sig vera að gera góðan samning. Hann hafi fyrir tilviljun séð söluyfirlit yfir félagið, þar sem verðmæti félags- ins var talið mun meira. Dómur- inn féllst þó ekki á rök Sigurðar á þeim grundvelli að þarna hafi verið um gildan samning að ræða og þeim sé aðeins vikið til hliðar í undantekningartilfellum. Sigurður segist bjartsýnn á að sigur náist í Hæstarétti. „Ég tel að möguleikar mínir séu góðir en við sjáum bara hver niðurstaða Hæstaréttar verður.“ Einar Þór SigurðSSon blaðamaður skrifar einar@dv.is Pálmi Haraldsson og félagar í eignarhaldsfélag- inu Fons voru sýknaðir af kröfum Sigurðar inga Halldórssonar, eins af stofnendum Iceland Ex- press. Pálmi keypti félagið árið 2004 þegar það sigldi beint í gjaldþrot. Menn sættust á að félagið væri 1.100 milljóna virði og var samningur þess efnis undirritaður. Síðar voru fengnir matsmenn sem mátu félagið á 1.800 millj- ónir. Sigurður vildi fá hluta mismunarins greiddan en fékk ekki. Sigurður ætlar að áfrýja til Hæstaréttar. F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð mánudagur 2. apríl 2007 dagblaðið vísir 35. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235 fréttir Vantar lögreglumenn tónlist Útvöldum boðið til útlanda Shogun sigraði Í gær varð Magnús Ingi Helgason Íslands- meistari í einliðaleik karla í badminton í fyrsta sinn. Hann bar sigurorð af Tryggva Nielsen í úrslitaleik með tveimur lotum gegn einni en báðir eru þeir úr TBR. Magnús Ingi vann tvær lotur en Tryggvi eina. Í einliðaleik kvenna varð Ragna Ingólfsdóttir Íslandsmeistari fimmta árið í röð en hún lagði Tinnu Helgadóttur í úr- slitum í tveimur lotum, báðar fóru 21-11. Ragna var sigursæl á mótinu og vann þrenn gullverð- laun. Í tvíliðaleik unnu Ragna og Katrín Atladótt- ir gullverðlaun en þær unnu Tinnu Helgadótt- ur og Helgu Jóhannsdóttur af miklu öryggi í tveimur lotum í úrslitaleik. Ragna og Katrín unnu fyrri lotuna 21-9 og hina 21-10. Þetta var því sami úrslitaleikur og í fyrra og úrslitin einn- ig á sama veg. Þá fagnaði Ragna einnig sigri í tvenndarleik ásamt Helga Jóhannessyni en þar lögðu þau systkinin Magnús og Tinnu Helgabörn í úrslit- um. Í tvíliðaleik karla urðu þeir Magnús Ingi og Helgi Jóhannesson Íslandsmeistarar með því að leggja þá Tryggva Nielsen og Svein Sölvason í úrslitum. Sú viðureign fór í oddalotu þar sem fimm síðustu stigin voru Magnúsar og Helga sem unnu oddalotuna 19-21. elvargeir@dv.is DV Sport mánudagur 28. mars 2007 11 SportMánudagur 2. apríl 2007 sport@dv.is Stjarnan tryggði Sér um helgina meiStaratitilinn í Dhl-DeilD kvenna þrátt fyrir að liðið eigi enn eftir að Spila þrjá leiki. blS. 16 ÍR-ingar eru á mikilli siglingu eftir sigur á Stjörnunni Þrefalt hjá rögnu og tvöfalt hjá Magnúsi Allt um leiki næturinnar í NBA NBA StjörnuStúlkur MeiStarar Íslandsmeistarar magnús Ingi Helgason og ragna Ingólfsdóttir. DV-sport fylgir rimlaskattur og 100 milljónir Pálmi Haraldsson um kauPin á iceland exPress: Tortryggni í samstarfi >> Ósætti meðal starfs- manna Seltjarnarnesbæjar Prentað í m orgun - fyrrum eigendur segjast hafa tapað miklu. ráku fyrirtækið lóðrétt niður, segir kaupandinn. sjá bls. 2 >> Kínverjar og Rússar vinna saman en totryggnin er ráðandi fréttir Músiktilraunir 2007 DV 2. apríl. Pálmi í Fons Pálmi og félagar í Fons keyptu Iceland Express þegar það var að sigla í gjaldþrot. Fons var sýknað af kröfum Sigurðar. Einkaneysla eykst Einkaneysla jókst um 4 til 6 prósent frá fyrra ári ef bornir eru saman þriðju ársfjórðungar áranna. Kreditkortavelta í sept- ember nam rúmum 24 millj- örðum króna, ríflega einu pró- senti meira en á sama tíma í fyrra. Hins vegar dróst veltan sam- an um sjö prósent frá ágústmánuði en hafa verður í huga að þá var velt- an mjög mikil. Kreditkortavelta, að viðbættri debetkortaveltu í innlendum verslunum, gefur góða vísbend- ingu um þróun einkaneyslu. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Hópslagsmál á Vestfjörðum Lögreglan á Ísafirði stöðvaði slagsmál fyrir utan Edinborgar- húsið á Ísafirði aðfaranótt laugar- dagsins. Töluvert var um ölvun en lögreglu tókst að koma ró á mann- skapinn og var enginn handtekinn. Lögreglan á Hólma- vík stöðvaði aðfara- nótt sunnudagsins hópslagsmál ölvaðra manna á hafnarsvæðinu á Hólmavík. Einn maður var hand- tekinn vegna málsins og hann færður á lögreglustöð í bænum. n „Dagur er óhemju dug- legur, vandvirkur og heiðarlegur. Rík réttlæt- iskennd fer ákaflega vel saman við dugnaðinn hjá Degi. Sem persóna er Dagur afslappaður, vinmargur, opinn og skemmtilegur og mikill fjöl- skyldumaður. Við bröllum ýmis- legt saman í frístundum, enda eigum við dætur á sama aldri,“ segir Guðmundur Steingrímsson, varaþingmaður Samfylking- arinnar og vinur Dags til margra ára. n „Dagur er afskaplega vinnusamur og dug- legur. Hann kemur miklu í verk með dugnaði sínum,“ segir Alfreð Þorsteinsson, fyrrver- andi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem kynntist Degi þegar þeir unnu saman í borg- arstjórn 2002 til 2006. n „Dagur er í senn einlægur og traustur samstarfsmað- ur. Hann er ljúf og góð manneskja,“ segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar. n „Dagur er stundum búinn að hugsa málin svo djúpt, að þegar hann talar um þau gleymir hann hreinlega að segja grundvallaratriði þeirra. Hann er yfirleitt kominn lengra en flestir aðrir. Þetta er svona hliðarafurð vand- virkninnar, en kemur stundum einkennilega út í sjónvarpsviðtölum, þar sem áheyrendur missa stundum þráðinn, þótt við vinir hans vitum hvað hann er að tala um. En hann hefur batnað mikið í þessu. Er allur að koma til,“ segir Guðmundur. n „Kannski er hann á köflum með of stórt hjarta til að vera í pólitík því hann trúir öllu góðu upp á fólk,“ segir samstarfskona hans í borgarstjórn og varamaður hans í stjórn Orkuveitunnar, Sigrún Elsa. n „Í mínum huga er Dagur óþarflega langorður um einfalda hluti,“ segir Alfreð sem mátti hlusta á margar ræður Dags í R-listasamstarfinu á síð- asta kjörtímabili. Dagur B. EggErtsson Borgarstjóri. DEBET OG KREDIT Langorður vinnuþjarkur „dagur er óhemju duglegur, vandvirkur og heiðarlegur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.