Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Page 7
DV Fréttir ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 2007 7 „Höfundur snæðir daglega í mötuneyti Árvakurs. Það er ekki gott hlutskipti,“ stóð í höfundarlýs- ingunni á vefsíðunni hadegismoar. blog.is sem lokað var að kröfu for- svarsmanna Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins og 24 stunda, um klukkan 10 í gærmorgun. Málið var tekið fyrir á starfsmannafundi í gær og samkvæmt heimildum var nokk- ur ólga í starfsmannahópi Árvakurs, þar sem sumir þeirra töldu að vegið hefði verið að tjáningarfrelsinu með því að fara fram á að síðunni yrði lok- að. Slíkar aðgerðir séu sérstaklega ámælisverðar á frjálsum fjölmiðlum. Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðakona 24 stunda, yfirgaf fundinn í fússi en sagðist í samtali við DV ekki vilja tjá sig frekar um málið. „Þetta er innan- búðarmál,“ sagði hún. Slepjulegur mávur Á vefsíðunni fór ónefndur mat- arrýnir sem starfar hjá Árvakri mik- inn í gagnrýni sinni á mötuneytið sem rekið er af veitingaþjónustunni Krydd og kavíar sem rekur fjölmörg mötuneyti á höfuðborgarsvæðinu. Í færslu sem birtist nýlega segir meðal annars: „Í matinn var...mávakjöt. Ætli það sé einhver tenging á milli þess að Gísli Marteinn mávabani hætti að vera aðal og þess að fiðraðir fjandvin- ir hans skjóti upp leggjum og bring- um í mötuneyti Árvakurs? Ætli hann hafi eytt nóttinni í eina final máva- morðssturlun? Mávurinn var eins og alltaf, Slepjulegur, laus á beinunum og mauksoðinn.“ Þá segir í umsögn um hádegismatinn frá miðvikudeg- inum 10. október: „Byltingar er þörf. Það þarf uppvakningu meðal lifandi manna og það þarf að koma í veg fyr- ir þennan óskapnað. Þjónustuaðili á ekki að komast upp með að bjóða lif- andi verum upp á þetta.“ Sósan í dag var ekki súpa í síðustu viku Garðar Agnarsson, eigandi Krydds og kavíars, segir umrædda vefsíðu lítið hafa með sanngjarna gagnrýni að gera. Hann er ánægður með að vefsíðunni hafi verið lokað og segist hafa tekið það sem á henni stóð mjög alvarlega. „Þetta var ekkert annað en atvinnurógur og það var ósmekklegt hvernig vegið var að starfsfólki fyr- irtækisins. Auðvitað finnst því ekki gaman að þurfa að sitja undir ásök- unum á borð við að sveppasósan í dag hafi verið gerð úr afgöngum af sveppasúpu frá því í síðustu viku.“ Hann segir það hafa verið algjörar dylgjur og bæði stjórnendur blog.is og æðstu stjórnendur Árvakurs væru sammála um að þarna hefði verið allt of langt gengið. „Ég átti alveg von á því að það heyrðust raddir um að vegið hefði verið að tjáningarfrelsinu en fólk sem las vefsíðunna veit að þarna voru miklar dylgjur.“ Krydd og kavíar mun brátt hverfa úr húsnæði Árvakurs enda hefur samningi félaganna verið sagt upp. Ástæðan er þó ekki aðallega óánægja starfsmanna Árvakurs. „Við gerum aldrei öllum til hæfis, en það eru um 700 manns í mat hjá okkur á dag og ég hef ekki fundið fyrir jafnóvæginni gagnrýni og hjá starfsmönnum Ár- vakurs.“ Starfsmenn Árvakurs eru margir ósáttir vegna kröfu stjórnenda um að loka vefsíðu þar sem matur í mötuneytinu var gagnrýndur harðlega. Garðar Agnarsson, eigandi mötu- neytisins, segir vefsíðuna hafa stundað atvinnuróg og viðhaft fáránlegar ásakanir. Árvakur fór fram á að vefsíðunni yrði lokað. Lokað á matarrýni Valgeir Örn ragnarSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Kolbrún Bergþórsdóttir Blaðakona 24 stunda yfirgaf fund vegna málsins. Vefsíðan Stjórnendur vefsíðunnar hadegismoar.blog.is lokuðu henni í gær. Á von á blússandi bisness Össur vill að markaðurinn taki síðar við hlut ríkisins í sæstrengjum: Össur Skarphéðinsson iðnað- arráðherra er hæstánægður með áform einkaaðila um að leggja hing- að til lands sæstrengi. Hann vonast eftir sem flestum tengimöguleikum á næstu árum svo þeir skapi fjölda tækifæra í iðnaði. „Mestu skiptir að komast í tengingu við Skandinavíu og Austur-Evrópu því þar eru mestu möguleikarnir. Ég vil auðvitað að sem flestir leggi strengi því þetta verður blússandi bisness í framtíðinni,“ seg- ir Össur. Viðskiptajöfurinn Kenneth Peter- son og samstarfsmenn hans hjá CCV á Írlandi eru ósáttir við þátttöku rík- isins í lagningu Danice-sæstrengsins á milli Íslands og Danmerkur. Þeim finnst að ríkið eigi ekki að taka þátt í samkeppni við einkaaðila í ljósi þess að CCV hafi kynnt áform um lagn- ingu sæstrengs til Íslands frá Írlandi. Þeir hafa sent Össuri bréf í þeirri von að hann beiti sér fyrir því að ríkisvald- ið breyti áformum sínum. Ef það tekst ekki er síðasta hálmstráið að leita til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA. Aðspurður segir Össur ekkert því til fyrirstöðu að írska fyrirtækið leggi sinn streng og fagnar hann þeim áformum. Hann kannast ekki við að hafa feng- ið bréf frá Peterson. „Einkaaðilar eru velkomnir en ég kannast ekki við að neinn þeirra hafi boðið upp á teng- ingu til Danmerkur. Þetta snýst um staðsetninguna,“ segir Össur. „Netþjónabú eiga eftir að gefa miklar tekjur í framtíðinni og slíkum starfsstöðvum er hægt að koma fyr- ir víða úti á landi. Minn vilji er sá að markaðurinn taki við hlut ríkisins þegar að því kemur.“ Spurning um staðsetningu „Einkaaðilar eru velkomnir en ég kannast ekki við að neinn þeirra hafi boðið upp á tengingu til danmerkur. Þetta snýst um staðsetning- una,“ segir Össur Skarphéðinsson um gagnrýni Kenneths Peterson. Við sögðum ViLhjáLmi aLLt mikillar fjölmiðlaumræðu und- anfarið og misvísandi ummæla um atburðarásina. Það er mikil- vægt fyrir félagið að atburðarás- in sem snýr að stjórnendunum komi skýrt fram,“ segir Bjarni. Hjörleifur undrast allt pól- itíska moldviðrið undanfarna daga. Hann skilur ekki hinn skyndilega hugmyndafræði- lega ágreining, um Orkuveituna og REI, sem kom í ljós nýverið. „Allt þetta mál hefur komið mér mjög á óvart, miðað við hvern- ig komið var að stofnun REI. Þá strax var gert ráð fyrir því að fleiri kæmu að félaginu og útrás þess án þess að nokkrar athuga- semdir hafi þá komið fram. Þá var enginn hugmyndafræðileg- ur ágreiningur uppi og því kom það mér á óvart þegar hann kom upp nýverið,“ segir Hjörleifur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir það rangt sem fram kem- ur í greinagerð æðstu stjórn- enda Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest, REI, að honum hefði verið gerð grein frá 20 ára þjónustusamn- ingi Orkuveitunnar við REI á fundi heima hjá sér. Hann stað- festir að fundurinn hafi átt sér stað en vísar því alfarið á bug að sér hafi verið sýnt minnis- blaðið sem fram kemur í grein- argerð Bjarna Ármannssonar, stjórnarformanni REI, Hauks Leóssonar, stjórnarformanns Orkuveitunnar, og Hjörleifs B. Kvaran, forstjóra Orkuveitunn- ar. Aðspurður staðfestir Vil- hjálmur að fjöldi gagna hafi verið lagður fram á umrædd- um fundi og meðal þess hafi verið gögn sem sýndu fram á að framtíðarhlutabréf Orku- veitunnar í Hitaveitu Suður- nesja skyldu renna inn í REI. Hann kannast hins vegar ekki við hið dularfulla minnisblað sem fram kemur í greinargerð þremenninganna. „Þetta nýj- asta útspil kemur mér algjör- lega á óvart og ég veit ekki alveg hvað er í gangi hjá fyrir- tækinu með því að skella þess- um ásökunum fram svona. Þar er fullyrt að ég hafi átt að hafa vitað allt saman en það er bara rangt,“ segir Vilhjálmur. Hann vísar því alfarið á bug að hafa nokkru sinni sagt ósatt um vitneskju sína. „Það kom aldrei fram á fund- inum heima hjá mér einkarétt- indi REI til 20 ára þó svo að ég hafi vitað af því að gerður yrði einhvers konar samningur um þjónustu. Það voru lögð fram ýmis skjöld á fundinum en það kom aldrei fram að sú þjón- usta yrði bundin í þetta langan tíma. Mér var ekki afhent sér- stakt minnisblað og það hef ég ekki heima hjá mér. Ég hef ekki nokkra ástæður til þess að fara með rangt mál.“ ég hef aLdrei séð þetta minnisbLað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.