Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Qupperneq 8
„Með fullri virðingu fyrir tillögu biskups, óttast ég að kirkjan muni sitja á brautarpallinum á meðan samfélagið þýtur framhjá, verði hún samþykkt,“ segir Hildur Eir Bolla- dóttir, prestur í Laugarneskirkju. Karl Sigurbjörnsson biskup mun leggja til á kirkjuþingi um næstu helgi að þjóðkirkjan haldi sig við hefðbundna skilgreiningu á hjónabandinu sem sáttmála karls og konu, í stað þess að leyfa prestum að vígja samkyn- hneigð pör í hjónaband. „Við megum ekki gleyma því að kirkjan er fólkið en ekki bara prestar og biskupar og því er sorglegt ef mál eins og þetta myndar gjá á milli sam- félagsins og kirkjunnar,“ segir Hildur. Fulltrúar íhaldssamari viðhorfa í prestastétt hafa síður viljað tjá sig um málið, en hafa bent á að tillaga bisk- ups gangi eins langt og hægt sé án þess að sundrung verði innan þjóð- kirkjunnar. Má ekki dragast lengur „Nú er kominn tími til þess að kirkjan kveði upp úr með þetta. Það er það sem hún á að gera og nú bíð- um ég og þú og allir aðrir eftir þessari ákvörðun. Það er ekki hægt að draga þetta lengur,“ segir Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur. Hann er formaður svokallaðrar miðnefndar um málið. Hjálmar segir að viðhorfum allra presta á Íslandi ásamt forkólfa í safn- aðarstarfi hafi verið safnað saman. Þessi viðhorf liggi nú fyrir kenninga- nefnd og kirkjuþingi. Spurður að því hvort hætta sé á flokkadráttum innan kirkjunnar vegna samvista samkynhneigðra, tel- ur Hjálmar svo ekki vera. „Kirkjuþing mun aldrei kúga neinn til þess að gera eitthvað sem er andstætt sann- færingu viðkomandi. Þingið myndi aldrei ganga þannig fram í viðkvæm- um álitamálum,“ segir hann. Kalla á íhaldið „Við erum bara mannréttinda- samtök og berjumst fyrir jöfnum réttindum samkynhneigðra eins og annarra. Það er einfalda línan í þessu,“ segir Frosti Jónsson, formað- ur Samtakanna 78. Samtökin 78 standa fyrir mál- þingi næsta föstudag um kirkjuna og viðhorfin til hjónabands sam- kynhneigðra. „Séra Bjarni Karlsson í Laugarneskirkju og fjörutíumenn- ingarnir standa að þessu málþingi með okkur,“ segir Frosti. Fjörutíumenningarnir svoköll- uðu eru hópur presta sem lögðu til á síðustu prestastefnu að prestum yrði heimilað að gefa saman sam- kynhneigð pör. Sú tillaga var felld. „Á málþinginu viljum við ná af stað samræðu milli þeirra hópa sem ekki eru sammála um þessi mál. Þess vegna köllum við til þeirra sem sitja kirkjuþingið að setjast með okkur og ræða málin,“ segir Hildur Eir. Svartstakkar þöglir sem gröfin Eftir að hafa rætt meðal annarra við þá Guðmund Karl Brynjarsson, Björn Svein Björnsson og fleiri innan þjóðkirkjunnar, má ráða að prestar sem eru andvígir því að kirkjan leggi blessun sína yfir samband samkyn- hneigðra hyggist sem minnst tjá sig opinberlega um samvistir samkyn- hneigðra fram að kirkjuþingi. Ástæðan virðist fyrst og fremst vera sú að prestum þykir óvarlegt að koma með yfirlýsingar um málefn- ið áður en umræða um það hefst á kirkjuþingi. Málið sé yfirgripsmik- ið, afar viðkvæmt og snerti inntak og eðli kirkjunnar. Þau viðhorf komu einnig fram að ekki væri líklegt að friður muni ríkja innan kirkjunnar ef lagabreyting á sér stað og prestum verður í sjálfs- vald sett hvort þeir gefa saman sam- kynhneigða eður ei. „Þeir vilja einfaldlega ekki trufla kirkjuþingið í ákvarðanatökunni,“ segir séra Hjálmar Jónsson. Karl Sigurbjörnsson slær ein- mitt þann varnagla í tillögu sinni að verði lögum breytt styðji kirkjuþing að þeim prestum sem svo kjósa verði heimilað að gefa saman konu og konu eða karl og karl. Lagt er til að samviskufrelsi presta verði virt, eins og það er orðað. Íhaldssamari hreyf- ing presta hefur löngum verið nefnd svartstakkar. Hlynntir í skoðanakönnun Meirihluti presta virðist vera hlynntur því að gefa saman samkyn- hneigð pör í kirkjunni, jafnvel þótt þeir hafni tillögum þess efnis. Prest- ar samþykktu sjálfir á prestastefnu í vor að Biskupsstofa fengi fagaðila til þess að kanna viðhorf presta til hjónabands samkynhneigðra. Á daginn kom að 65 prósent allra starfandi presta innan þjóðkirkjunn- ar eru hlynnt því að prestar fái að gefa saman samkynhneigð pör. Átta- tíu prósent kvenpresta voru hlynnt því að kirkjan gæfi saman fólk af sama kyni og 59 prósent karlpresta. Þeir sem þjónað hafa sem prestar í fimmtán ár eða skemur eru jákvæðari í garð hjónabands samkynhneigðra en þeir sem lengur hafa starfað. Könnunin náði til allra presta innan þjóðkirkjunnar, en ekki til starfandi presta í fríkirkjunum í Reykjavík og Hafnarfirði, en þeir hafa barist mjög fyrir breytingum. „Jafnvel þótt sumum þyki ís- lenska þjóðkirkjan vera aftarlega á merinni þegar kemur að málefnum samkynhneigðra, erum við engu að síður meðal þeirra frjálslyndustu í veröldinni. Kirkjan er hins vegar í eðli sínu íhaldssöm stofnun og það á sérstaklega við um stórar og fjöl- mennar kirkjur,“ segir Hjálmar dóm- kirkjuprestur. ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 20078 Fréttir DV Kirkjan dregst aftur úr samfélagi mannanna ef hún leggst gegn hjónabandi samkynhneigðra. Þetta er mat Hildar Eir Bolldóttur, prests í Laugarneskirkju. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur segir kirkjunni ekki stætt á að draga það að taka afstöðu í málinu. Íhaldssamari prestar eru þöglir sem gröfin en óttast afleiðing- arnar verði prestum leyft að ákveða hvort þeir blessi samband samkynhneigðra para. Sundrung vofir yfir Sigtryggur Ari JóHAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is „Það er ekki hægt að draga þetta lengur.“ Biskup Íslands leggur fram til- lögu til þingsályktunar þar sem lagt er til að Kirkjuþing lýsi stuðningi við meginatriði ályktunar kenn- inganefndar um þjóðkirkjuna og staðfesta samvist. Enn fremur að þjóðkirkjan standi við hefðbundinn skilning á hjónabandinu sem sátt- mála karls og konu. Þá er enn fremur lagt til að ef lögum um staðfesta samvist verður breytt í þá veru að prestar fái heim- ild til að staðfesta samvist styðji Kirkjuþing það að prestum sem það kjósa verði það heimilt. Kirkjuþing leggi áherslu á að þess verði gætt að um heimildar- ákvæði verði að ræða og að sam- viskufrelsi presta í þessum efnum verði virt. Mál þetta var til umfjöll- unar á Leikmannastefnu og Presta- stefnu fyrr á þessu ári. Leikmanna- stefna samþykkti ályktun sem fylgir skýrslu þessari. Prestastefna sam- þykkti einnig meginatriði fram- angreindrar ályktunar kenninga- nefndar. Hinsegin dagar Frosti Jónsson, formaður Samtak- anna 78, segir samtökin fyrst og fremst vera mannrétt- indasamtök sem berjist fyrir því að samkynhneigðir hafi sama rétt og aðrir í samfélaginu.. Tillaga biskups um þjóðkirkjuna og staðfesta samvist: Sáttmáli karlS og konu Biskup Íslands Karl Sigurbjörns- son vill að hjónabandið verði aðeins milli karls og konu. Sundrung í þjóðkirkju Prestar þjóðkirkjunnar skiptast í tvo flokka eftir afstöðu sinni til samkynhneigðra. Frjálslyndari hópurinn kallar sig fjörutíumenning- ana, íhaldssamari hópurinn hefur verið nefndur svartstakkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.