Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Side 11
DV Fréttir miðvikudagur 11. júlí 2007 9 Svíar standa sig best allra aðildar- ríkja Evrópusambandsins í að taka á móti erlendum launþegum og búa þá undir líf og starf í nýju landi. Á botni listans er hins vegar Lettland sem þyk- ir hafa gert minnst til að búa í haginn fyrir þátttöku erlendra launþega í at- vinnulífi landsins. Í nýrri rannsókn var kannað hvernig aðildarríki Evrópusambandsins hefðu tekið á móti launþegum og hvaða lög og reglugerðir þau hefðu sett til að bregðast við komu fólksins. Þannig var skoðað hver réttindi erlendra laun- þega á vinnumarkaði væru, hverjir væru möguleikar þeirra til að setjast að til frambúðar, hverjir væru mögu- leikar fjölskyldna launþega á að flytja á eftir þeim og hvaða lög hafa verið sett til að bregðast við kynþátta- og útlend- ingahatri. Niðurstaðan var sú að að- ildarríkin gera aðeins um helminginn af því sem þau gætu gert til að bæta líf erlendra launþega. Mjög misjafnt var þó frá einu landi til annars hvaða þætti ríkin uppfylltu og hverja þau uppfylltu ekki. Svíar þykja standa sig best en á eftir þeim koma Portúgalar, Belgar, Hollendingar og Finnar. Lettar standa sig verst, næst koma stjórnvöld á Kýpur og síðan Austurríki, Grikkland og Slóvakía. Fjölskyldudjásn Bandaríkjamanna Aðstæður erlends launafólks í Evrópu: svíar standa sig best aðildarríkja Colt Fjöldaframleiðsla hófst þegar borgarastyrjöldin geisaði í Bandaríkjunum. Mannskæðustu skotárás- irnar í Bandaríkjunum Apríl, 2007 – Seung-Hui Cho skaut til bana þrjátíu og tvo nemendur og starfsfólk við tækniháskólann í virginíu Október, 2006 – Charles roberts hóf skothríð í amish-bænum Paradise í Pennsylvaníu og varð fimm börnum að bana áður en hann framdi sjálfsmorð. Apríl, 1999 – Tveir nemendur Columbine- skólans í Colorado, dylan klebold og Eric Harris, skutu til bana tólf nemendur og einn kennara við skólann og frömdu svo sjálfsvíg. Október, 1991 – george Hennard ók bifreið sinni inn í luby‘s Cafe í killeen í Texas og skaut til bana tuttugu og þrjár manneskjur, særði tuttugu að auki og beindi síðan byssunni að sjálfum sér. Ágúst, 1986 – Patrick Sherill, pósthússtarfsmað- ur í Oklahóma, skaut til bana fjórtán samverka- menn og svipti sig svo lífi. Janúar, 1984 – james Huberty banaði tuttugu og einum manni með uzi-vélbyssu og öðrum skotvopnum á mcdonald‘s-veitingastað í San Ysidro í kaliforníu. Hann var skotinn til bana af skyttu sérsveitar lögreglunnar. Ágúst, 1966 – Charles Whitman myrti eiginkonu sína og móður og fór síðan upp í útsýnisturn háskólans í austin í Texas og skaut til bana fjórtán manns áður en lögreglan banaði honum. Mótmæli í Lundúnum Fyrr á þessu ári var aðbúnaði erlendra launþega í Bretlandi mótmælt. Mynd/Getty Campbell segir af sér Menzies Campbell sagði af sér sem leiðtogi frjálslyndra demókrata, í gær. Þetta gerði Campbell tæpum mánuði eftir að hann hét því að leiða flokk sinn í næstu þingkosningum. Síðan þá hefur margt breyst. Flokkurinn nýtur lítils fylgis í skoðanakönnunum og auk þess hefur Gordon Brown, forsætis- ráðherra Bretlands, ákveðið að boða ekki til þingkosninga fyrr en á næsta ári í fyrsta lagi. Simon Hughes, for- maður frjálslyndra demókrata, lofsöng Campbell í tilkynningu í gær. Margir eru þó vísast sáttir því traust flokks- manna á Campbell hefur minnkað að undanförnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.