Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Page 12
Svarthöfði, sem lætur sig mál-efni REI og borgarinnar miklu varða, verður að lýsa aðdáun
sinni á Birni Inga Hrafnssyni sem
er réttnefndur fuglinn Fönix. Bingi
hvarf inn í bálið í seinustu viku og
enginn átt von á öðru en ösku-
hrúgu. En viti menn. Borgarfull-
trúinn sem flestir höfðu afskrifað
birtist eins og fuglinn Fönix forð-
um og tók flugið. Í goggnum
var hann með borgina en
eftir sátu dvergarnir sex
sem sviku borgarstjór-
ann sinn.
En það eru margar hliðar á hverju máli.
Á meðan Svarthöfði sér
Binga sem fuglinn Fönix
eru aðrir sem sjá hann sem Glanna
glæp sem hafi stolið borginni með
rýting að vopni. Það breytir ekki
því að hann kemur alfiðraður út
úr eldinum sem logaði eftir að
sjálfstæðismenn skvettu bensíni
á innviði Ráðhússins og báru
eld að. Einhverjir hafa lýst
því að Alfreð Þorsteins-
son, fyrrverandi leiðtogi
Framsóknarflokksins,
væri gjörspilltur. Hobbiti
sagði talsmaður Morg-
unblaðsins um hann. Um
tíma hafði Bingi verið sam-
mála því mati á Don Alfredo
sem horfið hefur inn í margt eld-
hafið án þess að skaðast.
Þau undur og stórmerki gerð-ust í öllu fárinu eftir að upp úr samstarfi Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks slitn-
aði að Bingi og Don Alfredo féllust
í faðma. Þetta var á félagsfundi í
Framsóknarflokknum þar sem
Bingi fór yfir ástæður þess
að upp úr slitnaði. Þar lýsti
hann væntumþyku sinni
til Vilhjálms Vilhjálms-
sonar borgarstjóra og
þeim sársauka sem skiln-
aðinum fylgdi. Þegar þar
kom sögu beygði Bingi af
og það hrutu tár af hvarmi
hans. Annað eins hafði ekki gerst
síðan Linda Pé tárfelldi í þætti
hjá sjónvarpsdrottningunni Sirrý.
Við geðshræringu Binga mátti
sjá að víða um salinn blikuðu tár
á hvörmum framsóknarmanna.
Ljóst mátti vera af viðbrögðum
flokksins að Messías var fundinn.
Meira að segja Doninn var votur
um hvarma.
Sjálfstæðismenn gátu aftur á móti ekki unnt Binga þess að lifa af hreinsunareld-
inn. Í flokknum er til leynifélag sem
kallast Skrímsladeildin hvert hefur
það hlutverk að sá fræjum um allt
samfélagið þegar einhver kemst
upp á kant við flokkinn. Deildin,
sem er á snærum eins af ráðherr-
um ríkisstjórnarinnar, fór á stúfana
og með hraða eldingarinnar bárust
myndir af Binga sem ummyndaðist
í Glanna glæp og aðrar sem sýndu
hann sem Júdas með silfurpening-
ana þar sem hann kallaði Vilhjálm
Þ. meistara. Kjaftasögum var sáð
um spillingu Binga. Vandinn var
aðeins sá að Svarthöfði og aðr-
ir samnefnarar almennings sáu í
gegnum skrímslin. Bingi kann að
hafa aðhafst eitt og annað sem er á
mörkum siðsemi en það skiptir ekki
lengur máli. Samúðin er með hon-
um og skrímslin sitja eftir, uppvís
að árásum á tárvotan, tilfinninga-
ríkan borgarfulltrúa sem vill um-
fram allt verja hag almennings.
ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 200712 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm.
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aÐaLnúmER 512 7000, RITsTJÓRn 512 7010,
ÁsKRIfTaRsímI 512 7080, augLýsIngaR 512 70 40.
SkrímSlin og Bingi
Svarthöfði
Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttastjóri skrifar.
Tryggingafélag okrar
Leiðari
Sennilega lýsir eitt orð hálfrar milljón króna iðgjöldum öðr-um orðum betur. Það orð er okur. Samt gerir svívirða harða
atlögu að fyrsta sætinu.
DV sagði í gær frá því hvernig Krist-
inn Eyjólfsson fékk rukkun fyrir trygg-
ingaiðgjöldum upp á rúma hálfa millj-
ón á ársvísu fyrir mótorhjólið sem
hann hafði nýlega keypt. Iðgjöldin ein
og sér voru um það bil helmingi hærri
en verðið á hjólinu sem Kristinn hafði
keypt sér. Það er auðvitað svívirðilegt
okur að fólk sé rukkað um hálfa millj-
ón í tryggingaiðgjöld fyrir eitt mótor-
hjól.
Vinnubrögð Tryggingamiðstöðvarinnar eru síður en svo til fyr-
irmyndar. Maður kaupir hjól og er rukkaður um hálfa milljón
króna í iðgjöld. Hefði hann haft samband við tryggingafélagið
áður en hann keypti hjólið hefði hann getað samið um mun lægri
upphæð. Sú varð reyndar raunin hjá Kristni. Honum tókst eftir
nokkurt þóf að semja iðgjöldin niður í hundrað þúsund krónur á
ári. Sú staðreynd að Tryggingamiðstöðin var tilfáanleg að lækka
iðgjöldin sem þessu nemur, um
fjóra fimmtu, sýnir hversu gal-
in þau eru upphaflegu iðgjöld-
in sem Kristinn Eyjólfsson var
rukkaður um. Fyrst er ákveð-
in hæsta mögulega rukkun
og send út. Síðan verður við-
skiptavinurinn að semja sig frá
þessum ósköpum, mér liggur
við að segja þjófnaði. Kannski
finnst stjórnendum Trygginga-
miðstöðvarinnar þetta snið-
ugt. Kannski finnst þeim þetta
eðlilegir viðskiptahættir. Mér
finnst þetta fyrst og fremst sví-
virða. Þetta er virðingarleysi við
viðskiptavinina, gott ef ekki skilaboð um að Tryggingamiðstöð-
in vilji ekki vera í viðskiptum við þá. Ég er allavega sáttur við að
vera ekki í viðskiptum við Tryggingamiðstöðina. Öllu verra er að
mig grunar að mitt tryggingafélag sé ekki endilega betra. Enda
skrýtin þessi fyrirtæki sem keppast við að selja manni þjónustu
en reyna stundum að koma sér undan því að veita hana þegar
hennar er þörf.
DómStóLL götunnar
HVERNIG FER LEIKUR ÍSLENDINGA OG LIECHTENSTEIN?
„Ég held að við tökum þetta og
leikurinn fari 1–4 fyrir íslendinga. Við
höfum harma að hefna og ég held að
við hristum þá af okkur.“
Gísli Eyland,
25 ára, sölumaður.
„Ég ætla að vona að það verði jafntefli.
Ég er ekki bjarsýnni fyrir okkar hönd
vegna útreiðarinnar í síðasta leik.
Jafntefli er viðreisn eftir það.“
Hörður Magnússon,
49 ára, sjómaður
„Hann fer 1–2 fyrir íslandi. Við erum
miklu betri. Ég fylgist ekki mikið með
fótboltanum en reyni að missa ekki af
landsleikjum.“
Ásdís Jóhannsdóttir,
54 ára, skrifstofudama
„Hann fer 2–3 fyrir ísland. íslenska liðið
er auðvitað best. síðan er þjálfarinn frá
Króknum og læknirinn þeirra vel
ættaður.“
Kristján Kristjánsson,
34 ára, ráðgjafi
SanDkorn
n Timburmenn meirihluta-
skiptanna í Reykjavík eru nú
í hámarki og hver málpípan
af annarri
stígur fram.
Hermt er að
skrímsla-
deild. Sjálf-
stæðis-
flokksins
sé komin á
kreik. Með-
al þeirra
sem reyna að fela klofning
Sjálfstæðisflokkisins er Agn-
es Bragadóttir, blaðamaður á
Morgunblaðinu, sem í Silfri
Egils hélt því fram af man-
ískri ákefð að ekkert væri að.
Sigríður Dögg Auðundsdótt-
ir á dv.is snupraði Agnesi og
benti á óyggjandi sannanir
þess að sjálfstæðismenn hefðu
brugðist borgarstjóranum.
Agnes reyndi þá að kenna Sig-
ríði undirstöðuatriði í blaða-
mennsku en var kafskotin með
það sama.
n Það vakti athygli hve illgirn-
isleg Agnes Bragadóttir var í
garð Björns Inga Hrafnssonar,
formanns
borgarráðs
og fyrrver-
andi blaða-
manns
Morgun-
blaðsins.
Agnes sá
ekkert gott
við fram-
göngu Björns Inga og taldi að
hann hefði svikið flokkinn.
Þarna kveður við nýjan tón því
sú var tíð að þau Björn Ingi og
Agnes unnu saman og þótti þá
fara vel á með þeim.
n Í Geirsarmi Sjálfstæðis-
flokksins er útbreiddur orð-
rómur um að borgarfulltrúarn-
ir Hanna Birna Kristjánsdóttir
og Gísli Marteinn Baldursson
hafi í byrjun vikunnar sem
meirihlutinn sprakk hitt Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
á leynifundi þar sem lagt hafi
verið á ráðin um samstarf við
VG án Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar borgarstjóra. Björn þver-
tók fyrir að hafa haldið með
þeim fund þegar DV spurði
hann í tölvupósti.
n Þáttur Sigmundar Ernis
Rúnarssonar, Mannamál, lofar
góðu þótt útsending hans hafi
verið rugluð
í miðjum
klíðum.
Víst er að
Silfur Egils
Helgasonar
fær grjót-
harða sam-
keppni frá
Sigmundi
sem fær
til sína þungavigtarfólk og
spyr óvæginna, beinskeyttra
spurninga. Við upptökur á
fyrsta þætti Sigmundar varð
mikið uppnám þegar varafor-
maður vinstri grænna, Katrín
Jakobsdóttir, féll í yfirlið undir
hita sviðsljósanna. Kallaður
var til sjúkrabíll en Katrín, sem
er komin sjö mánuði á leið,
komst fljótt til meðvitundar og
virðist sem betur fer ekki hafa
orðið meint af.
Maður kaupir hjól og er rukkaður um hálfa milljón króna í iðgjöld.