Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 14
þriðjudagur 16. október 200714 Iceland Airwaves DV
Hvar spilar þú?
„Á miðvikudaginn klukkan
22.45 á Gauknum.“
Hvernig tónlist spilar þú?
„Prógressíft hip-hop.“
Er einhver hugmynda-
fræði á bak við hljóm-
sveitina?
„Nei, það er engin meðvit-
uð hugmyndafræði. Ég segi
bara frá því sem mér liggur á
hjarta þann daginn, hvernig ég
upplifi raunveruleikann.“
Kemur þú einn fram á
Airwaves?
„Nei, ég fæ til mín gesta-
söngvara; Einar Ágúst, Rósu
Birgittu úr hljómsveitinni
Sometime og Guðbjörgu Elísu.
Mér finnst ótrúlega gaman að
gera tónlist með flestum þeim
sem vinna að því að gera góða
tónlist. Það er mjög gaman
að vinna með þekktum ein-
staklingum en ekki síður þeim
óþekktari sem eru gríðarleg
talent. Ég er búinn að læra
helling á samstarfinu með
þessu fólki.“
Hvaða væntingar berið
þið til Iceland Airwaves?
„Ég held að þetta verði
ótrúlega gaman. Ég hef aldrei
áður farið á Airwaves. Það stóð
til að ég kæmi fram árið 2004
en ég var þá í meðferð.“
Hvenær byrjaðir þú að
gera tónlist undir nafninu
Poetrix?
„Nafnið hefur fylgt mér frá
því ég var sextán ára en þetta
er í fysta skipti sem ég kem op-
inberlega fram. Fram að þessu
hefur fullkomnunaráráttan
verið að drepa mig.“
Ferð þú í sérstakan
hátíðarbúning á
Airwaves?
„Nei, ég er alltaf í hátíðar-
búningi þegar kemur að tón-
list.“
Hvað ætlar þú að sjá á
hátíðinni?
„Ég mæti fyrstur á Buck 65.
Ég hef annars ekki kynnt mér
dagskrána nægilega en ég hef
heyrt góða hluti um Chromeo
svo ég kíki kannski á þá.“
Poetrix kemur fram á gauknum
á miðvikudaginn ásamt
gestasöngvurunum einari Ágústi,
rósu birgittu og guðbjörgu elísu.
AlltAf í hátíðArbúningi
Tónlistarmaðurinn Poetrix
Hvar ætlið þið að spila?
„Við verðum á Grand Rokk á mið-
vikudeginum klukkan 21.45.“
Hvernig tónlist spilið þið?
„Við spilum gleðitónlist sem veitir
fólki lífslöngun. Við erum mjög hed-
ónískt band.“
Er einhver hugmyndafræði á
bak við hljómsveitina?
„Já, við höfum alltaf haft það að
takmarki að bjarga heiminum í gegn-
um tónlist. Við lítum svo á að við
séum að bjarga þeim sem mæta á
tónleika hjá okkur. Fólk er svo stress-
að og því fylgja neikvæðir straumar.
Við reynum að vinna gegn þessu með
því að vera glöð og hress. Við gerum
þetta af fullri alvöru.“
Hvernig er stemningin í
bandinu?
„Ævinlega frábær. Við erum svo
mörg og það kennir ýmissa grasa.
Þetta er hópur sem hefði aldrei komið
saman ef ekki væri fyrir þessa hljóm-
sveit og það er svolítið skemmtilegt.“
Hvaða væntingar berið þið til
Iceland Airwaves?
„Fyrst og fremst að það verði
skemmtilegt og að sem flestir mæti
til þess að sjá okkur.“
Hvenær var hljómsveitin
stofnuð?
„Tilurð hljómsveitarinnar er
tveggja daga ferli sem hófst 28. febrú-
ar síðastliðinn. Hljómsveitin mín gat
ekki tekið þátt í Músíktilraunum og
því hringdi ég í gaur sem er svo hress
og til í allt. Þá vatt þetta upp á sig.
Málið var að hafa sem flesta í band-
inu því þá mundi hver og einn koma
með vini og vandamenn á tónleikana
og við mundum vinna keppnina á at-
kvæðum úr salnum. Þetta heppnaðist
næstum því, við urðum í öðru sæti.“
Farið þið í sérstakan
hátíðarbúning?
„Já, við ætlum gjörsamlega að
taka þetta í gegn. Við gáfum okkur
frí í eina og hálfa viku til þess að ein-
beita okkur að þessum tónleikum.
Við erum búin að leggja mikla vinnu
í þessa tónleika, svo já, það má segja
að við verðum í hátíðarbúningi.“
Hvert er markmið
hljómsveitarinnar?
„Að halda áfram að spila. Hverj-
ir tónleikar sem við komum fram á
eru mikið afrek fyrir okkur því það er
mjög erfitt að starfrækja ellefu manna
hljómsveit. Svo langar okkur að gefa
út plötu einn daginn. Það er bara svo
gaman að spila fyrir fólk.“
Hvaða bönd langar þig að sjá?
„Radio LXMBRG, !!!, Grizzley Bear,
Deerhoof og Smoosh.“
„Ætlum gjörsAmlegA Að tAkA
þettA í gegn“
Halldór Kristján Þorsteinsson, söng- og píanóleikari í <3Svanhvít!
<3Svanhvít! Hljómsveitin er skipuð
pottaleikaranum aldísi, bassaleikaranum
Árna, töfragítarleikaranum arnari,
fiðluleikaranum Ástu, gítarleikaranum
brynjólfi, gítarleikaranum daða, saxófón-
leikaranum gunnari, söng- og píanóleikar-
anum Halldóri, trommuleikaranum jóa,
ryksuguleikaranum Sindra og bongó-
trommuleikaranum Steinari. allir syngja.