Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 17
DV Sport ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 2007 17
Spánverjar skoruðu ótrúlegt mark
gegn Dönum á laugardag. Þeir héldu
boltanum sín á milli í 27 sendingar,
eða í meira en mínútu. Raúl Tamudo
tók léttan þríhyrning við Sergio Ramos
sem skoraði og batt þar með enda-
hnútinn á glæsilega sókn.
„Þetta var hið fullkomna mark,“
sagði Xavi sem lék vel á miðju Spán-
ar. Hann sagði einnig að hreyfanleiki
liðsins án bolta í fyrri hálfleik hafi verið
magnaður. „Við spiluðum mjög góðan
fyrri hálfleik og liðið gerði vel að nýta
sér stöðuyfirburðina sem við vorum
með í leiknum. Við erum augljóslega
í skýjunum yfir úrslitunum og hvernig
við lékum í fyrri hálfleik.
Auvitað vill maður spila svona fót-
bolta. Að halda boltanum innan liðsins
er mun erfiðara tæknilega séð, maður
lendir ekki jafnoft í návígjum. Við vor-
um góðir í því að halda boltanum innan
liðsins og notuðum vængina vel. Þetta
er svipaður fótbolti og við spilum hjá
Barcelona þannig að þetta var ekkert
nýtt fyrir mér.“ Með sigrinum eru Spán-
verjar komnir í góð mál í F-riðlinum
þar sem við Íslendingar leikum. Þeir
gerðu á sama tíma út um vonir Dana
sem vilja landsliðsþjálfarann burt.
Næsti leikur Spánverja er æfingarleik-
ur gegn Finnum en búist er við köldu
veðri sem Xavi lýst ekki vel á. „Þetta er
leikur sem hefur enga þýðingu. Við för-
um úr því að spila þýðingarmikinn leik
í undankeppni EM í einhvern svona
leik. Leikjaniðurröðunin er erfið þetta
tímabilið og svo bætist einhver æfing-
arleikur við í svona aðstæðum. Ég veit
voða lítið um þetta finnska lið. Það er
að gera ágæta hluti í undankeppninni
og er með sterka vörn. Þar með er það
upptalið,“ sagði Xavi ókátur.
benni@dv.is
Xavi telur að Ramos hafi bundið endahnútinn á hið fullkomna mark gegn Dönum:
Skoruðum hið fullkomna mark
27 sendingar og svo mark
Spánverjar skoruðu ótrúlegt
mark gegn dönum.
Lehmann býst við
byrjunarliðssæti
Jens Lehmann, markvörður arsenal,
segist búast við að vera í byrjunarliði
arsenal gegn
Bolton. Lehmann
gerði sig sekan
um mistök á milli
stanganna í
upphafi leiktíðar
og missti sæti sitt
í liðinu til
Manuels
almunia. Síðan
þá hefur arsenal
unnið tíu leiki í röð. „Ég er í góðu standi
og býst við að spila gegn Bolton.
Wenger hefur ekki gefið það í skyn en
ég er hér og ég býst við að hann láti mig
spila,“ segir Lehmann. almunia hefur
hins vegar haldið hreinu í þeim tíu
leikjum sem hann hefur staðið í
markinu.
Fabregas hafði á réttu
að standa
Thierry Henry, leikmaður Barcelona,
viðurkennir að nærvera hans í liði
arsenal undir lok síðustu leiktíðar hafi
oft á tíðum haft slæm áhrif á frammi-
stöðu annarra
leikmanna. Cesc
Fabregas,
leikmaður
arsenal, lét hafa
þetta eftir sér
nýverið og
Henry tekur
undir þau orð.
„Ég er algjörlega
sammála. Vegna
aldurs míns, staðreyndarinnar að ég var
fyrirliði og vana míns að biðja alltaf um
boltann, gáfu þeir oft á mig þrátt fyrir
að ég væri ekki í betra færi. Frá því
sjónarmiði var gott fyrir liðið að ég hafi
farið,“ segir Henry, sem jafnaði
markamet Michels Platini í landsleikjum
fyrir Frakklands hönd.
Leiður á að vera varamaður
Rolando Bianchi, leikmaður Manchest-
er City, hefur gefið í skyn að hann kunni
að fara frá liðinu í janúar. Bianchi var
keyptur í sumar frá Reggina og hefur mátt
sætta sig við að
sitja á vara-
mannabekknum
að undanförnu.
„Ég hef sett mér
markmið fram í
desember og ef
hlutirnir breytast
ekki mun ég
þurfa að íhuga
mína möguleika, því mér er illa við að
spila aðeins fimm eða tíu mínútur í leik.
Ég er ekki vanur að sitja á bekknum og við
verðum að sjá hvað gerist. Ég er þrjóskur
og vinnusamur. Ég verð að sannfæra
stjórann,“ segir Bianchi.
Bruce fundar með Yeung
Væntanlegur eigandi Birmingham City,
Carson Yeung, er tilbúinn til viðræðna
við Steve Bruce, stjóra liðsins. Bruce hefur
áhyggjur af því að nýi eigandinn vilji
skipta honum út
þegar hann tekur
til starfa. Yeung
keypti 29,9
prósenta hlut í
liðinu í sumar og
búist er við að
hann kaupi
afganginn á
næstu tveimur
mánuðum. „Ef
Steve Bruce vill funda með herra Yeung
þegar hann kemur til Englands, þá af
hverju ekki. En á þessari stundu munum
við ekkert gefa upp um það sem sagt
hefur verið að undanförnu,“ segir Sammy
Yu, talsmaður Carsons Yeung.
Littbarski vill taka við Norwich
Pierre Littbarski, fyrrverandi
landsliðsmaður Þýskalands, hefur sóst
eftir fram-
kvæmdastjóra-
stöðu hjá
Norwich City.
Félagið rak Peter
grant eftir
arfaslaka byrjun
liðsins á
tímabilinu.
Littbarski er
aðalþjálfari
japanska liðsins avispa Fukuoka og
aðstoðarmaður hans þar er Ian Crook,
fyrrverandi leikmaður Norwich, og
hann er mjög vinsæll meðal stuðnings-
manna félagsins. „Þetta starf vekur
áhuga minn,“ segir Littbarski.
eNski BoLtiNN
Ég veit ekki hvað við höfum mik-
inn tíma til þess að leyfa Eyjólfi að
þróast í starfi. Eins og staðan er núna
virðist flest benda til þess að grunnt
hafi verið á þessari stemningu sem
myndaðist í hópnum í leikjunum fyr-
ir Lettaleikinn.
Eins fannst mér við vera heppn-
ir gegn Norður-Írum en liðsheildin
kom okkur í gegnum þann leik. En
eitthvað þarf að breytast, það er ljóst.
Hvort Eyjólfur geri það eða einhver
annar skiptir ekki öllu,“ segir Kristj-
án.
Atli Eðvaldsson:
Of miklar væntingar
„Það fer allt eftir því hvernig hlut-
irnir eru framsettir hvort Eyjólfur sé
kominn á endastöð. Ef hann nær að
selja sínar hugmyndir við stjórnina
má hann alveg vera áfram.
Ég veit ekki alveg við hverju við
eigum að búast með liðið okkar. Við
höfum þrisvar náð upp góðu lands-
liði. Í kringum 1971–1973, í kringum
1985 og aftur 1995-–1999. Í öll þessi
skipti náðist fram hópur þar sem
góð samsetning manna kom sam-
an sem var í stakk búin til þess að ná
árangri. Í dag held ég að við höfum
ekki þennan hóp.
Við eigum kannski marga ágæta
leikmenn en við erum ekki með nógu
sterkt lið. Við höfum alla tíð þurft að
hafa líkamlega sterka leikmenn en
við höfum þá ekki lengur fram yfir
önnur lið. Flestar þjóðir hafa jafnað
okkur í þessu og eru jafnvel komnar
lengra.
Það eru þrír hlutir sem þarf til
þess að vinna leik, líkamlegt atgervi,
tækni og skipulag. Þú þarft að hafa
tvo af þessum hlutum til að vinna
leiki. En í dag hafa þessi lið yfirleitt
tvo af þessum þáttum fram yfir okkur,
tækni og líkamlega burði. Taktík hef-
ur ekkert að segja þegar hinir standa
okkur framar á öðrum sviðum.
En það má alltaf betur gera. Við
spiluðum vel á móti Spánverjum og
við munum alla tíð detta inn á góða
leiki en við eigum ekki að vinna neitt.
Við getum ekki vanmetið neina and-
stæðinga.
Ég held að vinnuumhverfið sé
ágætt. Það var neikvæðara áður
heldur en það er í dag. Við verðum
að gera okkur grein fyrir því að við
erum þessi litla þjóð og hætta að
rembast. Ef við gerum eitthvað gott
verðum við að vera ánægð. En ef illa
gengur verðum við sem þjóðfélag að
segja, kemur næst.
Ef Eyjólfur verður ekki áfram eig-
um við að leita að þjálfara frá útlönd-
um. Innlendir þjálfarar fá alltaf á sig
gagnrýni fyrir það að velja vini sína
í liðið. Erlendur þjálfari myndi hafa
aðra sýn á hlutina og gera þá á annan
hátt en innlendur þjálfari,“ segir Atli.
Eyjólfur Sverrisson
Íslenska knattspyrnulands-
liðið er harðlega gagnrýnt
þessa dagana.EYJÓLFUR KOMINN
Á ENDASTÖÐ?