Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 22
H venær skyldi maður fyrst hafa kynnst Gosa? Ég man það ekki, en snemma var það; Gosi er einfaldlega ein þeirra persóna úr bókmenntunum sem manni finnst maður alltaf hafa þekkt, rétt eins og Lísu í Undralandi, Stikkilsberja-Finn, Oliver Twist eða Línu langsokk. Á svipaðan hátt og þessar persónur er Gosi í rauninni fremur goðsagna- vera en venjuleg sögupersóna, af því að hann stend- ur fyrir eitthvað sammannlegt, einhverja reynslu sem við deilum öll. En þó ég muni ekki hvenær kynni okkar Gosa hófust, veit ég hvenær þau urðu mér minnisstæð, og það var ekki af lestri bókarinnar eða hinni frægu teiknimynd Disneys, heldur í íslenska Ríkisútvarp- inu. Ég er nefnilega af síðustu kynslóðinni sem ólst upp við sögur og leikrit í Útvarpinu, áður en sjón- varpið kom til sögunnar, og ég get enn heyrt fyrir mér raddir sumra leikaranna úr þessum leikritum sem töfruðu barnið inn á undralendur skáldskap- arins. Útvarpið var á þessum árum, í kringum 1960, býsna duglegt við að flytja góðar – og spennandi – sögur í leikbúningi, og þar á meðal var Gosi. Pabbi tók barnaleikritin gjarnan upp á segulband sem við systkinin hlustuðum á langtímum saman og ég hugsa að Gosi hafi verið eitt þeirra sem oftast var hlustað á. Að minnsta kosti heyri ég enn fyrir hugsskotseyrum mér hása rödd Haraldar Björns- sonar, eins magnaðasta skapgerðarleikara sem við höfum átt, í hlutverki engisprettunnar, samvisku Gosa, og ég get enn kallað fram angistarfulla rödd Gests Pálssonar sem lék Láka – hét hann það ekki? – pabba Gosa, á flekanum í kviði hvalsins. Hver lék Gosa, það man ég hins vegar ekki, kannski Helgi Skúlason? En auðvitað skiptir það ekki máli nú, aðalatrið- ið var að ég heillaðist gjörsamlega af því stórbrotna drama sem sagan hefur að geyma. Því að sagan um Gosa er langt frá því að vera eitthvert sykursætt ævintýri eða einföld siðapredikun. Hún er í ein- faldleika sínum margslunginn skáldskapur: í senn ævintýri og siðferðisleg dæmisaga, ásamt því að búa yfir hinum myrka hrolli harmleiksins. Spýtu- strákurinn Gosi, sem verður að lokum manneskja af því að hann sigrast á sjálfselskunni og lærir að meta gildi fórnfýsinnar og kærleikans, er eins kon- ar nútímalegur „everyman“, Sérhver, eins og full- trúi mannssálarinnar nefndist í siðaleikjum mið- aldanna, leikhús og bókmenntahefð sem leið undir lok í ölduróti endurreisnarinnar en hefur engu að síður lifað áfram hálfgerðu dularlífi í skáldskap síð- ari alda. Gosi er í raunverulegri hættu; því verðum við að trúa, það verðum við að skynja, hvort sem við lesum söguna á bók, sjáum hana í bíó eða á sviði. Freistararnir, sem á vegi hans verða, eru hreint eng- ir skemmtibófar, þeir eru dulbúnir útsendarar djöf- ulsins, sem eiga sér aðeins eitt markmið: að tortíma manneskjunni. Í upphaflegri gerð sögunnar fór víst illa fyrir söguhetjunni að lokum, þó að höfundur- inn, Carlo Collodi, breytti því síðar. Gosi er, eins og við sjálf, veikur á svellinu, lætur fyrst blekkjast af glamúrnum í leikhúsinu, svo ánetjast hann sæl- gætisfíkninni, svo litlu munar að hann endi í Alls- nægtalandi þar sem allir breytast að endingu í asna. Í þeim atriðum fær sagan sterka skírskotun til okk- ar sem stöndum frammi fyrir vá dópsins, ekki síst gagnvart börnunum okkar, og öllum þeim tálsýn- um sem lífsþæginda- og nautnadýrkun samtím- ans heldur að okkur. Þessu er vel og smekklega fylgt eftir í sýningu Leikfélags Reykjavíkur, þar sem Gosi ummyndast beinlínis í gotterísfíkil um leið og hann rekur tunguna í sleikjóið. Það er mikið „show“ sem L.R. reiðir fram á stóra sviði Borgarleikhússins, mikið borið í tónlist, leik- mynd, búninga og allra ytri umgerð. Og það er ým- islegt gott um þessa leikfærslu hinnar klassísku sögu að segja (ég vil ekki kalla Gosa barnasögu af því að hún er fyrir börn á öllum aldri), en svo er annað sem virkar ekki nógu vel og má setja spurn- ingamerki við. Leikmynd Vytautasar er flott og vís- ar jafnvel í mynd Disneys sem ‚68-kynslóðinni með sinn spartanska leikhússmekk hefði sjálfsagt þótt ganga guðlasti næst, en nú eru sem sagt aðrir tímar. Hins vegar er stundum eins og realisminn í leikmyndinni drekki ævintýrinu og það sem hefði átt að verða hápunktur leiksins, skipsferðin til Alls- nægtalands og dramað í hvalnum, var einfaldlega ekki nógu vel af hendi leyst. Þar varð sýningin allt of stirðbusaleg, stundum beinlínis klúðursleg, hvort sem fremur um var að kenna leikgerð eða leik- stjórn; ég hallast þó mun fremur að því síðarnefnda. Selma Björnsdóttir er ekki reyndur leikstjóri og það er nánast óskiljanlegt að leikhússtjórnin skyldi ekki kalla til einhvern rútíneraðan og hugmyndaríkan leikstjóra, því að hér er mikið lagt undir, einnig fjár- hagslega. Framan af var þó sýningin ágæt, atriðin í leikhúsinu sérlega góð, enda Pétur Einarsson ill- mennskan uppmáluð í gervi leikhússtjórans – þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem Pétur brillér- ar sem vondur leikhússtjóri, hvort sem maður á að leggja í það dýpri merkingu eða ekki! En það er fyrst í lokaatriðunum sem verulega reynir á færni leik- stjórans og þar kemur reynsluleysi hennar sem sé berlega í ljós. Frammistaða leikenda var annars yfirleitt góð: Víðir Guðmundsson var mjög fínn Gosi, Sveppi hreint út sagt frábær sem engisprettan, hæfilega prakkaralegur en undir niðri besta skinn (snjall búningur spillti ekki heldur), og það geislaði af Að- albjörgu Árnadóttur í hlutverki kvenskúrksins Lóru. Gaman þegar nýliðarnir standa sig svona vel. En Jó- hann Sigurðarson var varla nógu öldurmannlegur í hlutverk pabba Gosa og Kristjana Skúladóttir sem Dísin góða minnti meira á einhvers konar glamúr- dís úr sjónvarpinu en himneskan fulltrúa hins góða. Um danshópinn unga og aðra leikendur er ekkert nema gott að segja. Samtöl leiksins eru ágætlega skrifuð af Karli Ágústi og tónlist Þorvaldar Bjarna hljómaði ljúflega, ef nokkuð er fullljúflega. Ein ábending innan sviga – og hún í fullri al- vöru: Hvað eru stjórnendur L.R. að hugsa – ef þeir eru þá nokkuð að hugsa – með því að auglýsa gos- drykk framan á leikskránni? Ég hef aldrei séð svona nokkuð áður og ég vona ég eigi aldrei eftir að gera það aftur. Er ekki verið að tala um að vaxandi syk- urneysla barna sé áhyggjuefni? Og hvernig var það: var það ekki gotterísátið sem breytti börnunum í Gosa í asna? Tekur leikhúsið sjálft kannski ekki mark á því sem það er að boða af sviðinu? Verður þessi Gosi jafnminnisstæður einhverj- um þeirra, sem nú hitta hann í fyrsta skipti, og hann varð mér í útvarpsviðtækinu fyrir hátt í fimmtíu árum? Því get ég auðvitað ekki svarað, en af und- irtektum áhorfenda gæti ég þó best trúað að sú verði raunin. Það mátti glöggt heyra svolítið snökt hér og þar í salnum, þegar Gosi lá á ströndinni og við héldum að hann væri dáinn. Og við urðum öll voða glöð þegar hann lifnaði við sem manneskja af holdi og blóði og kom til okkar í framkallinu sem var skemmtilega sviðsett. ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 200722 Fókus DV á þ r i ð j u d e g i í kvöld Fyrstu hádegistónleikarnir guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran flytur íslensk og spænsk þjóðlög með spænska gítarleikaranum Francisco Javier Jáuregui á fyrstu hádegistónleikum vetrarins hjá Íslensku óperunni í dag kl. 12.15. aðgangseyrir er 1.000 krónur. Fyrir og eftir tónleika má kaupa léttar veitingar í anddyri Íslensku óperunnar. ný stjarna fædd Ég horfði á þáttinn 07/08 bíó leik- hús, eins óþjált og það nú hljóm- ar, síðasta fimmtudag á RÚV. Áður en þátturinn hófst hafði ég hringt nokkrum sinnum í vinkonu mína í þeirri von að fá hana út að leika. Um leið og þátturinn hófst fann ég fljótt að þetta var akkúrat það sem ég þurfti; sneisafullan þátt af því sem er að gerast í hinum sjón- ræna menningarheimi landsins. Þátturinn er passlega hraður og virkilega skemmtilega klipptur. Vinkonan hringdi loksins til baka en þá svaraði ég ekki enda horfin á vit Gosa, heimildarmyndar um Breiðavík, maraþonstuttmynda- keppni og uppáhaldskvikmyndar Ágústu Evu. Spyrlar þáttarins eru allir til fyrirmyndar. Stjarna þátt- arins er hins vegar tvímælalaust Elsa María Jakobsdóttir. Mér sýn- ist á öllu að hér sé ný sjónvarps- stjarna fædd. BERGLIND HESLER horfði á 07/08 bíó leikhús stríð og frið- ur spaug- stofunnar Fyrir hálfum mánuði lýsti ég yfir mikilli óánægju með Spaugstofu- þátt helgarinnar á undan. Miðað við þann þátt var það sem Spaug- stofumenn buðu upp á síðasta laugardag algjör hátíð. Þáttur- inn var, skiljanlega, undirlagður af stríðinu í borginni og friðarat- höfninni í Viðey og fannst mér þeir fjórmenningar gera þessum atburðum góð skil í háðsádeilu- forminu. Það er líka rétt að hafa í huga að tilkynnt var um nýja borg- arstjórn seinnipartinn á fimmtu- dag og því þurfti væntanlega að vinna stóran hluta efnisins á tölu- verðu tempói. Prik í kladdann fyrir það. Á móti kemur að hráefnið sem Spaugstofan hafði í höndun- um var afar gott og erfitt að klúðra því. Siggi Sigurjóns virðist ekki fara varhluta af brotthvarfi Randvers því kvenhlutverkin voru hans og náði hann Valgerði Sverris afskap- lega vel. En hvernig er það, er ég sá eini sem fannst gríman sem Pálmi bar í atriðinu í dómssalnum vera alveg eins og Randver? Mér finnst sketsaformið mjög skemmtilegt þegar vel er gert og er því yfirleitt ekki hrifinn af því þegar svona þáttur er undirlagður af einum, tveimur viðburðum, eða að það sé eins konar söguþráður, en at- burðarás vikunnar kallaði á það. Vonandi nær Spaugstofan sér jafn- vel á strik í sketsunum í vetur og í þessari sviðsetningu sinni á farsa síðustu viku. SPAUGSTOFAN KRIStjáN HRafN GuðmuNDSSoN horfði á Spaugstofuna um helgina HHHH HHHH Selt fyrir á fimmta tug milljóna Gallerí Fold stóð fyrir uppboði í Súlnasal Hótel Sögu í gær þar sem megnið af því sem boð- ið var upp var málverk. Nokk- ur handofin austurlensk teppi fengu þó að fljóta með eins og þessar myndir bera með sér. Næstum allir 150 listmunirnir seldust en hæsta verðið fékkst fyrir verkið Kiðjaberg eftir Þór- arin B. Þorláksson sem fór á fjórar milljónir króna. Söluverð munanna var samtals á bilinu 40 til 50 milljónir króna. tryggvi Páll friðriksson Stýrði seinni hluta uppboðsins styrkri hendi. Súlnasalur Þétt setinn af íslenskum listunnendum. Glaðbeittur Þessi ungi maður hafði það verk með höndum að sýna væntanlegum kaupendum verkin. falboðið Þetta teppi var á meðal þess sem var falboðið á uppboðinu. myND BjöRN SNoRRI LeikféLag reykjavíkur: gosi eftir karl ágúst Úlfsson við tónlist þorvaldar Bjarna þorvaldssonar byggt á sögu Carlo Collodi Leikstjóri: Selma Björnsdóttir Leikmynd: Vytautas Narbutas Ljós: Halldór Örn Óskarsson Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir Dans: guðfinna Björnsdóttir/Birna Björnsdóttir Búningar: María Ólafsdóttir Hljóð: guðmundur H. Viðarsson HHHHH leikdómUr jón Viðar jónsson leiklistargagnrýnandi Gosi á leið í dópiðfögnuður Leikarar sýningarinnar hylltir að lokinni frumsýning-unni á laugardaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.