Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Page 32
„Ég tel að kólna muni í helvíti áður en þeir, sem trúa á nauðsyn þess að verja lífsstíl okkar með því að berjast gegn hryðjuverkum, velji að ferðast með Icelandair,“ segir Jam- es J. Reilley, fyrrverandi liðsforingi í Bandaríkjaher, í bréfi til Icelandair. Reilley ferðaðist með Icelandair frá Bandaríkjunum til Svíþjóðar 6. ágúst síðastliðinn. Um borð las hann tímarit Icelandair, Atlantica. „Flug- félagið ykkar segir stríð Bandaríkj- anna gegn hryðjuverkum í Írak vera gæluverkefni Bush forseta sem þró- ast hafi út í raunverulega martröð,“ segir Reilly í bréfi sínu. Reilley full- yrðir að með þessu hafi Icelandair náð að móðga stóran hluta Banda- ríkjamanna sem séu stoltir af þeim fórnum sem færðar hafa verið í Írak. Hann hyggst nýta sér útvarpsstöðvar og dagblöð, til þess að kynna banda- rísku þjóðinni þessi viðhorf Ice- landair og hefur birt bréfið í heild sinni á fréttavefnum Seacoast-On- line. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingastjóri Icelandair, telur að ekki sé ástæða til þess að óttast herferð liðs- foringjans. „Þetta ágæta blað hef- ur mjög breiðan lesendahóp og það getur verið erfitt að komast hjá því að eitthvað rati í blaðið sem sumir eru ekki sammála. Til dæmis fengum við mjög hörð viðbrögð, á sínum tíma, við auglýsingu frá veitingastaðnum Þremur frökkum, þar sem boðið var upp á hvalkjöt,“ segir Guðjón. Reilley segist sérstaklega vera undrandi á því að sjá viðlíka ummæli í útgáfu flugfélags. Öðru máli gegni um leiðaraskrif í dagblöðum og orð stjórnmálamanna. „Ef þeir sem bera ábyrgð á þessum óforskömmuðu ummælum í blaði Icelandair þurfa að leita sér að vinnu á næstunni, geta þeir væntanlega leitað til al-Ka- ída-samtakanna eða til áróðursráðu- neytis talíbana,“ segir Reilley að lok- um í bréfinu. sigtryggur@dv.is „Þetta er alveg dæmigert fyrir það sem við erum að reyna að sporna við,“ segir Gísli Tryggvason, talsmað- ur neytenda, um þá staðreynd að gosdrykkur frá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar er auglýstur í leikskrá barnaleikritsins Gosa sem nú er sýnt á fjölum Borgarleikhússins. Eins og að hætta að selja nammi Guðjón Pedersen, leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, segir það hafa verið mistök að auglýsingin fór á forsíðu og að í seinni prentunum sé auglýsingin aftar. Honum finnst þó ekki tiltökumál að þarna sé aug- lýstur gosdrykkur. „Ég er ekki svona hreintrúaður,“ segir hann. Guðjón bendir á að Eg- ils hafi verið með samning við Borg- arleikhúsið til fjölda ára og að í veit- ingasölunni séu seldar vörur frá fyrirtækinu. Honum finnst það álíka fjarstæða að leggja auglýsingarnar af eins og að hætta að selja nammi á barnasýningum. Engar reglur brotnar „Við erum þeirrar skoðunar að það eigi að fara mjög gætilega þeg- ar auglýsingum er beint að börn- um. Það á ekki síst við um vörur sem deila má um hollustugildi á,“ seg- ir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann seg- ir liggja beinast við að leikskráin sé ætluð börnum. „Það er hins vegar ljóst að í þessu tilviki er ekki verið að brjóta neinar reglur.“ Talsmaður neytenda og um- boðsmaður barna hafa tekið hönd- um saman um að meta hvort og þá hvernig og með hvaða hætti sé eðli- legt og unnt að setja frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börn- um og ungmennum. Óheppilegar auglýsingar „Það er óheppilegt að beina gos- drykkjum að börnum með auglýs- ingum,“ segir Jóhanna Laufey Ólafs- dóttir, verkefnastjóri tannverndar hjá Lýðheilsustöð. Hún bend- ir á að tíðni glerungseyðing- ar hafi aukist verulega hjá unglingum og daglegar neysluvenjur eigi örugg- lega þátt í því. Samkvæmt nýleg- um rannsóknum dr. Ingu B. Árnadóttur, forseta tannlækna- deildar Háskóla Íslands, greind- ist glerungs- eyðing hjá 30 prósentum 15 ára unglinga og mælist glerungseyðing nær tvöfalt meiri hjá piltum en stúlkum. Þetta er hærra hlutfall en áður hefur komið fram í rannsókn- um á íslenskum unglingum og tíðni glerungseyðingar hefur aukist um 10 prósent á undanförnum tíu árum hjá þessum aldurshópi. Algengt er að 15 ára unglingar drekki um lítra af gosi á dag. Sporna við offitu barna „Við hvetjum framleiðendur og seljendur til góðra verka,“ segir Jó- hannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna og von- ast til þess að söluaðilar óhollra vara beini aug- lýsingum sínum ekki að börnum og unglingum. þriðjudagur 16. október 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910 FréttaSkot 5 1 2 7 0 7 0 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Loftárásir Icelandair? GOSI AUGLÝSIR GOS Deilt á Borgarleikhúsið fyrir að auglýsa gosdrykki á leiksýningu fyrir börn: Skrifað undir í rokinu Forkólfar Fimleikafélags Hafnarfjarðar brostu breitt þegar þeir undirrituðu samning um byggingu íþróttaaðstöðu í Kaplakrika. Þeir máttu þó hafa sig alla við til að halda í samningana í rokinu og hætta þurfti við fyrstu steypu- framkvæmdir vegna þess hversu mikill vindurinn var. DV-mynd Stefán Fyrrverandi liðsforingi er æfur yfir skrifum um Íraksstríðið: Bandarísk herferð gegn Icelandair Spíttskútumenn fyrir dómara Mennirnir fimm sem setið hafa í varðhaldi vegna spíttskútumálsins á Fáskrúðsfirði voru í gær færðir fyrir héraðsdómara til að staðfesta skýrsl- ur sem af þeim hafa verið teknar. Gæsluvarðhald mannanna fimm rennur út á fimmtudag. Íslensku rannsóknarlögreglu- mennirnir sem að undanförnu hafa verið að störfum í Danmörku og Færeyjum vegna rannsóknar á stóra spíttskútumálinu eru komnir aftur heim. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segist ekki vita nákvæmlega hvenær ákærur verða gefnar út. „Við reynum að flýta því eins og kostur er,“ segir hann. Sármóðgaður Reilley liðsforingi segir að pennarnir hjá Icelandair ættu að geta fengið vinnu hjá al-Kaída. Bústaðaeigendur stela heitu vatni Lögreglan á Selfossi rannsakar nú vatnsstuld sumarbústaðaeigenda í umdæmi sínu. Nokkrar kærur þess efnis hafa borist lögreglu. Þjófnaðurinn er í því fólginn að eigendur sumarhúsa virðast hafa tekið inn í hús sín meira magn af vatni en þeir hafa borgað fyrir. Húseigendur geta keypt ákveðinn skammt af heitu vatni sem þá fer í gegnum hemil sem er stilltur á það vatnsmagn sem samið er um kaup á. Þeir sem kærðir hafa verið hafa þá annaðhvort tengt framhjá hemlin- um eða rofið innsigli á honum og þar með fengið meira vatn en þeir borguðu fyrir. Málin eru í rannsókn hjá lögreglu. Argasta afturhald „Hann er eitthvert argasta aft- urhald sem til er í þessu þjóðfé- lagi,“ sagði Sigurður Kári Kristjáns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks, um Ögmund Jónasson, þingmann vinstri grænna, á Alþingi í gær þegar umræður stóðu sem hæst um frumvarp sem gerir ráð fyirir að léttvín og bjór verði selt í matvöruversl- unum. Sigurður Kári var einn flutnings- manna frumvarpsins en Ögmundur lýsti áhyggjum af þeirri forvarnar- stefnu sem haldið yrði að ungmenn- um ef af tillögunum yrði. Nefbraut kærustuna Edward Apeadu Koranteng var í gær sakfelldur í Héraðsdómi Reykja- víkur fyrir að hafa slegið fyrrver- andi sambýliskonu sína með þeim afleiðingum að hún nefbrotnaði. Hann hlaut enga refsingu fyrir þar sem hann hafði áður verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga 14 ára stúlku. Það rökstuddi dóm- ari með því að hefði Edward verið dæmdur fyrir bæði brot í einu hefði hann ekki fengið þyngri dóm. Árásin átti sér stað í mars á síðasta ári en þá sló hann stúlkuna er hann var í áflog- um við félaga sinn. Koranteng sagðist fyrir dómi hafa gert þetta óvart. Erla HlynSdÓttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Seinni útgáfa leikskrárinnar Egils appelsín er auglýst í leikskrá fyrir barnasýninguna um Gosa. Í upphaflegu útgáfunni var auglýsing- in á forsíðu en er komin á fyrstu opnu bæklingsins í annarri prentun. Kastaðist af hjóli og lést Karlmaður um þrítugt lést eft- ir að hafa misst stjórn á vélhjóli sínu á Krísuvíkurvegi um miðjan dag í gær. Svo virðist sem mað- urinn hafi misst stjórn á hjólinu í beygju inn á Bláfjallaafleggjara með þeim afleiðingum að hann kastaðist langt út í hraun. Hann var fluttur á slysadeild Landspít- ala þar sem hann var úrskurðað- ur látinn skömmu eftir komuna á sjúkrahús. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni í Reykjavík var tilkynnt um slysið klukkan 15.30 í gær. Rann- sóknarnefnd umferðarslysa var kvödd á vettvang og liggja tildrög slyssins ekki fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.