Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 28
Veitingar við öll tækifæri
veisluþjónusta
RESTAURANT- BAR
Tapas barinn
Tapas snittur, spjót og tapas í boxi.
Girnilegir smá-borgarar og eftirréttir.
Kíktu á tapas.is, sendu línu á tapa@tapas.is
eða hringdu í síma 551 2344.
Við hjálpum þér að gera þína veislu
ógleymanlega.
Hins vegar er líklegt að umræðan í Kanada
hafi átt þátt í ákvörðun hins kanadíska fyrirtækis
High Liner Foods í síðustu viku að binda enda á
viðskipti við HB Granda meðan Kristján Loftsson
tengist því fyrirtæki.
Mótmæli á sjávarútvegssýningu í Boston
Kannski hefur það líka haft sitt að segja að á sjáv-
arútvegssýningunni sem haldin var í Boston fyrr
í þessum mánuði voru hvalverndarsinnar með
mótmælaaðgerðir við sýningarbás HB Granda og
hvöttu fólk til að sniðganga viðskipti við fyrirtæk-
ið vegna tengsla þess við Kristján Loftsson.
Nýjasti kaflinn í hvalaútflutningi Kristjáns
Loftssonar er svo enn í gangi eftir því sem best
er vitað. Sú saga sýnir vel aðstöðu þeirra sem eru
viðriðnir alþjóðleg viðskipti með afurðir dýra sem
eru á alþjóðlegum listum yfir dýr í útrýmingar-
hættu.
Þann 20. mars kom til Hafnarfjarðar frá St.
Pétursborg í Rússlandi flutningaskipið Alma, sem
skráð er á Kýpur og komst í fréttir hér á landi árið
2011 þegar umfangsmiklar björgunaraðgerðir
þurfti til þess að bjarga því stýrislausu til hafnar
á Fáskrúðsfirði. Alma var hingað
komin að þessu sinni til þess að
fylla lestir sínar af frosnu hval-
kjöti frá Hval hf. Því er haldið
fram á vefsíðum hvalfriðunar-
sinna að útgerð Alma sérhæfi sig
í að umskipa farmi milli skipa úti
á rúmsjó.
Létu sig hverfa af radar 100
mílur suður af landinu
Meðan Alma var í Hafnarfjarðar-
höfn var unnið á vöktum við að
flytja meira en 2.000 tonnum af
kjöti úr frystigeymslum Hvals hf.
um borð í skipið.
Alma lét síðan úr höfn á föstu-
dagskvöldið og sigldi út Faxaflóa.
Fullyrt er að farmurinn hafi verið
stærsti farmur af hvalkjöti sem
farið hefur frá Íslandi áratugum
saman og jafngildi magnið sölu
nokkurra síðustu ára á öllum Jap-
ansmarkaði.
Fyrst um sinn var hægt að
fylgjast með ferð skipsins á leið
til suðurs á vefsíðunni MarineT-
raffic.com. Um klukkan fimm
á laugardagsmorguninn hætti
Alma hins vegar að senda frá sér
staðsetningarmerki. Skipið var
þá komið um 100 mílur suður af
Reykjanesi og sigldi á 14 hnúta
hraða í suðurátt.
Engin staðsetningarmerki
hafa borist síðan þá. Ekki er þó
talið að skipinu hafi hlekkst á
eða áhöfnin sé í hættu. Líklegast
er talið að áhöfnin á Alma vilji
hreinlega ekki láta vita af ferðum
sínum meðan þessi farmur er um
borð. Þannig bera menn sig að í
viðskiptum með bannvöru eins
og kjötið af þeim langreyðum
sem veiddar eru hér við land.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Þannig bera menn sig að
í viðskiptum með bann-
vöru eins og kjötið af
þeim langreyðum sem
veiddar eru hér við land.
28 fréttaskýring Helgin 28.-30. mars 2014