Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 33
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Forlagsverð:
2.990 kr.
Passi, gjald eða skattur?
umhverfisstofnun Nýja Sjálands og
borga fyrir afnot.
„Þetta kerfi á við alla notkun í
viðskiptalegum tilgangi m.a. beit-
arafnot, námavinnslu, skógarhögg,
kvikmyndatökur yfir í ferðaþjónustu
svo fátt eitt sé nefnt,“ skrifar Einar
og ennfremur: „Þar sem ferðaþjón-
ustan er stærsti notandi þjóðgarða
borgar hún fyrir öll afnot af slíkum
svæðum. Verðskráin er byggð upp
fyrir mismunandi notkun og tíma-
lengd og samningar geta verið fyrir
einn atburð eða til fleiri ára. Ferða-
skrifstofurnar fella síðan gjöldin inn
í verð til ferðamanna. Hins vegar
greiða skattborgarar Nýja-Sjálands
og ferðamenn á eigin vegum ekki að-
gangseyri að þeim svæðum sem Um-
hverfisstofnun Nýja-Sjálands stýrir.“
Hann segir síðan: „Þessa nýsjá-
lensku aðferð tel ég vera mjög skýra
og sanngjarna að því leyti að hún
gerir ráð fyrir að þeir borgi gjald
sem nýta svæðin í viðskiptalegum
tilgangi og af þeim sem valda aug-
ljóslega mestu álagi á svæðin. Aðr-
ir greiða ekki. Á þennan hátt verða
ferðamenn heldur ekki varir við
gjaldtökuna þannig að upplifunin
af því að heimsækja fallegar nátt-
úruperlur verður ekki rofin af því að
greiða aðgangseyri líkt og farið sé
inn í dýragarð eða skemmtigarða.“
Bandaríkin, Kanada, Ástralía
Hjá þjóðgarðastofnun Bandaríkj-
anna og Kanada, Umhverfisstofnun
Nýja-Sjálands og Ástralíu eru ferða-
þjónustufyrirtæki starfsleyfisskyld
ef þau vilja bjóða starfsemi innan
þjóðgarða, segir Einar Sæmundsen.
Þau þurfa að uppfylla kröfur og inn-
heimt eru hjá þeim gjöld fyrir afnot
ferðaþjónustunnar af svæðum í opin-
berri eigu.
Ef viðskiptatækifærin snúast um
að nýta takmarkaða auðlind eru þau
boðin út.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Nú er leitað leiða til gjaldtöku af ferðamönnum vegna ágangs á ferðamannastaði.
Margt er þar til umræðu en ferðamálaráðherra hefur mestan áhuga á að koma upp
sérstökum ferðamannapassa sem veiti aðgang að sem flestum svæðum.
Helgin 28.-30. mars 2014