Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 6

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 6
52 SVEITARSTJÓRNARMÁL Erlingur Friðjónsson, Guðmundur Ólafsson, Guðbrandur Björnsson. 7. Félagsmálaráðherra Finnur Jónsson flutti ávarp, lýsti i stuttu en glöggu máli aðalatriðum hinnar íslenzku sveitar- og bæjarmálaþróunar, er gerði samband sveitarfélaga túnabært og nauðsynlegt, og árnaði hinu væntanlega sambandi allra heilla og blessunar fyrir land og þjóð. Þá tilkynnti forseti fundarslit, vegna kaffihlés, en jafnframt að næsti fundur yfði settur í Kaupþingssalnum kl. \V2 sama dag. 2. fundur (11. júní). Á áðurgreindum tírna setti Ólafur B. Björnsson, forseti' bæjarstjórnar Akra- ness, 2. fund stofnþingsins í Kaupþings- salnum í Reykjavík. Þar var tekið fyrir: 8. „Frumvarp til laga fyrir Samband islenzkra sveitarfélaga". Hafði undirbún- ingsnefndin samið frumvarpið og sent það til bæjar- og hreppsfélaga um leið og boðun þingsins. Frumvarpinu var einnig útbýtt prentuðú meðal þingfulltrúa. Jónas Guðmundsson reifaði málið og gerði 'rækilega grein fyrir frumvarpinu. Til máls tóku — auk frummælandans, sem talaði tvisvar: Eiríkur Pálsson, bæj- arstjóri í Hafnarfirði, og Sigurjón Jóns- son oddviti, Seltjarnarnesi. Því na*st var írumvarpinu vísað með samhljóða atkvæðum lil laganefndar. 9. Önnur mál. Undir þessum lið kom aðeins fram eilt mál: Axel V. Tulinius, lögreglustjóri í Bol- ungavík, lagði fram svo hljóðandi tillögu með munnlegri greinargerð: „Stofnþing Sambands islenzkra sveitar- félaga skorar á Alþingi og ríkisstjórn að gaiiga ekki endanlega frá löggjöf um framtíðartilhögun rafmagnsmála landsins áður en umsagnar og álits stjórnar sam- bandsins um þau hefur verið leitað.“ Tillögunni var vísað með samhljóða at- kv. til allsherjarnefndar. Næsti fundur boðaður á sama stað næstkomandi dag kl. 10 árdegis. Fundi slitið. 3. fundur hófst þriðjudaginn 12. júni kl. 10 árdegis i Kaupþingssalnum. Fundinum stjórn- aði Björn Guðmundsson, hreppstjóri í Mýrahreppi. Á fundinum gerðist þetta: 10. Gunnar Viðar hagfræðingur, form. niðurjöfnunarnefndar Reykjavíkur, flutti erindi um tekjustofna sveitarfélaga. Gerði ræðumaður ýtarlega grein fvrir þvi, hverjir tekjustofnarnir væru, hvernig þeim væri háttað og hve ófullnægjandi og ófullkomnir þeir væru í slæmu árferði eða jafnvel venjulegu. Benti hann á ýmis dæmi um það, hvernig ríkisvaldið gengi með núgildandi skattalöggjöf sinni á hlut sveítarfélaganna. Taldi hann endurskoð- un þessara efna. bráðnauðsynlega. (Sjá Erindi og umræður). 11. Þá flutti Ólafur B. Björnsson, for- seli bæjarstjórnar Akraness, erindi um samstarf sveitarfélaga í nienningarmál- um. Nefndi hann mörg dæmi um nauð- syn samtaka bæjarfélaganna til þess að efla menningu i landinu og lagði til, að fundurinn kysi tólf manna nefnd, er at- hugaði þessi málefni og legði fram til- lögur í þeim áður en þingi sliti. Fundurinn samþykkti að kjósa nefnd- ina.TilIaga koin fram um,að þessirmenn yrðu kosnir í nefndina: Helgi H. Eiríksson, Reykjavik, Óii Hertervig, Siglufirði, Hinrik Jónsson, Vestmannaeyjum, Jón Guðjónsson, Isafirði, Þórður Jónsson, Ólafsfirði, Kristján Bjartmars, Stykkishólmi, Alfreð Gíslason, Keflavík, Friðrik Hansen, Sauðárkróki, Jóhann Frímann, Akureyri, Eyþór Þórðarson, Neskaupstað, Eiríkur Pálsson, Háfnarfirði, Ólafur B. Björnsson, Akranesi. Tillagan var samþykkt og nefndin því skipuð framangreindum mönnum.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.