Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Qupperneq 49

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Qupperneq 49
SVEITARSTJÓRNARMÁL 95 ])ing Austfirðinga skora á nefndir þær, sem hai'a með höndum undirbúning að samningu nýrrar stjórnarskrár fyrir hið íslenzka lýðveldi, að taka sérstaklega til rannsóknar þann möguleika að auka valdsvið og áhrif héraðanna í landinu ineð því að stofna fjórðungs- eða fylkis- stjórnir með allvíðtæku valdi í málefn- um sínum, og með því að tryggja það, að alþingismenn séu búsettir og starfandi hver í sínu kjördæmi. Telur fjórðungs- þingið, að með því verði lagður grund- völlur þeirrar efnalegu og menningar- legu eflingar, sem flest byggðarlög hafa svo mikla þörf fyrir. Tillaga þessi var samþ. með 11 samhlj. atkv. Verzlunar- og siglingamál. Fjórðungsþing Austfirðinga lýsir megnustu óánægju sinni yfir því, að næstum öll inn- og útflutningsverzlun landsins er nú komin í hendur heild- verzlana í Reykjavík, og að næstum allir vöruflutningar að og frá landinu fara nú fram um þessa einu höfn með öllum þeim töfum og feikna kostnaði, sem umhleðsla í Reykjavík og dreifing varanna þaðan út um landið veldur, að ógleymdri þeirri aðstöðu, sem á þennan hátt hefur skap- azt fyrir höfuðstaðinn til þess að skatt- leggja alla þjóðina gegnum útsvarsálagn- ingu á heildsölur þar. Telur fjórðungs- þingið, að þetta óheilbrigða ástand hafi skapazt við það: 1) að Eimskipafélag Is- lands hefur um langt skeið í vaxandi mæli gert Reykjavík að miðstöð siglinga sinna, og 2) að skipulag það, sem nú lengi hefur verið á úthlutun gjaldeyris- og innflutn- ingsleyfa, hefur gefið kaupsýslumönnum í Reykjavik sérstaklega hagkvæma að- stöðu til þess að draga til sín mestalla viðskiptaveltu landsins. Telur fjórðungsþingið, að við ]>etta á- stand í verzlunarmálum verði með engu móti unað til frambúðar, og skorar á Al- þingi og ríkisstjórn að vinna markvisst að því að koma sem fyrst á meira jafn- rétti í landinu í þessu efni. Út af þessu vi 11 fjórðungsþingið leggja áherzlu á eftirgreind atriði: 1. Að þegar úthlutað er gjaldeyri til innkaupa í fjórðunginn, verði hon- um ætlað það gjaldeyrismagn, sem hann framleiðir, í réttu hlutfalli við aðra. 2. Að Eimskipafélag íslands haldi uppi beinum ferðum milli Austurlands og Norðurálfuhafna. 3. Að samvinnufélög og aðrir, sem kaupsýslu stunda í fjórðungnum, stefni að því að kaupa vörur sínar frá framleiðslulöndunum og flytja þær beint til Austurlandsins. Flugsamgöngur. „Fjórðungsþing Austfirðinga telur, að í 'framtíðinni verði flutningar pósts og far- þega hagkvæmastir í lofti. Áherzlu verður að leggja á, að flugferð- um innanlands verði komið í það horf, að þær fullnægi eðlilegri' þörf vegna pósts og farþega. Telja verður, að eins og stendur séu flugferðir til Austurlands algerlega óvið- unandi, og það er skoðun fjórðungsþings- ins, að meðan einungis er treyst á flug- ferðir einkafyrirtækja, eins og nú er, muni ekki verða séð fyrir nægilegum flugferð- um til ýmissa staða og landshluta. Það er og skoðun fjórðungsþingsins, að það sé i beinu samræmi við skipulagningu ann- arra innanlandssamgangna, að flugferðir innanlands verði skipulagðar af rikis- valdinu, með því að rikið kaupi nægileg- an flugvéla- og flugbátakost og haldi honum í áætlunarferðum innanlands, eft- ir því sem nauðsyn krefur, og skorar á Alþingi og ríkisstjórn að undirbúa hið bráðasta slíka skipan á flugsamgöngum innanlands.“ Kauptún á Héraði. Um leið og fjórðungsþing Austfjarða átelur það, að ríkissjóður lét hjá líða að kaupa land handa kauptúninu á Fljóts- dalshéraði, áður en byggingar hófust þar, skorar l'jórðungsþingið á Alþingi og rík-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.