Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Qupperneq 28
74
SVEITARSTJÓRNARMÁL
að verja af tekjum þessa árs til starf-
rækslu sambandsins, eftir þvi sem
hún telur nauðsynlegt, meðan lil
hrekkur."
Till. eru ekki torskildar. Skoðanir gela
auðvitað verið skiptar, hvað hátt eigi að
setja gjaldið til sambandsins. Lögin segja
það ekki inega vera minna en 10 aura á
hvern íbúa og ekki lægra en 50 kr. frá
neinu sveitarfélagi. Við þennan lagastaf
er nefndin bundin fyrst og fremst. En
orðalag greinarinnar er þannig, að greini-
lega kemur fram, að það sé allra ýtrasta
lágmark, svo að nefndin leit svo á, að
þinginu væri ekki aðeins heimilt, heldur
bau’i nokkur skylda til að sjá samband-
inu fyrir rekstrarfé, sem hugsanlegt væri,
að eitthvað væri hægt að gera fyrir. Nú
lá fvrir nefndinni lauslegt yfirlit yfir það,
hve mannmargt er í þeim sveitarfélögum,
sem þegar hafa óskað að verða þáttták-
endur í sambandinu. Komið hefur í ljós
við samlagningu, að íbúatalan er 86 834.
Með 25 aura gjaldi á mann mundu þá
tekjur sambandsins verða, ef allir standa
í skilum, rúmar 20 þús. kr. Þetta er brúttó
greiðsla. Við sáum ekki ástæðu til, að far-
ið væri að nota dýrtíðarvísitölu. Þess má
geta, að rennt er blint í sjóinn um það,
hvort þetta fé nægir.
Seinni tillagan kemur í staðinn fyrir ])á
eiginlegu fjárhagsáætlun og felur í sér
heimild fyrir stjórnina til að verja af
þessu fé. Orðalagið er valið með það fyr-
ir augum, að gerl er ráð fyrir, að stjórn-
inni sé/óheimilt að verja meira fé en inn-
heimtist, — að þingið heiinili ekki að
stófna til rekstrarskulda.
Undir þetta nefndarálit hafa skrifað 6
nefndarmanna, einn hefur ekki komið á
þing.
D. Þingslit á Þingvöllum.
Ræða 6. þingforseta,
Björns Jóhannessonar.
Ég leyfi mér að selja 6. og síðasta fram-
haldsfund Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga á Þingvöllum. Eins og hv. þm. er
kunnugt, var búið að afgreiða þau mál,
sem fvrir lágu, og fyrir þessum stutta
fundi liggur ekki annað en þinglausnir.
Mun forseti sambandsins, Jónas Guð-
mundsson, slíta þinginu. Ég vil nota tæki-
færið til að þakka þeim mönnum, sem
starfað hafa á þessu þingi, fvrir ágæta
sa.mvinnu. Ég tel, að með þessu þingi hafi
þessi starfsemi farið prýðilega af stað.
Það hefur að vísu ekki gefizt tími til að
taka til athugunar ýmis þau mál, sem
kalla að, sem ekki er von, þar sem þetta
er fyrst og fremst stofnþing. Sérstaklega
vil ég þakka þeim mönnum, sem mest
hafa starfað að því að koma þessu sam-
bandi af stað, en það eru þeir Jónas
Guðmundsson, eftirlitsmaður með sveit-
arstjórnarinálefnum, og Guðmundur Ás-
björnsson, forseti bæjarstjórnar Reykja-
vikur. Er ég viss um, að sambandið befði
ekki enn verið stofnað, ef þeirra ágætu
ráða og verka hefði ekki notið.
Eg vil enn fremur alveg sérstaklega
þakka bœjarstjórn Reykjavíkur fyrir
þann stuðning, sem hún hefur frá því
fyrsta veitt þessu málefni. Fyrst og fremst
með því að skipa forseta sinn, Guðmund
Ásbjörnsson, í undirbúningsnefndina og
einnig fyrir margs konar fyrirgreiðslu,
sem ber að þakka borgarstjóranum,
Rjarna Benediktssvni, alveg sérstaklega.
Síðast en ekki sízt vil ég þakka borgar-
stjóranum, forseta bæjarstjórnar og bæj-
arstjórn Reykjavíkur fyrir það höfðing-
lega boð að bjóða okkur hingað og gefa
okkur þaiinig kost á að slíta þingi okkar
hér á hinum fornhelga stað íslenzku þjóð-
arinnar.
Ég vil og tjá þakkir mínar til alls þing-
heims, sem tekið hefur þátt í þessu starfi.