Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 16

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 16
62 SVEITARSTJÓRNARMÁL Komið var til Þingvalla um kvöldið kl. 9, og fóru þinglausnir þar fram í skrúð- garði Jóns Guðmundssonar oddvita Þing- vallahrepps, undir skini kvöldsólar. Björn Jóhannesson, forseti fundarins, flutti ávarp til fundarmanna, lýsti hlut- verkum sambandsins, er framundan væru, þakkaði rausn og háttvisi bæjar- stjórnar Reykjavíkur, sem boðið hafði þinginu á þennan fornheíga sögustað, og árnaði hinu nýstofnaða bandalagi gæfu og gengis. Þá tók til máls formaður sambandsins, Jónas Guðmundsson, þakkaði tiltrú þá, er sér hefði verið sýnd með formanns- kjörinu, þakkaði fundarmönnum fyrir þann mikla einhug, er komið hefði fram í störfum þingsins, og lýsti þeirri von sinni og ósk, að Samband íslenzkra sveit- arfélaga mætti verða þýðingarmikil og blessunarrík samtök l’yrir þjóðfélagið. Á eftir ræðu formanns söng allur þing- heimur kvæðið „Ó, fögur er vor fóstur- jörð“, undir stjórn Áskels Snorrasonar, fulltrúa frá Akureyri. Því næst sagði formaður þinginu slitið og óskaði þingfulltrúum góðrar heim- ferðar. Dagana, sem þingið var háð, fóru þing- fulltrúarnir tvær ferðir. Aðra fóru þeir 12. júní til Hafnarfjarðar í boði bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar. Hina 13. júní til Ljósafoss og Þingvalla í boði bæjar- stjórnar Reykjavíkur, eins og um getur í fundargerðinni hér að framan. Lagt var af stað til Hafnarfjarðar kl. I25 e. h. frá alþingishúsinu í Reykjavik. Staðnæmzt var við Ráðhúsið í Hafnar- firði, og bættust þar í hópinn nokkrir bæjarfulltrúar Hafnarfjarðar. Síðan var haldið áfram suður fyrir kaupstaðinn og numið staðar á svonefndu Hvaleyrar- holti, en þaðan er útsýn góð yfir Hafn- arfjörð. Þá var bifreiðum rennt að Flens- borgarskólanum og hann skoðaður ásamt bókasafni. Því næst var ekið til Hellis- gerðis og gengið í þennan landskunna skrúðgarð Hafnfirðinga og þar dvalizt um hríð. Þessu næst var skoðuð sundlaug Hafnarfjarðar. Að því loknu var gengið í ráðhúsið og í fundarsal bæjarstjórnar. Þar flutti forseti bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar ræðu, þakkaði heimsóknina og greindi frá nokkrum helztu framkvæmd- um kaupstaðarins á siðustu árum og einnig þeim athöfnum, er næst lægi fyrir að hefjast handa um. Þá var gestum boðið í kvikmyndasal hússins og stutt kvikmynd sýnd. Að lok- um voru veitingar fram bornar í and- dyri kvikmyndasalarins. Jónas Guðmundsson þakkaði fyrir hönd gestanna rausnarlegt heimboð. Síðan var haldið til Reykjavikur og komið þangað á fundarstað kl. 5 siðdegis. Förin að boði bæjarstjórnar Reykja- víkur var hafin frá alþingishúsinu um kl. 4 síðdegis þann dag, er áður greinir. Bæj- arstjórnin var með í förinni, enn fremur hitaveitustjóri Reykjavíkur, rafveitustjóri Reykjavíkur og nokkrir fleiri starfsmenn bæjarins. Fyrst var ekið að upptökum hitaveit- unnar hjá Reykjum í Mosfellssveit og mannvirki það athugað. Siðan var farið að Ljósafossi og orkuver Rafveitu Rvíkur skoðað. Þar voru ferðamönnum drykkir bornir, en því næst haldið til Þingvalla og staðnæmzt við Valhöll. Veður var hið ágætasta, og nutu fegurð og tign staðarins sín forkunnar vel. Þinglausnir fóru fram i skrúðgarði Jóns Guðmundssonar oddvita, svo sem fyrr er getið. Að loknum þinglausnum settust menn að veizluborðum i Valhöll, þar sem matur og drykkur voru framreiddir af mikilli rausn. Borgarstjóri Reykjavikur bauð gestina velkomna og lýsti aðstöðu Reykjavikur, framkvæmdum hennar og áformum. Enn fremur skyldu hennar og vilja til þess að taka þátt i Sambandi íslenzkra sveitarfé- laga. Síðan tóku margir til máls, og skemmtu menn sér við ræður og söng fram yfir miðnætti.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.