Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 50
96
SVEITARSTJÓRNAKMÁL
r
Þing- og héraðsmálafundur V.-Isafjarðarsýslu.
Um lnngt skeið hefur Vestur-ísafjarð-
arsýslá haft þann sið að halda árlega
fund með fulltrúum allra hreppa sýsl-
unnar og ræða þar héraðsmál og lands-
mál og gera tillögur um þau málefni, er
mestu hefur þótt skipta. Eru fulltrúar á
fundi þessa kosnir sérstaklega í þessu
skyni.
Enn þá hefur starfsemi þessi ekki verið
látin ná til allra Vestfjarða, en oft hefur
þó þing- og héraðsmálafundurinn gert á-
lyktanir, sem við koma öllum Vestfjörð-
um. Er hér því að ræða uxn tilraun í-
búanna þar vestra til þess að skapa sér
styrkari samtök en þau, sem fyrir eru að
lögum, og þar sem hér er að mínum dómi
hyggt á réttum grundvelli um val fulltrúa
—■ sjálfum sveitarfélögunum —, tel ég
rétt að benda á samtök þessi í sambandi
við vænlanlega upptöku fjórðunga og
fylkja.
46. þing- og héraðsmálafundur Vestur-
Isafjarðarsýslu var haldinn á Flateyri
dagana 7. og 8. júlí 1945.
Fundinn sóttu 14 kjörnir fulltrúar
hreppanna ásamt þingmanni kjördæmis-
ins. Enginn kom úr Auðkúluhreppi.
Fundarstjóri var Kristinn Guðlaugsson
isstjórn að fesla nú þegar kaup á hæfi-
lega miklu landi handa umræddu kaup-
túni og sveitaþorpi, sem nú er hyrjað að
hyggja í Egilsstaðalandi.
Samþ. með samhlj. atkv.
1 stjórn Fjórðungssambands Austur-
iands fyrir næsta ár voru kosnir:
Gunnlaugur Jónasson bankagjaldkeri,
Seyðisfirði, formaður.
Hjálmar Vilhjálmsson bæjarfóg., Seyð-
isfirði.
Eyþór Þórðarson skólastjóri, Norðfirði.
Sigurbjörn Snjólfsson hóndi, Gilsár-
stekk.
á Núpi og varafundarstjóri Ólafur Ólafs-
son, Þingeyri. Fundarritari var Björn
Guðmundsson, Núpi.
Vegna rúmleysis verður að þessu sinni
að sleppa flestum 'tillögum þeim, sem
samþykktar voru á þing- og héraðsmála-
fundinum síðasta. Aðeins skal þessara
tveggja getið:
Vestfjarðabáturinn.
46. þing- og héraðsmálafundur Vestur-
Isafjarðarsýslu skorar á Alþingi að
hækka fjárstyrk til Vestfjarðabátsins h.f.
frá þvi, sem verið hefur.
Fundurinn óskar, að þingmaður kjör-
dæmisins beiti sér fyrir máli þessu á Al-
þingi og vinni að því, að styrkurinn
verði veittur með því skilyrði, að bátur-
inn annist tvær ferðir í viku til Súganda-
og Önundarfjarðar og eina til Dýrafjarð-
ar þann tíma ársins, sem Breiðadalsheiði
er lokuð fyrir bílaumferð.
Samþ. í einu hljóði.
St jórnarskrármálið.
Fundurinn lýsir sig fylgjandi þvi, að
kvatt verði saman sérstakt stjórnlagaþing
(þjóðfundur) til að afgreiða stjórnar-
skrármálið.
Samþ. með 9:3 atkv.
Jafnframt lýsir fundurinn sig fylgjandi
þessuin atriðum:
1. Forseti hafi frestandi neitunarvald,
unz þjóðaratkvæði hefur gengið.
Samþ. í einu hljóði.
2. Vald og fjárráð héraðanna verði auk-
ið frá þvi, sem nú er.
Samþ. í einu hljóði.
3. Þingið verði ein málstofa.
Samþ. með 8:3 atkv.
4. Landinu verði skipt í einmennings-
kjördæmi eingöngu og uppbótarþingsæti
afnumin.
Samþ. með 9:1 atkv.
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.