Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Blaðsíða 10
6
SVEITARSTJÓRNARMÁL
ón króna, eða 8,1% af útgjöldum Ttygginga-
stofnunarinnar.
5. Bætui til mæðra, ekkna og maka:
A. Ekkjubætur. Ekkjubætur Tri'gginga-
stofnunarinnar eru tvennskonar. Allar kon-
ur, sem verða ekkjur áður en þær komast á
ellilífeyrisaldur, eiga rétt á ekkjubótum, kr.
600.00 á mánuði í grunn í 3 mánuði, eða
með núverandi vísitölu samtals um kr.
2700.00. Ef ekkjan hefur böm á framfæri
sínu yngri en 16 ára, á hún auk þess rétt á
kr. 450.00 í grunu á mánuði í 9 mánuði til
viðbótar. Nemur sú úpphæð með núverandi
vísitölu unr kr. 6000.00, þannig að bætur til
slíkra ekkna nema á fyrsta ári um kr. 8700.00,
auk bamalífeyris.
Sé ekkjan kornin yfir 50 ára aldur, eða
öryrki, greiðist auk ekkjubótanna, ekkjulíf-
eyrir. Upphæð hans rniðast \;ið aldur kon-
unnar, eða örorkustig. Sé ekkjan t. d. 58 ára
við lát mannsins, getur lífeyrir hennar num-
ið hálfurn ellilífeyri, meiru ef konan er eldri,
en hlutfallslega lægri upphæð sé hún vngri.
Tryggingaráð ákveður lífeyrisupphæðina með
hliðsjón af fjárhagsástæðum. Einnig er trygg-
ingaráði beimilt að greiða ekkli lífeyri með
börnum hans ef sérstaklega stendur á, og
fvrirsjáanlegt er, að tekjur hans hrökkva ekki
til þess að sjá fjölskyldunni farborða.
B. Fæðingarstyrkur. Allar mæður eiga rétt
á fæðingarstyrk frá Tryggingastofnuninni,
kr. 600.00 í grunn, eða með núverandi vísi-
tölu kr. 900.00 fyrir hverja fæðingu. Auk þess
greiða sjúkrasamlögin kr. 120.00 til 275.00
fyrir hverja fæðingu utan sjúkrahúss eða fæð-
ingarstofnunar. Ef kona fæðir í sjúkrahúsi og
samlagið greiðir dvöl hennar þar, fellur
greiðsla þessi niður. Auk þessa greiðir Try'gg-
ingastofnunin ógiftum mæðrum, sem verða
fyrir vinnutjóni og tekjumissi vegna barns-
burðar og leggja fram úrskurð á hendur bams-
föður, viðbótar-fæðingarstyrk. Má hann
nema allt að kr. 300.00 í grunn á mánuði
í allt að 3 mánuði, eða samtals ca. kr. 1350.00.
Viðbótarstyrkur þessi er endurkræfur hjá
barnsföður, eða framfærslusveit hans á sama
hátt og lífeyrir með óskilgetnum bömum.
C. Makabætur. Ttyggingastofnuninni er
heimilt að greiða eiginkonu örorkulífeyris-
eða ellilífeyrisþega nokkrar bætur, þó að hún
sé ekki orðin 67 ára. Er svo til ætlazt, að sú
heimild sé eigi notuð nema sérstaklega standi
á t. d. að maðurinn sé ósjálfbjarga og þurfi
hjúkrunar og umönnunar við, svo að konan
geti ekki sinnt öðrum störfum. Tryggingaráð
ákveður makabætumar hverju sinni, og mega
þær aldrei vera hærri en svo, að greiðslur
til hjónanna samtals jafngildi upphæð hjóna-
lífeyris.
Alls nutu um 4400 einstaklingar fæðingar-
sty'rks eða ekkjubóta á árinu 1950, en upp-
hæðin, sem greidd var, nam kr. 3,8 milljón-
um, eða 6,1% af útgjöldum Tryggingastofn-
unarinnar.
6. Sjúkrabætur:
Sjúkradagpeningar eru greiddir þeim, sem
verða fyrir atvinnutjóni vegna veikinda
þannig, að tekjur þeirra falla niður að öllu
eða mestu leyti. Sjúkradagpeningar greiðast
þó aldrei fyrr en að liðnum ákveðnum bið-
tíma, sem er nokkuð mismunandi eftir því
hvort í hlut eiga launþegar eða atvinnurek-
endur. Upphæð sjúkradagpeninga er mis-
munandi eftir kynferði, verðlagssvæðum og
fjölskyklustærð, — og nemur frá kr. 12.00 í
grunu á dag fyrir einhleypa konu á öðru
verðlagssvæði, og upp í kr. 18.00 á dag fyrir
kvæntan mann á fyrsta verðlagssvæði auk
verðlagsuppbótar, þ.e. með núverandi vísitölu
kr. 27.00. Hafi hinn sjúki böm á framfæri,
sem ekki njóta fjölskyldubóta eða barnalíf-
eyris, hækka dagpeningarnir jafn mikið og
fjölskyldubótum með börnum nemur, eða
um kr. 5.00 á dag fyrir hvert barn á fyrsta