Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Blaðsíða 19

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Blaðsíða 19
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL 15 stangast á við pólitískt flokksfylgi tel ég þó minna virði en manngildi og hæfileika í starfinu. Með því fyrirkomulagi, sem nú ríkir um ráðningu bæjarstjóra og sveitarstjóra, þar sem þeir kunna að verða ráðnir, má gera ráð fyrir, að pólitísk sjónarmið komi þar rnest til greina. Ekki þarf það þó svo að vera, enda dæmi um það að bæjarstjórar hafi ver- ið ráðnir án þess að hafa pólitískan meiri hluta bak við sig. Vík ég þá fyrst að öðrum lið tillögunnar, er hljóðar svo: „Hvort ekki séu tök á að setja sérreglur um stjórn þeirra sveitarfélaga, sem kauptún vaxa upp í, sem tryggi það, að kauptúnið geti fengið nokkra sjálfstjórn í eigin málum án þess að vera að fullu skilið frá móðurhreppn- um, fyrr en íbúatala þess er orðin yfir 500 manns.“ Nú hefur á síðari árum sú skipan rikt, að skipta sveitarfélögum, þá er kauptún hafa vaxið upp í þeim, og þau farið að bera móð- urhreppinn ofurliði. Virðist mér að orsakir til þessarar skiptingar séu aðallega Nær: 1. Ótti við það, að vegna sérhagsmuna kauptúnsins, svo sem skattaálagningar vegna gatnagerðar, holræsagerðar, vatns- leiðslu o. fl. verði því, sem eftir er af móðurhreppnum, of íþyngt með álögð gjöld til framkvæmda, sem koma honum ekkert við, og hann verður ekki aðnjót- andi að. 2. Þegar kauptúnið að fólksfjölda fer að vaxa móðurhreppnum yfir höfuð, fái hann ekki neina aðstöðu til að hafa áhrif í sveitarstjórn, og verði því litli bróðir í öllum málum sveitarfélagsins. Ef gera mætti ráð fyrir, að reyndin kunni að verða þessi ef ekkert er aðgert, verður að stefna að því að lækna þenna agnúa, því að í flestum tilfellum er þessi skipting engum til hagsbótar ef vel er að gætt, og með því, að kauptúnið hafi nokkra sjálfstjórn í þeim mál- um sérstaklega, sem móðurhreppnum ekki koma við, verður engin ástæða til að skipta á milli alls annars, er báðum hreppsfélög- unum kernur við, því margt af því breytir engu þó skipt sé. Aftur á móti getur verið nauðsyn á, í ýmsum tilfellum, að færa til og lagfæra skipti hreppa, svo sem þegar kaup- tún vaxa upp í tveimur eða fleiri sveitar- félögum, eins og átt hefur sér stað í nokkr- um tilfellum hér að undanförnu. Til þess að girða fyrir þessa hluti tel ég nauðsyn á, að sérreglur verði settar um eigin mál þeirra kauptúna, sem þannig eru til- komin, svo að þetta þurfi ekki að endurtaka sig, og ætti einnig með þessu að geta fengizt lagfæring á til sameiningar aftur, þeim sveit- arfélögum, sem skipt hefur verið áður af þessurn ástæðum. Kem ég þá að fyrsta lið tillögunnar sem er: „Hvort ekki sé tímabært að stækka sveitar- félög landsins með því að sameina þau þannig, að ekki sé undir 500 íbúum í neinu sveitarfélagi, nema sérstakar landfræðilegar ástæður liggi til.“ Ég hygg að ef þessi tillaga yrði borinn und- ir kjósendur, sem í sveitum og kauptúnum búa, mundi hún lítið fylgi fá, þar sem sú stefna hefur ríkt að undanförnu, að skipta sveitarfélögum í smærri heildir virðist hér vera stefnt til öfugrar þróunar í þessum mál- um, ef á þetta er litið. Nú vil ég taka það • fram, sem mína skoðun, að mörg sveitarfé- lög eru of smá og það svo, að i ýmsum til- fellurn getur það til vandræða horft, því að óneitanlega hafa stór sveitarfélög meira bol- magn til að standa undir ýmsum stærri framkvæmdum, og eru færari til að taka á sig þyngri byrðar en þau smærri, með öðr- um orðum sterkari heild í þjóðfélaginu. Á sumurn stöðum á landi hér, hefur nú í seinni tíð orðið sú öfugþróun í okkar þjóð- félagi, að fólkið hefur flutzt úr sveitunum í

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.