Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 20

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 20
16 SVEITARST J ÓRNARMÁL kaupstaðina og kauptún, og sumar sveitir þannig nálega tæmzt af fólki, er það því bert að hér þarf að koma breyting á. Svo fremi að ekki komi aftur breyting þar til batnaðar, virðist óhjákvæmilegt að sameina það, sem eftir er, svo að ekki eigi þessum fá- mennu sveitarfélögum að blæða alveg út. Þetta kann þó að vera nokkrum erfiðleikum bundið, landfræðilega séð, um það er mér ekki kunnugt, en eitthvað þarf að gera fyrir þetta fólk, sem enn vill halda ttyggð við sveitina, sennilega þarf einnig að koma meira til. Þó að svo hafi orsakazt að sumstaðar hafi sveitirnar nærri tæmzt, og annars staðar fólk- inu fækkað til stórra niuna, hefur þetta á einstaka stað breyzt í þá átt, að fjölgun hef- ur átt sér stað, og sumstaðar í ríkum mæli, og eru horfur á, að svo verði áfram ef unga fólkinu, sem þar er uppalið, verður gefinn kostur á því að stofna heimili og starfa þar áfram. Þetta meðal annars þarf að liafa í lmga áður en róttækar breytingar verða gerð- ar í þessum málum. Einnig kemur hér margt fleira til greina. Til þess að þetta sé nokkru ljósara vil ég ræða um þetta mál innan þrengri ramma, lesendum til glöggvunar, áður en lengra er haldið, og taka Árnessýslu sérstaklega til athugunar, þar sem ég hef mestan kunnug- leika á. í Árnessýslu eru 18 hreppar nú orðið, eftir að Selfoss og Hveragerðishreppur urðu sér- stök sveitarfélög. Ef slík sameining yrði gerð mundu hrepparnir þar að líkindum verða 8—-g, sem bezt mundi fara á eftir legu þeirra. Mundu með þessu skapast nokkuð sterk sveitarfélög, með 500—1500 íbúum hvert, og fjárhagslega séð færari um að standa und- ir þeim byrðum og þeim skyldum, er þeim bæri að inna af hendi. Með þessu er þó ekki allt fengið, þó að vísu séu þar nokkrir hreppar, sem allt of fá- mennir eru, en þó legu sinnar vegna heldur óþægilegir til sameiningar, með fækkandi íbúum, bæði af ásælni höfuðstaðarbúa og ráðstöfunum þess opinbera, sem væri nauð- svn á slíkri lagfæringu. í flestum hinum hreppunum er öðruvísi farið, í mörgum þeirra er fólkinu tekið að fjölga, nýbýli hafa verið stofnuð og öll félags- málaþróun ört vaxandi. Þeir Jónas Guðmundsson skrifstofustjóri formaður Sambands ísl. sveitarfélaga og Karl Kristjánsson alþingismaður, telja kosti smærri sveitarfélaga litla, en stærri sveitar- félög hafi þá marga. I því er ég þeim að nokkru leyti sammála, eins og að framan greinir, en á þær röksemdir get ég þó ekki að öllu leyti fallizt. Sá kostur, sem ég tel mestan í hverju sveitarfélagi, er, að þar sé uppbyggð- ur sterkur félagsandi, því með fullum rök- um mætti benda á mörg dæmi um það, að góð samvinna og félagsandi er meira virði en nokkur sjóður í banka eða nokkuð meiri höfðatala, og ég óttast ekki um, að hér eftir eins og hingað til verði stjórn sveitarfélaga í góðra manna höndum, þó smærri séu, hvað sem alþingismaðurinn álítur um það. Vissulega er það rétt, að öll nútíma tækni er mikils virði í þessum málum, sem öðrum, svo sem greiðar samgöngur, sími o. fl. en þetta er þó ekki allt. Full erfitt sýnist nú æði víða að fá mestan hluta bænda til að sækja almenna hrepps- fundi, þó hrepparnir séu ekki stærri en þeir eru nú, en hvað mundi þá ef 2—3 hreppar væru sameinaðir, sennilega mundi þá fundi sækja í mesta lagi helmingur þeirra af eðli- legum ástæðum, bæði vegna vöntunar á farartækjum og skorts á tíma til slíkra ferða- laga. Vera má, að fundarhöld sem þessi séu lítilsvirði í augum ýmsra manna, en þar er ég á annarri skoðun, og hef þar um fulla reynslu. Með sameiningu hreppa, tók ég fram hér að framan, að 8—9 mundu þeir verða í Ár-

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.