Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Síða 36

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Síða 36
32 SVEITARST J ÓRNARMÁL þá aðstoð, er þær mega, hver í sínu umdæmi. Sveitastjórnirnar ættu og að stuðla að því, að slíkir skógræktardagar kæmust á og valdir yrðu þeir staðir til gróðursetningar, er ætla má að bezt séu til þess fallnir, og kynnu í framtíðinni að setja sinn svip á umhverfið, ef vel tækist um gróðurinn. Einnig mætti vel svo fara, að börn þau, sem þátt tækju í slíkri gróðursetningu, fengju áhuga fyrir skógrækt og eflingu hennar og styddu að framgangi hennar í framtíðinni og væri slíkt í alla staði æskilegt. , Sett voru lög um hámark húsa- húsaieigu. leigu og eldri ákvæði urn það L. nr. 30/1952. efni þar meg fe]]d niður. í lögum þessum segir: „Hámark þeirrar lmsaleigu, sem ákveða má fyrir íbúðarhúsnæði, skal vera sem hér segir: í. í húsum, teknum til afnota fyrir í. jan. 1942, kr. 7.00 á mánuði fyrir hvern fer- metra gólfflatar íbúðarhúsnæðis, miðað við utanmál. 2. í húsum, teknum til afnota á tímabil- inu 1. janúar 1942 til 1. janúar 1946, kr. 9.00 á mánuði fyrir hvern fermetra gólfflatar íbúðarhúsnæðis, miðað við utanmál. 3. í húsum teknum til afnota eftir 1. jan. 1946, kr. 11,00 á mánuði fyrir hvern fermetra gólfflatar íbúðarhúsnæðis, mið- að við utanmál. Verðlagsuppbót samkvæmt húsaleiguvísi- tölu greiðist ekki á leiguupphæð samkvæmt þessari grein.“ Þá er og framtekið, að ákvæði húsaleigu- laganna, um takmörkun eigenda á ráðstöf- unarrétti yfir eigin húsnæði, og falla áttu niður 14. maí 1952, samkv. 1. nr. 56 frá 1950, skuli halda gildi til 14. maí 1953. Enn fremur skuli ríkissjóður til sömu tímamarka greiða kostnað af framkvæmd laganna. En við það er miðað, að hlutaðeigandi sveitar- sjóður greiði kostnað af þeim eftir þann tíma. Gjald af kvik- Þá VOrU °§ Sett 1Ög Um g)ald myndasýningTim. af kvikmyndasýningum. l. nr. 28/1952. Samkvæmt þeim er sveitar- stjómum (bæjarstjórnum og hreppsnefnd- um) heimilt að leggja sérstakt gjald á kvik- myndasýningar, aðrar en sýningar íslenzkra kvikmynda og fræðslukvikmynda. Gjaldið má vera allt að 10% af aðgangs- eyri að kvikmyndasýningum, þegar frá hon- um hefur verið dreginn álagður skemmtana- skattur, enda séu þá eigendur kvikmvnda- húsanna undanþegnir sætagjaldi. Gjaldið skal ákvarðað af sveitarstjóm, sem einnig setur nánari reglur um gjalddaga þess og annað, er að innheimtu lýtur. Gjaldinu skal varið til menningar- og líkn- armála í viðkomandi sveitarfélagi, eÞir ákvörðun sveitarstjómar. Gjald samkvæmt lögum þessum má inn- heimta með lögtaki. Ef gjaldandi lætur ekki í té upplýsingar, sem skipta máli um innheimtu gjaldsins, skal hann sæta allt að 500 króna dagsektum. Brot gegn lögum þessum og reglugerð sam- kvæmt þeim varða sektum, allt að 10.000 krónum. Með mál, sem rísa kunna vegna brota á lögum þessum eða reglugerðum, settum sam- kvæmt þeim, skal farið að hætti opinberra mála. Lög þessi öðlast þegar gildi, og eru þá numin úr gildi lög nr. 34 22. nóv. 1918, að því leyti sem þau eiga við kvikmyndasvn- ingar. Greiðsluafgangur Með logUm VOrU Sett ákvæði ríkíssjóðs 1951. um ráðstöfun á greiðsluaf- l. nr. 14/1952. gangi ríkissjóðs árið 1951. Samkvæmt þeim er ríkisstjóminni heimilt

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.