Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Blaðsíða 37
SVEITAKSTJ ÓRNARMÁL
33
að verja 38 millj. króna af tekjum ríkissjóðs
árið 1951 sem hér segir:
1. Að lána Ræktunarsjóði og Bygg-
ingarsjóði ........................ 15 millj. kr.
2. Að lána byggingarsj. verkamanna 4 — —
3. Að lána sveitarfélögum til útrým-
ingar heilsuspillandi íbúða, skv.
III. kafla laga nr. 44/1946 .... 4 — —
4. Að lána til byggingar smáíbúða 4 — —
5. Að kaupa lilutabréf í Iðnaðar-
banka íslands h. f. fyrir .......... 3 — —
6. Að greiða upp í hluta ríkissjóðs
af stofnkostnaði við skóla, sem
þegar hafa verið byggðir ........... 5 — —
7. Að greiða upp í hluta ríkissjóðs af
kostnaði við hafnargerðir, sem þeg-
ar liafa verið framkvæmdar .... 2 — —
8. Að lána veðdeild Búnaðarbanka
íslands ............................ 1 — —
Vextir af lánum, skv. 1., 2., 3., 4. og 8.
tölulið skulu vera 5^/2% á ári og lánstími
20 ár.
Þá er og ríkisstjóminni heimilt, ef hent-
ara þykir, að lána úr mótvirðissjóði fjárhæð-
ir þær, sem tilgreindar eru í 1., 2., 3., 4. og
8. tölulið, enda sé þá varið jafnháum fjár-
hæðum af tekjum ríkissjóðs árið 1951 til
greiðslu á lausaskuldum ríkissjóðs.
Hækkun fast- Samþykkt voru lög um heim-
cignaskatts. ild fvrir sveitarstjórnir til að
l. nr. 29/1952. jnnheimta með álagi fast-
eignaskatta til sveitarsjóða.
Lögin eru svo hljóðandi:
Heimilt er sveitarstjórn, að fengnu sam-
þykki félagsmálaráðherra, að ákveða, að inn-
heimta skuli með allt að 400% álagi alla
skatta og önnur gjöld, sem miðuð eru við
núgildandi fasteignamat og aukamat og
renna eiga í sveitarsjóð, að vatnsskatti und-
anskildum.
Ákveða má, að hækkun þessi komi til
framkvæmda við innheimtu fasteignagjalda
árið 1952.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
„ . ....... Víða er svo háttað, að ókleift
Heimilishjaip f
í viðiögum. hefur reynst að útvega aðstoð á
Nr. 10/1952. heimilum um lengri eða
skemmri tíma, þegar veikindi eða aðrir erfið-
leikar steðja að. Með lögum um heimilis-
hjálp í viðlögum eru lögð drög að því, að
unnt verði að ráða bót á þessháttar vand-
kvæðum. En þar er svo ákveðið, að sveitar-
stjórnum og sýslunefndum sé heimilt að
ákveða að setja skuli á fót í umdæmum þeirra
heimilishjálp í viðlögum. Hlutverk hennar
er að veita hjálp á heimilum, þegar sannað
er með vottorði læknis eða ljósmóður eða á
annan hátt, sem aðilar taka gilt, að hjálpar-
innar sé þörf um stundarsakir vegna sjúk-
dóma, barnsburðar, slysa, dauðsfalla eða
af öðrum ástæðum.
Nú samþykkir sveitarstjórn eða sýslunefnd
að koma á fót slíkri aðstoð og skal þá setja
um það reglugerð, er félalgsmálarn. staðfestir.
Framkvæmd heimilishjálpar má fela sér-
stakri nefnd, sjúkrasamlögum, kvenfélögum
eða sérstakri stofnun undir yfirstjórn hlutað-
eigandi sveitarstjómar eða sýslunefndar.
Heimilishjálp veitist gegn endurgjaldi sam-
kvæmt gjaldskrá, en heimilt er, ef ástæður
þykja til, að lækka það eða fella það alveg
niður.
Ríkissjóður endurgreiðir Vs hluta af halla
þeim, sem sveitarsjóðir og sýslusjóðir kunna
að verða fyrir af starfsemi heimilishjálpar.
Alþingi samþi'kkti lög um
smáíbúða, iánadciid smáibúoarhúsa. ■Lög
iv. kafii íaga þessi eru felld inn í meginmál
nr. 36/1952. í . . *
Jaga um opinbera aðstoð við
byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kaup-
túnum, sem eru nú nr. 36/1952.
Lánadeild þessi á að veita einstaklingum í
kaupstöðum og kauptúnum lán til bygginga
smárra íbúðarhúsa, er þeir hyggjast koma
upp að nokkru eða verulegu leyti með eigin
vinnu sinni og fjölskvldu sinnar.