Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 38

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 38
34 SVEITARSTJORNARMÁL Ríkissjóður leggur fram 4 millj. króna sem stofnfé lánadeildarinnar. Lán þau, sem lánadeild þessi veitir, skulu tryggð með 2. veðrétti í húseign þeirri, sem féð er lánað til. Ársvextir skulu vera 5U2 af hundraði, og lánstími allt að 15 árum. Eigi má veita hærra lán til hverrar smáíbúðar en 30 þús. krónur, og eigi má hvíla hærri upp- hæð á fyrsta veðrétti smáíbúðar, sem lán eru veitt sarnkv. lögum þessum, en 60 þús. krón- ur. Eftirtaldir aðilar skulu sitja fyrir lánum til smáíbúðarbygginga: 1. Barnafjölskyldur. 2. Ungt fólk, sem stofnar til hjúskapar. 3. Fólk, sem býr í heilsuspillandi húsnæði. Landsbanka íslands hefur verið falin stjórn, reikningshald og starfræksla lánadeild- arinnar. Lánveitingar eru nú hafnar samkv. fögum þessum. . , , , Svohljóðandi samþvkkt var Rikisaðstoð vegna 1 r r* atvinnuörðugieika. §er^5 í þvi skyni, ef verða mætti, til að greiða úr mestu vandræðum ýmissa sveitarfélaga vegna ómöguleika á útvegun á fjármagni til atvinnuframkvæmda: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að verja allt að 4 milljónum króna til þess að bæta úr atvinnuörðugleikum í landinu á þann hátt, er hún telur heppilegast. Ríkis- stjómin getur sett þau skilyrði fyrir aðstoð þessari, um mótframlög og annað, sem hún telur nauðsynleg.“ Svo sem að líkum lætur, bárust ríkisstjórn- inni í tilefni af ályktun þessari beiðnir um fjárframlög frá fjölmörgum sveitarfélögum og þó aðallega frá kaupstöðum og kauptún- um. En skortur á fé til ýmiskonar fram- kvæmda er mjög tilfinnanlegur. Mun því fjár- hæð þessi hafa hrokkið skammt til að bæta úr brýnni þörf, og miklu færri fengið fvrir- greiðslu en eftir henni sóttu. Arbók Tryggingastofnunar ríkisins 1943-1946. Arbók Tryggingastofnunar ríkisins fyrir árin 1943—1946 er komin út. Er hún mikið rit, tæpar 200 blaðsíður að stærð og liefur að geyma geysimikinn fróðleik um rekstur og hag stofnunarinnar, svo og þeirra sjóða, sem undir hana heyra, enn fremur um heilbrigðis- mál, slysfarir og fleira. Árbók Tn-ggingastofn- unarinnar kom fyrst út á fimrn ára afmæli stofnunarinnar, árið 1941, og náði þá yfir ár- in 1936—1939. Sérstakar árbækur komu síð- an út fyrir árin 1940, 1941 og 1942, en þá varð hlé á, og nú er þráðurinn tekinn upp að nýju. Þessi nýja árbók er í sama formi og hinar fyrri. Hún nær til ársins 1946, en það ár urðu miklar breytingar á tryggingalöggjöf- inni, þar sem hin nýju lög um almannatrygg- ingar gengu í gildi 1. janúar 1947. Gert er ráð fyrir að næsta árbók nái yfir árin 1947 —1950, og að þar verði gerð grein fyrir lög- gjöfinni um almannatryggingar og þróun þessara mála, á því tímabili. Árbókinni er skipt í þrjá aðalkafla. Fyrsti kafli fjallar um rekstur Tryggingastofnunar- innar, en hann skiptist í eftirfarandi undir- kafla: Sameiginlegur rekstur, Slysatr)'gginga- deild, Sjúkratryggingadeild, Ellitn'gginga- deild (ellilaun og örorkubætur og Lífevris- sjóður íslands), sérstakir lífevrissjóðir (Lif- evrissjóður embættismanna, sem nú heitir Lifeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífevris- sjóður bamakennara, Lífeyrissjóður ljós- mæðra og Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna). Annar kafli fjallar um orsakir örorku á ís- landi. Er þetta mikil og fróðleg ritgerð, en hana hefur Jóhann Sæmundsson prófessor ritað. í þriðja og síðasta kaflanum eru h'lgi-

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.