Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Qupperneq 41

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Qupperneq 41
SVEITARST J ÓRNARMÁL 37 lendingarstað og uppsátri fyrir báta til vöru- flutninga. Fyrir þessa lóðarleigu og afnot þau, sem rakin voru skyldi eigandi verzlunar- stöðvarinnar greiða eiganda Hofs 45 ríkis- dali árlega. Að lokum segir svo í samningi þessum, að hann skuli í einu og öllu gilda fyiir síðari eigendur bæði jarðarinnar Hofs og umræddar verzlunarstöðvar. Þegar liætt var að nota ríkisdal að mynt hér á landi var ársleigunni breytt í 90 krón- ur. Stóð svo til ársins 1911, en þá hækkaði ársleigan í 100 krónur og mun sú hækkun hafa stafað af því, að leigulóðin hafði verið aukin, en þá er hún var fyrst rnæld, 1. júní 1948, reyndist hún vera 3200 fermetrar. í júnímánuði 1947 urðu eigendaskipti að nefndri verzlunarstöð, er Kaupfélag Austur- Skagfirðinga keypti hana af fyrri eiganda hennar Vilhjálmi Erlendssyni. Áður en kaup þessi fóru fram, hafði eigandi jarðarinnar Hofs, lýsti yfir því, að hann teldi sig óbund- inn af væntanlegri sölu og liti svo á, að lóð- arréttindin væru niðurfallin, ef til þess kæmi að úr sölunni yrði. Eigandi Hofs fylgdi þó ekki fram til dórns þeirri skoðun sinni, að lóðarréttindi verzlun- arinnar hefðu fallið niður, þegar kaupfélagið varð eigandi hennar hinn 17. júní 1947. Hins vegar snéri hann sér til sýslumannsins í Skaga- fjarðarsýslu hinn 4. júlí s. á. og fékk dóm- kvadda 2 óvilhalla matsmenn til þess að rneta, hvað væri hæfileg ársleiga eftir lóð þá og hlunnindi þau, er verzlunarstöðinni fydgdu samkvæmt samningnum frá 1861. Þessir matsmenn töldu árlegt endurgjald fy'rir nefnd not lóðar og hlunninda, hæfilega met- ið 1200 krónur, en með yfirmati, sem fram fór 21. maí 1949, var ársleigan ákveðin 1786 krónur. Eigandi Hofs krafði nú kaupfélagið um þessa ársleigu fyrir árið 1948 og 1949, þ. e. 1786 krónur fyrir hvort ár í stað þeirra 100 króna, sem áður höfðu verið greiddar árlega, og er félagið vildi ekki greiða þá leigufjár- hæð fylgdi hann kröfu sinni frarn með rnáls- sókn. Byggði hann þessa kröfu sína m. a. á því, að hvorttveggja væri, að það þekktist ekki, að leigugjald, sem ákveðið hefði verið í peningunr fy'rir 80—90 árurn, stæði enn óbreytt, og auk þess hefði hann átt tvímæla- lausan rétt til þess að krefjast rnats á lóðar- leigunni samkvæmt lögum nr. 75 frá 1917, um útmælingu lóða í kaupstöðum. En sam- kværnt þeim lögum er hverjum þeirn, sem heimilt er að verzla hér á landi, rétt að fá sér útmældar, til verzlunar, óbyggðar lóðir í kaupstöðum eða löggiltum kauptúnum, með þeim skilyrðum, sem nánar eru greind í lög- unurn. Skulu þeir, er með slíkum hætti fá lóðir á leigu, greiða það leigugjald, er dóm- kvaddir menn meta hæfilegt, en heimilt er þeim aðiljum, er hlut eiga að máli að krefj- ast leigumats á hverjum 10 ára fresti. Kaupfélagið mótmælti því, að sér væri skylt að greiða þá ársleigu, er ákveðin var með nefndu yfirmati, og hélt því fram, að leigu- samningurinn frá 1861 væri enn í fulíu gildi og engin ákvæði í honum, sem veittu land- eiganda heimild til þess að krefjast hækk- unar á lóðarleigunni fram yfir þær 100 krón- ur, sem samið var um 1911. Þá var því og haldið fram af þess hálfu, að endurmats- ákvæði nefndra laga frá 1917 gætu ekki átt við, þegar svo stæði á sem hér, að um frjáls- an samning um lóðarleigu væri að ræða. Héraðsdómur í Skagafjarðarsýslu féll á þá lund, að kaupfélaginu væri skylt að greiða eiganda jarðarinnar Hofs þá ársleigu fy'rir verzlunarstöðina, sem ákveðin var með yfir- rnatinu 1949, og lýst var áðan, en fjárhæð hennar var 1786 krónur á ári. Kaupfélagið skaut málinu til Hæstaréttar, en úrslit þess urðu þar þau sömu og í hér- aði. — í forsendum hæstaréttardómsins seg- ir, að grunnleigusamningurinn frá 30. októ- ber 1861 með þeirri breytingu, er á honum

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.