Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Síða 16
14
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Kynning
sveitarstj órnar-
manna
HALLDÓR E. SIGURÐSSON er fæddur að
Haukabrekku á Snæfellsnesi 9. sept. 1915. Foreldrar
hjónin Sigurður Eggertsson skipstjóri og síðar bóndi
að Suður-Bár, og Ingibjörg Pétursdóttir.
Halklór lauk prófi frá héraðsskólanum í Reykholti
og búfræðiprófi frá Hvanneyri. Auk Jiess stundaði
hann nám við Samvinnuskólann, sem óreglulegur
nemandi. Hann var bóndi að Staðarfelli í Dalasýslu
frá 1937—1955, sveitarstjóri í Borgarnesi frá 15.
febrúar 1955 og síðan. Halldór var formaður Ung- Halldór E. Sigurðsson.
mennasambands Dalamanna um 10 ára skeið, for-
maður skólanefndar húsmæðraskólans að Staðarfelli
og fræðslunefndar Fellsstrandar- og Klofningsskóla-
hverfis frá 1946—1955, í hreppsnefnd Fellsstrandar-
hrepps 1942—1955, í hreppsnefnd Borgarneshrepps
frá 1962, formaður Búnaðarsambands Borgarfjarðar
1962. Kosinn Jjingmaður Mýramanna 1956 og 1959
og Jtriðji Jjingmaður Vesturlands 1959 ( í haustkosn-
ingum) og síðan. Halldór E. Sigurðsson er kvæntur
Margréti Gísladóttur frá Bergsstöðum í Svartárdal,
A.-Hún., og eiga þau Jtrjú börn.
ÓLAFUR G. EINARSSON, sveitarstjóri í
Garðahreppi, er fæddur á Siglufirði 7. júlí 1932, son-
ur Einars Kristjánssonar, framkvæmdastjóra, og
Ólafar ísaksdóttur konu hans. Ólafur hóf nám við
Menntaskólann á Akureyri 1948 og lauk þaðan stúd-
entsprófi 1953. Innritaðist í lagadeild Háskóla ís-
lands 1955 og lauk kandidatsprófi í lögum í mal-
mánuði 1960. Ráðinn sveitarstjóri i Garðahreppi 1.
júlí 1960, og hefur gegnt Jtví starfi síðan.
Ólafur er kvæntur Rögnu Bjarnadóttur, söðlasmiðs
Ólafur G. Einarsson. á Patreksfirði Bjarnasonar.